Föst í fimm tíma á þjóðveginum með ófríska konu í rútunni Sylvía Rut Sigfúsdóttir skrifar 11. mars 2018 21:33 Miklar raðir mynduðust eftir að þjóðveginum var lokað um klukkan fjögur í dag. Mynd/Jóna Fanney Friðriksdóttir
Íslenskur fararstjóri sem var föst í rútu á þjóðvegi 1 í fimm klukkustundir segir að hún sé hissa á því hversu langan tíma það tók að rannsaka slysstaðinn. Eins og kom fram á Vísi í dag varð harður árekstur tveggja bifreiða á Suðurlandsvegi, við Iðjuvelli rétt austan við Kirkjubæjarklaustur um fjögurleytið í dag. Veginum var lokað í báðar áttir og var engin hjáleið. „Ég er hér með fulla rútu af fólki. Við komum hérna um fjögurleytið, við lögðum af stað frá Jökulsárlóni um hálf fjögur og vorum búin að keyra í svona tuttugu mínútur eða hálftíma,“ segir Jóna Fanney Friðriksdóttir í samtali við Vísi klukkan rúmlega níu í kvöld. Bílaraðirnar sem hafa myndast báðum megin við lokanirnar síðustu klukkustundir eru margir kílómetrar að lengd. „Það er fullt af rútum hérna þannig að það eru hundruð ferðamanna hér auk einkabíla, bæði ferðamenn og Íslendingar. Við sjáum ekki hversu langt röðin nær.“Stóð ekki á sama Búið er að opna þjóðveginn á ný samkvæmt upplýsingum frá Vegagerðinni en umferðinni er stýrt af lögreglu til að hægt sé að greiða úr þeirri biðröð sem hefur myndast. Var vegurinn opnaður á níunda tímanum í kvöld. Þegar blaðamaður talaði við Jónu Fanney voru bílar byrjaðir að streyma á móti þeim en þeirra röð var enn stopp. „Ég talaði við lögregluna áðan því ég er með ófríska konu í bílnum, mér var ekki alveg sama því það var verið að loka veitingahúsum og svona.“ Líðan ófrísku konunnar er góð en Jóna Fanney var tilbúin að óska eftir aðstoð lögreglu við að flytja hana ef þyrfti. Hún segir að farþegarnir séu nú svangir og þyrstir. Finnst þeim mjög óþægilegt að hafa ekki fengið upplýsingar síðustu klukkustundir og viti ekki enn hvenær rútan geti haldið af stað aftur.Ferðamönnum þótti óþægilegt að fá ekki upplýsingar um stöðu mála á Suðurlandsvegi í dag.Mynd/Jóna Fanney FriðriksdóttirÆtla að halda staðnum opnum „Þau eru svo yndisleg á Vík á Ice Cave Bistro að þau ætla að bíða eftir okkur. Við eigum eftir klukkutíma í Vík og ég er búin að vera í miklu sambandi við þau, þau eru bara alveg yndisleg. Þau ætla að bíða eftir okkur og hafa mat.“ Í rútunni hjá Jónu Fanney eru um fimmtíu ferðamenn auk bílstjóra. Hún segir að farþegarnir hafi klappað þegar þau fengu að vita að veitingastaður ætlaði að hafa opið áfram svo allir gætu fengið næringu og vatn. „Líðan þeirra er góð og fólk er búið að sofa mikið. Ég er með eina ófríska og búin að fylgjast vel með henni. Fólk er alveg óvenjulega jákvætt hérna hjá mér.“ Einn ökumaður var í öðrum bílnum en tveir aðilar í hinum. Allir þrír farþegarnir voru fluttir til Reykjavíkur í einni þyrlu frá Landhelgisgæslunni. Hún lenti um klukkan sjö í kvöld í Reykjavík. „Ég hef fulla samúð með þessum slösuðu og aðstandendum þeirra og er ekkert mál að bíða. En hinir slösuðu fóru á milli fimm og sex, það hefur tekið svona langan tíma að rannsaka slysið. Mér finnst að við þurfum að fara að hysja aðeins upp um okkur í þessum vegamálum, þetta er hneyksli,“ segir Jóna Fanney. Strax í dag lá fyrir að vegurinn yrði lokaður í einhvern tíma á meðan viðbragðsaðilar athöfnuðu sig, bæði við björgun slasaðra og við rannsókn atvika.Myrkrið skapar hættu Jóna Fanney segir að frá því hinir slösuðu voru fluttir á brott í þyrlunni hafi fólk ekki fengið miklar upplýsingar frá lögreglunni. „Fólk hefur setið hér í fimm klukkustundir án þess að fá vott né þurt og engar upplýsingar heldur. En auðvitað skildu allir allt fyrstu klukkustundirnar en eru orðnir þreyttir núna eftir allan þennan tíma. Við horfðum á þyrluna fara en síðan hefur ekkert frést. Skiljanlega þarf að rannsaka en þetta tekur svo langan tíma.“ Ekki liggja fyrir upplýsingar um meiðsl þeirra sem slösuðust en þeir voru allir með meðvitund samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á Suðurlandi. „Ég ræddi við viðbragðsaðila hér áðan og hann sagði að þeir væru eiginlega að búa til meiri hættu með þessu því nú er komið myrkur og allur þessi fjöldi bíla, kílómetra eftir kílómetra. Þetta skapar meiri hættu, það á eftir að leysa úr þessum hnút. Þeir eiga samt örugglega eftir að leysa vel úr þessu og leiða umferðina.“Uppfært 22:30 Hópurinn er kominn er kominn á Vík og líður öllum vel. Jóna Fanney segir að ferðamennirnir séu þreyttir og þvældir en ánægðir með móttökurnar. Nú bíður þeirra tveggja tíma akstur til Reykjavíkur. „Þetta er í fyrsta skipti sem ég vona að það séu ekki norðurljós á leiðinni, svo við þurfum nú ekki að stoppa fyrir það líka,“ segir Jóna Fanney kát að lokum.
Ferðamennska á Íslandi Lögreglumál Samgöngur Tengdar fréttir Alvarlegt umferðarslys á Suðurlandsvegi við Kirkjubæjarklaustur Vegurinn er lokaður í báðar áttir. 11. mars 2018 16:57 Þjóðvegur 1 opnaður fyrir umferð á ný Opnað verður fyrir umferð um Suðurlandsveg á næstu mínútum en loka þurfti veginum síðdegis eftir árektur tveggja bíla. Samkvæmt upplýsingum frá Lögreglunni á Suðurlandi verður umferð stýrt til að greiða úr þeirri biðröð sem hefur myndast. 11. mars 2018 20:29 Mest lesið Fóru með fórnarlambið út að Gróttuvita og börðu með felgulykli Innlent Áfengissala í brekkunni hafi reynst vel Innlent Borgin biðst afsökunar: „Þetta er svo petty af hálfu borgarinnar“ Innlent „Þetta verða mjög spennandi kosningar“ Innlent „Ég er ekki að útiloka neitt, það er allt uppi á borðinu“ Innlent Sakfelling hjúkrunarfræðingsins sé sorgleg Innlent Slitin drifkeðja bifhjóls olli banaslysi á Miklubraut Innlent Flestir óánægðir með störf ríkisstjórnarinnar Innlent Heiða Guðný á Ljótarstöðum fékk óvænt kið Innlent Páll Winkel varð fyrir valinu Innlent Fleiri fréttir Fóru með fórnarlambið út að Gróttuvita og börðu með felgulykli Áfengissala í brekkunni hafi reynst vel „Þetta verða mjög spennandi kosningar“ „Ég er ekki að útiloka neitt, það er allt uppi á borðinu“ „Nú verður fjör” hjá Sjálfstæðismönnum sem kynna lista í Mosó Heiða Guðný á Ljótarstöðum fékk óvænt kið Borgin biðst afsökunar: „Þetta er svo petty af hálfu borgarinnar“ Vendingar í borginni, vandræði vegna verktaka og Pepsi-sátt Framsókn sviptir hulunni af framboðslista í Mosó Rósin áfram í hnappagati Samfylkingarinnar Sakfelling hjúkrunarfræðingsins sé sorgleg Flestir óánægðir með störf ríkisstjórnarinnar „Heiða hætt? Nei, bara veik heima“ Reykjadalur fær tugi milljóna eftir allt saman en aðrir minna Samfylking stærst en Sjálfstæðisflokkur skammt undan Landspítali fær 25 milljónir vegna stuðnings við Bakkakotsbörn Páll Winkel varð fyrir valinu Fyrir Heimaey lætur gott heita í Eyjum Síðustu strandaglóparnir komust til Keflavíkur í nótt Borgarfulltrúi sem hlaut ekki náð fagnar endurnýjun „Þetta kom okkur algjörlega í opna skjöldu“ Reykjavíkurborg játar ranga upplýsingagjöf en umboðsmaður segir spurningum enn ósvarað Deilt um framkvæmdir í Ölduselsskóla og flug í samt lag á ný Fái að hitta lækni fyrr með nýju skipulagi á bráðamóttökunni Íris kveður stjórnmálin í Eyjum Bein útsending: Heilsan okkar – Fíknivandi ungmenna Kveður Þorgerði og snýr sér að Guði Segja verktakann hafa fallið á prófinu Slitin drifkeðja bifhjóls olli banaslysi á Miklubraut Hafa til sunnudags að breyta dvalartíma upp á nýju gjöldin Sjá meira
Alvarlegt umferðarslys á Suðurlandsvegi við Kirkjubæjarklaustur Vegurinn er lokaður í báðar áttir. 11. mars 2018 16:57
Þjóðvegur 1 opnaður fyrir umferð á ný Opnað verður fyrir umferð um Suðurlandsveg á næstu mínútum en loka þurfti veginum síðdegis eftir árektur tveggja bíla. Samkvæmt upplýsingum frá Lögreglunni á Suðurlandi verður umferð stýrt til að greiða úr þeirri biðröð sem hefur myndast. 11. mars 2018 20:29