Egyptar loka enn einum fréttavefnum Þórgnýr Einar Albertsson skrifar 31. mars 2018 08:15 Abdul Fattah al-Sisi þarf að bíða í næstum viku í viðbót áður en hann getur fagnað sigri. Vísir/AFP
Yfirvöld í Egyptalandi lokuðu á fréttavefinn al-Manassa í gær eftir að miðillinn hafði fjallað um meint brot á kosningalögum sem eiga að hafa átt sér stað í forsetakosningum vikunnar. „Vefsíðu al-Manassa var lokað eftir umfangsmikla umfjöllun um forsetakosningarnar þar sem greint var frá fjölda lögbrota, meðal annars mútuþægni og ólöglegum áróðri til kjósenda,“ sagði í tísti frá miðlinum. Egyptar hafa lokað á fjölda einkarekinna fjölmiðla undanfarin misseri og hafa stjórnarandstæðingar kvartað yfir því að með því sé Abdul Fattah al-Sisi forseti að reyna að þagga niður í gagnrýnendum. Búist er við því að Sisi vinni sigur í kosningunum en úrslita er að vænta eftir helgi. Á móti honum bauð hinn lítt þekkti Moussa Mostafa Moussa sig fram. Sá hefur verið kallaður strengjabrúða Sisis. Framboð hans er sagt eingöngu til þess fallið að láta kosningarnar líta trúverðuglegri út, en fjölda stjórnarandstæðinga var meinað að bjóða sig fram.
Birtist í Fréttablaðinu Mest lesið Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Erlent Dragi uppsagnirnar til baka Innlent Trump hafi nú engu að tapa Erlent Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Innlent Draumur Demókrata að rætast Erlent Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Erlent Sigraði þrátt fyrir peningaflóð og svik á lokametrunum Erlent Sýknaður vegna fíkniefnaviðskipta hins látna Innlent Sögðu Írisi hafa beðið sig um að lemja brotaþola Innlent „Hann hótaði að drepa okkur“ Innlent Fleiri fréttir Verði stjórnað af „róttækustu og öfgafyllstu vinstrimönnum bandarískrar sögu“ Trump hafi nú engu að tapa Sigraði þrátt fyrir peningaflóð og svik á lokametrunum Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Draumur Demókrata að rætast Bein útsending: Tölur berast frá kjörstöðum vestanhafs Segir af sér vegna lestarslysa Reynslumikill flugmaður við stjórnina Sjö flugvélum lent vegna sprengjuhótana Trúnaðarbrestur á Grænlandi og samþykkt Bandaríkjasamnings sett á ís Hafnað með afgerandi hætti Íslendingur dæmdur fyrir dreifingu barnaníðsefnis í Kanada Rússar gerðu árás á sjúkrahús í Kharkív Framtíð Trump í húfi á kjördegi í Bandaríkjunum Taka u-beygju og vilja að Evrópa kaupi aftur gas af Rússum Nauðlenti vegna sprengjuhótunar „Tíminn er á þrotum“ Sprengjum varpað á skóla meðan fólk beið eftir brauði Kælar matvöruverslana hakkaðir á ný Ríkin sem barist er um: Blá flóðbylgja eða smáskvetta? „Svívirðileg svik“ Netárásir á almannavarnarkerfi Úkraínumanna og Rússa Níu manns um borð þegar flugvél hrapaði á umferðargötu Starfsmenn Disney World handteknir í stóru barnaníðsmáli Yfirhalning hafi verið nauðsynleg „Rannsóknarnefndir verða stofnaðar“ Barist um samband Búlgaríu við Rússland Snerist upp í ofbeldi þegar nóttin skall á Grunaðir um að skipuleggja óeirðir á Tenerife Sjá meira