Fjögurra ára fangelsi fyrir að nauðga 14 ára stúlku Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar 23. mars 2018 18:42 Fjölskipaður héraðsdómur kvað upp sinn dóm í dag. vísir/hanna
Héraðsdómur Reykjavíkur dæmdi í dag Þórð Juhasz í fjögurra ára fangelsi fyrir að nauðga fjórtán ára gamalli stúlku í ágúst 2016. Var hann ákærður fyrir að hafa sótt stúlkuna kvöld eitt, ekið með hana á afvikinn stað og í aftursæti bílsins kysst hana og látið hana hafa við sig munnmök. Var því lýst í ákæru að hann hefði nýtt sér yfirburðastöðu sína gagnvart stúlkunni vegna aldurs- og þroskamunar auk þess sem hún var ein með honum í bíl, fjarri öðrum. Þá var því einnig lýst í ákæru að Þórður hefði beitt afli til þess að stúlkan héldi áfram þegar hún reyndi að hætta.Hélt excel-skjal með nöfnum og aldri einstaklinga og kynferðislegar athafnir með þeim Húsleit var gerð heima hjá Þórði í tengslum við rannsókn málsins. Þar var lagt hald á tölvubúnað í eigu hans en við leit í tölvu hans fannst meðal annars excel-skjal. Það hafði verið stofnað þann 19. janúar 2014 og var því síðast breytt 27. nóvember 2016. Skjalið var í eigu Þórðar, að því er fram kemur í dómnum, en í því var að finna nönf einstaklinga og hvaða ár þeir voru fæddir. Þá voru kynferðislegar athafnir færðar inn í skjalið við hvern og einn einstakling. Við rannsókn málsins var sími stúlkunnar einnig skoðaður og komu þá í ljós umfangsmikil samskipti á Snapchat á milli hennar og Þórðar. Voru þessi samskipti á meðal gagna málsins. Þórður neitaði sök í málinu og bar fyrir dómi að hann hefði ekki skynjað annað en að allt væri með vilja stúlkunnar. Þau hefðu rætt saman á samfélagsmiðlum og hún sagt honum að hún væri 16 ára. Þegar hann hefði verið að aka henni til baka umrætt kvöld hefði hún hins vegar sagt honum að hún væri 14 ára gömul. Honum hefði brugðið við að heyra það.Mátu framburð Þórðar afar ótrúverðugan Framburður Þórðar fyrir dómi var nokkuð breyttur frá því sem var hjá lögreglu þar sem hann kvaðst ekki kannast neitt við stúlkuna og neitaði í raun öllu sem borið var undir hann. Þegar þessi framburður var borinn undir hann fyrir dómi lýsti hann því að „hann hefði á þeim tíma viljað að málið væri ekki til og verið bæði óöruggur og hræddur. Framburður hans hjá lögreglu hafi því ekki verið réttur. Ástæða fyrir breyttum framburði væri ekki sú að lögregla hefði fundið gögn í tölvu ákærða sem tengt hefðu hann við brotaþola. Ákærði kvaðst hafa tekið saman upplýsingar um þær stúlkur er hann hefði átt í kynferðislegum samskiptum við. Væri það excel skjal sem væri á meðal gagna málsins. Ákærði hafi sett inn upplýsingar um brotaþola, m.a. aldur hennar, eftir að hann hefði hitt stúlkuna uppi í [...]. Tilgangurinn með umræddu skjali hafi verið að muna eftir þeim stúlkum sem hann hefði átt í samskiptum við. Ákærði kvaðst ekki hafa kannast við þetta skjal hjá lögreglu. Hann hafi einfaldlega neitað öllu,“ að því er segir í dómi héraðsdóms. Fjölskipaður héraðsdómur leit til þess við mat á sök Þórðar að mjög mikið misræmi var á framburði hans hjá lögreglu og fyrir dómi. Var það mat dómsins að framburður hans væir afar ótrúverðugur varðandi meginatriði málsins. Stúlkan hafi aftur á móti verið mjög trúverðug í framburði sínum, lýst atvikum á greinargóðan hátt og ekki reynt að fegra sinn þátt í málinu, eins og það er orðað í dómnum. Stúlkan hafi glímt við áfallastreituröskun og kvíða vegna málsins og var Þórður dæmdur til að greiða henni 1,6 milljónir króna í miskabætur. Þórður Juasz hét áður Þórður Jósteinsson. Hann hefur áður hlotið dóma fyrir brot á hegningarlögum, meðal annars árið 2008 þegar hann var dæmdur í 12 mánaða fangelsi fyrir að verða tveimur að bana í umferðarslysi og slasa tvo aðra í sama slysi.
Dómsmál Mest lesið Lentu í harkalegum árekstri augnablikum eftir nauðgun Innlent Vaktin: Útför Davíðs Oddssonar Innlent Virðast ekki hafa gert ráð fyrir að sundið myndi lokast Erlent Allt sem íbúar og tónleikagestir þurfa að vita Innlent Bandarísk herflugvél fórst í Írak Erlent „Ég var skelfingu lostinn“ Innlent Segir gæði sérnáms heimilislækna í hættu Innlent Stunginn með skrúfjárni við Steinhellu Innlent Davíð Oddsson borinn til grafar í dag Innlent Svíar stöðvuðu annað skuggaskip Erlent Fleiri fréttir Átta ár fyrir gróf brot gegn gestkomandi barni og eiginkonu Hrönn og Jón hafna helstu ávirðingum á RIFF „Ég var skelfingu lostinn“ Aðstoða blauta og kalda gönguskíðamenn á Hofsjökli Óveðrinu slotað og ASÍ með áhyggjur af bensínverðinu Fimm fólksbílar og flutningabíll fastir á Holtavörðuheiði Allt sem íbúar og tónleikagestir þurfa að vita Vaktin: Útför Davíðs Oddssonar Listi Framsóknar í Kópavogi kynntur og Orri áfram oddviti Segir gæði sérnáms heimilislækna í hættu Davíð Oddsson borinn til grafar í dag Rændi verslun vopnaður hníf Rannsaka hvernig tíðir og meðganga geta haft áhrif á Parkinson í konum Sporðamælingar í sjálfboðavinnu í 40 ár: Brasið alltaf dálítið eftirsóknarvert Lentu í harkalegum árekstri augnablikum eftir nauðgun Áætla að 188 frelsissviptir útlendingar hefðu verið vistaðir í nýja úrræðinu Sigríður Ingibjörg ráðin nýr framkvæmdastjóri BSRB Á annan tug ferðalanga fastir á Holtavörðuheiði Íslendingar skipi sér í hóp með öfgaríkjum Umdeild málsókn, sviptingar í fjölmiðlum og verðhækkanir Þó nokkur snjóflóð fallið og loka Flateyrarvegi í kvöld Fjögurra vikna gæsluvarðhald eftir hópárás Stunginn með skrúfjárni við Steinhellu Sýkna Landsbankann af kröfum Quang Le Kristinn ekki bænheyrður Landsréttur tók ekki heldur mark á lygilegri frásögn Fimm ár fyrir stangir fullar af amfetamíni Mátti kalla fjárfesta „nútíma þrælahaldara“ Umsókn Miðflokksins í klúbb evrópska íhaldsmanna ekki svarað Ríkið sýknað vegna dauða ungrar konu í átökum við lögreglu Sjá meira