Hvetur unga fólkið til að láta í sér heyra Margrét Helga Erlingsdóttir skrifar 25. mars 2018 20:08 Ungmenni voru hvött til að láta í sér heyra í ræðu sem Frans páfi hélt í dag. Vísir/afp
Frans páfi dró hvergi undan í ræðu sem hann flutti á Péturstorgi í dag. Þúsundir ungmenna voru mætt til að hlusta á páfann á Æskulýðsdegi Kaþólsku kirkjunnar. Frans gerði baráttu ungs fólks fyrir bættri byssulöggjöf í Bandaríkjunum að umfjöllunarefni sínu. Hann hvatti ungt fólk til frekari dáða: „Kæra unga fólk, þið hafið það sem þarf til að öskra.“ Reuters greinir frá. „Það eru til margar leiðir til að þagga niður í ungu fólki og varpa á það skugga. Það eru til margar leiðir til að deyfa það, til að fá það til að hafa hljótt, til að spyrja einskis og véfengja ekkert. Það eru til leiðir til róa það, til að aftra ungu fólki frá þátttöku,“ segir Frans páfi. Hann hvatti ungt fólk til að taka frekar til fyrirmyndar fólkið sem veifaði pálmagreinum til að fagna komu Jesús Krists í stað þess að líta upp til þeirra sem kröfðust þess að hann yrði krossfestur, fáeinum dögum síðar. Frans páfi sagði að það væri hlutverk unga fólksins að hafa hátt, jafnvel þegar aðrir þegja. Hvatningarorð Páfans eru sögð í kjölfar mótmælafundarins „March for our lives“ sem haldinn var í Washington í gær. Á fundinn mættu hundruð þúsunda ungs fólks sem krafðist strangari laga um byssueign í Bandaríkjunum.
Mest lesið Bolafjallsvegi verður lokað 12. ágúst Innlent Skotvopnin reyndust leikfangabyssur Innlent Vopnin reyndust vera „nákvæmar eftirlíkingar“ Innlent Sparkað í lögreglumann og sjúkraflutningamaður sleginn Innlent Einn handtekinn vegna grófrar líkamsárásar Innlent Viðræður við Íran hefjist á morgun Erlent Allt að tuttugu stiga hiti og líkur á síðdegisskúrum Veður Skoða stækkun á öryggismyndavélaneti Innlent Játaði að hafa flutt líkið í ferðatösku Erlent Sárt að geta ekki sagt ömmu sinni frá sakleysi sínu Innlent Fleiri fréttir Á þriðja tug enn saknað eftir að kviknaði í ferju Viðræður við Íran hefjist á morgun Játaði að hafa flutt líkið í ferðatösku Sviðið flak annarrar þyrlunnar hafnaði á vegi Dani lést í þyrluslysinu Danir auka vígbúnað í Færeyjum Þyrlur slökkviliðs skullu saman í miðju lofti Trump boðar hlé á árásum og fullyrðir að samkomulag sé í sjónmáli Hröpuðu til bana í skoðunarflugi yfir Nazca-línurnar Þrír látnir í sprengingu á veitingastað í Moskvu Ráðherrar Evrópu halda neyðarfund á þriðjudag Harðar deilur innan klerkastjórnarinnar Níu felldir í Kænugarði Kallað eftir skyndifundi innanríkisráðherra ESB Myndir: Tugir þúsunda syntu til Ceuta Skilaboð send úr símanum í blekkingarskyni Hamasliðar samþykkja að afvopnast Tæplega 50 þúsund manns synt til Ceuta á einum sólahring Trump segir Hamas samþykkja að afvopnast og Ísrael að hverfa frá Gasa „Hún drap börnin“ „Það sem hann gerði, ég get aldrei endurgoldið það“ Nítján ára Norðmaður dæmdur fyrir að taka að sér leigumorð á Englandi Bandaríkjamaður sagður smygla vopnum og málaliðum til Súdan Rússnesk stýriflaug líklega lent í Póllandi Segjast hafa gert harða hríð að byltingarverðinum Minnst þrjátíu látnir í Japan Fjögur börn látin eftir loftárásir Rússa á borgir Úkraínu Neitaði að svara spurningum þingmanna Leita enn í rústunum í Japan „Við ætlum að fokking lúskra á þeim“ Sjá meira