Þingheimur minntist Sverris og Guðjóns Arnars Hulda Hólmkelsdóttir skrifar 19. mars 2018 16:33 Steingrímur J. Sigfússon, forseti Alþingis. VÍSIR/ANTON BRINK
Steingrímur J. Sigfússon, forseti Alþingis, flutti minningarorð um Sverri Hermannsson og Guðjón Arnar Kristjánsson, fyrrverandi alþingismenn, við upphaf þingfundar í dag. Bað hann þingheim að minnast þeirra með því að rísa úr sætum. Sverrir lést þann 12. mars síðastliðinn, 88 ára að aldri. Guðjón Arnar lést aðfaranótt 17. mars eftir erfið veikindi, 73 ára að aldri. Sverrir Hermannsson var alþingismaður, ráðherra og forseti neðri deildar Alþingis á þingferli sínum. Hann sat á alþingi fyrir Sjálfstæðisflokkinn á árunum 1971-1988. Hann var fyrsti formaður Frjálslynda flokksins og var fulltrúi flokksins á Alþingi á árunum 199-2003. Guðjón Arnar tók við formennsku í Frjálslynda flokknum af Sverri árið 2003 og gegndi því embætti til ársins 2010. Hann sat á þingi fyrir Frjálslynda flokksins á árunum 1999-2009. Í ræðu sinni sagði Steingrímur að Sverri yrði þeim sem honum kynntust í opinberum störfum minnisstæður maður, hvort sem skoðanir fóru saman eða ekki. Hann hafi jafnan borið sig vel, látið til sín heyra og haldið reisn sinni fram á síðustu daga. Um Guðjón Arnar sagði Steingrímur meðal annars að hann hafi haft ánægju af félagsstörfum og hafi ungur verið valinn til forystu í samtökum sjómanna. Hann hafi verið gagnrýninn á kvótakerfið og á þingi hafi hann verið fastur fyrir, talnaglöggur og hafi sett sig vel inn í mál. Hann hafi verið ljúfur í samskiptum, glaðlyndur og fús til sátta og því einstaklega þægilegur í samvinnu. Sverrir Hermannsson var 88 ára.AlþingiMinningarorð um Sverri Hermannsson, fyrrverandi Alþingismann. Sverrir Hermannsson, fyrrverandi alþingismaður, ráðherra og forseti neðri deildar Alþingis, lést á hjúkrunarheimilinu Mörk 12. mars sl., 88 ára að aldri. Sverrir Hermannsson var fæddur á Svalbarði í Ögurvík 26. febrúar 1930. Foreldrar hans voru Hermann Hermannsson, útvegsbóndi þar, og kona hans, Salóme Rannveig Gunnarsdóttir, húsmóðir. Um fermingaraldur fluttist hann til Ísafjarðar með foreldrum sínum. Sverrir lauk stúdentsprófi frá Menntaskólanum á Akureyri árið 1951 og kandídatsprófi í viðskiptafræði 1955. Þegar á skólaárum lét Sverrir til sín taka, var formaður Vöku, félags lýðræðissinnaðra stúdenta, og sat í stúdentaráði. Hann var svo formaður Stúdentafélags Reykjavíkur eitt ár, 1957–1958. Í hálfan annan áratug, eftir að Sverrir lauk námi og fram til þess að hann settist á Alþingi, starfaði hann að málum launþega, fyrst hjá vinnuveitendum, en síðar hjá Verslunarmannafélagi Reykjavíkur í fjögur ár og loks sem framkvæmdastjóri Landssambands íslenskra verslunarmanna í 15 ár. Um tveggja ára skeið, 1960–1962, var hann fulltrúi hjá blaðaútgáfunni Vísi. Samhliða þessum störfum hóf Sverrir útgerðarrekstur með bræðrum sínum og var stjórnarformaður útgerðarfélags þeirra, Ögurvíkur. Það þótti snemma ljóst að hugur Sverris stefndi hingað til Alþingis. Hann skipaði 2. sæti á framboðslista Sjálfstæðismanna í Austurlandskjördæmi 1963 og aftur 1967 og sat nokkrum sinnum á þingi sem varaþingmaður. Fyrir kosningarnar 1971 vann hann 1. sætið og sat samfellt á þingi fyrir Austfirðinga til 1988. Eftir kosningarnar 1974 varð Sverrir annar tveggja framkvæmdastjóra Framkvæmdastofnunar ríkisins og síðar forstjóri, allt til þess að hann varð iðnaðarráðherra 1983. Tveimur árum síðar, haustið 1985, varð hann svo menntamálaráðherra og gegndi því embætti fram yfir kosningarnar 1987. Sverrir var atorkusamur þingmaður og sinnti kjósendum sínum vel. Eftir haustkosningarnar 1979 var Sverrir kosinn forseti neðri deildar Alþingis og þótti svo lipur og réttsýnn á forsetastóli að hann sat hér í fjögur ár þótt í stjórnarandstöðu væri og drægi ekki af sér sem slíkur. Hann sat lengst í þingnefndum um atvinnumál, en síðast í allsherjarnefnd. Hann tók mjög virkan þátt í starfi Norðurlandaráðs á árunum 1975–1983. Ári eftir að Sverrir hvarf úr ríkisstjórn var hann skipaður bankastjóri Landsbankans og lét þá af þingmennsku. Ár Sverris í Landsbankanum voru umbrotatími í efnahags- og atvinnulífi. Sjálfur gerðist hann mjög gagnrýninn á skipulag sjávarútvegs, og er hann lét af störfum í bankanum eftir tíu ár stofnaði hann nýjan flokk, Frjálslynda flokkinn, sem boðaði breytingar á fiskveiðistefnunni. Hann varð fyrsti formaður flokksins og kosinn þingmaður Reykvíkinga 1999. Hann sat þá á þingi eitt kjörtímabil, fram til vors 2003. Þá þótti honum nóg komið og settist í helgan stein. Hann sat á Alþingi í 21 ár, á 27 þingum alls. Í kringum Sverri Hermannsson ríkti sjaldnast lognmolla. Hann fór jafnan mikinn í orðum og athöfnum, hafði óvenjulega auðugt tungutak, var skýr og skorinorður í ræðustól, skapmikill og stór í sniðum. Í daglegum samskiptum hér á Alþingi var Sverrir hlýr í viðmóti, hreinn og beinn og tryggur sínum. Athafna Sverris sér víða stað en hann var ekki síst maður orðsins, málsnjall og orðheppinn, víðlesinn í íslenskum bókmenntum og hafði tilvitnanir úr þeim jafnan á hraðbergi. Hann var sögumaður góður, það svo að til hreinnar listar mátti teljast. Sverrir Hermannsson verður þeim sem honum kynntust í opinberum störfum minnisstæður maður, hvort sem skoðanir fóru saman eða ekki. Hann bar sig jafnan vel, lét til sín heyra og hélt reisn sinni fram á síðustu daga.Guðjón Arnar Kristjánsson.Minningarorð um Guðjón Arnar Kristjánsson, fyrrverandi alþingismann: Guðjón Arnar Kristjánsson, fyrrverandi alþingismaður og formaður Frjálslynda flokksins, lést aðfaranótt sl. laugardags á líknardeild Landspítalans eftir erfið veikindi, á 74. aldursári. Guðjón Arnar Kristjánsson var fæddur á Ísafirði 5. júlí 1944. Foreldrar hans voru Kristján Sigmundur Guðjónsson smiður og kona hans, Jóhanna Jakobsdóttir húsmóðir. Guðjón Arnar lauk stýrimannanámi á Ísafirði 1965 og fiskimannaprófi frá Stýrimannaskólanum í Reykjavík ári síðar. Hann hóf ungur sjómennsku, var háseti, matsveinn og vélstjóri frá 15 ára aldri en síðar stýrimaður og skipstjóri, allt fram til 1997. Guðjón Arnar valdist ungur til forystu í félögum stéttar sinnar, var formaður Skipstjóra- og stýrimannafélagsins Bylgjunnar 1975–1984 og forseti Farmanna- og fiskimannasambands Íslands 1983–1999. Jafnframt átti hann sæti í ýmsum nefndum og ráðum, svo sem Verðlagsráði sjávarútvegsins og Starfsgreinaráði sjávarútvegsins. Hann sat í stjórn Fiskveiðasjóðs, í skólanefnd Stýrimannaskólans í Reykjavík, í stjórn Fiskifélags Íslands og í stjórn Slysavarnaskóla sjómanna og var um tíma varafiskimálastjóri. Hann skrifaði ávallt mikið í blöð um málefni sjávarútvegs og sjómanna sérstaklega. Jafnframt forystustörfum í samtökum sjómanna tók Guðjón Arnar þátt í stjórnmálum og sat á Alþingi sjö sinnum sem varamaður fyrir Sjálfstæðisflokkinn á árunum 1991–1995. En vegna ágreinings um sjávarútvegsmál sagði hann skilið við flokk sinn og stofnaði með öðrum Frjálslynda flokkinn og var kosinn þingmaður hans 1999, fyrst fyrir Vestfjarðakjördæmi en síðar Norðvesturkjördæmi. Hann sat á Alþingi í tíu ár sem aðalmaður, fram til 2009, en samtals á 18 þingum ef allt er talið. Hann var formaður Frjálslynda flokksins 2003–2010. Hann átti lengst af þingferils síns sæti í sjávarútvegs- eða samgöngunefnd, en einnig var hann um tíma í fjárlaganefnd og tók þátt í störfum Vestnorræna ráðsins síðustu ár sín hér. Guðjón Arnar sýndi snemma af sér dugnað og áræðni, varð einn aflasælasti togaraskipstjóri landsins og þekktur fyrir hreysti og kappsemi um borð í skipum sínum. Hann hafði ánægju af félagsstörfum og var ungur valinn til forystu í samtökum sjómanna. Hann stóð vörð um réttindi þeirra á talsverðum breytingatímum við upptöku kvótakerfis. Á það kerfi var hann gagnrýninn og það leiddi hann öðru fremur til virkra stjórnmálastarfa. Það munaði um Guðjón Arnar hér í þinginu. Hann var fastur fyrir, sérlega talnaglöggur og setti sig vel inn í mál. En togaraskipstjórinn reyndist ljúfur í samskiptum, glaðlyndur og fús til sátta og því einstaklega þægilegur að vinna með. Hann var heilsteyptur maður og drengskaparmaður sem jafnan lagði góðum málum lið.
Alþingi Andlát Tengdar fréttir Sverrir Hermannsson látinn Sverrir Hermannsson, fyrrverandi alþingismaður og ráðherra, lést í gær, 88 ára að aldri. 13. mars 2018 05:30 Guðjón A. Kristjánsson er látinn Hann var 73 ára gamall og fæddist á Ísafirði þann 5. júlí 1944. 17. mars 2018 21:00 Litríkur ferill Sverris Hermannssonar Sverrir Hermannsson, fyrrverandi þingmaður og ráðherra, er látinn 88 ára að aldri. 13. mars 2018 23:02 Mest lesið Erfiður tími þegar dóttirin kom út sem trans Innlent Þau kvöddu á árinu 2024 Erlent Farþegaflugvél hrapaði í Kasakstan Erlent Aðeins ein flugvél lent í Keflavík í dag Innlent Fagna jólunum í Betlehem í skugga stríðs Innlent Gott að geta sagt „þú ert hjartanlega velkominn“ Innlent Þak fauk nánast af hlöðu Innlent Á vaktinni við lokunarpósta alla jólanótt Innlent Tveir vörðu jólanótt í fangaklefa Innlent Appelsínugular viðvaranir og vegir víða lokaðir Veður Fleiri fréttir Standa vaktina á jóladag: „Þetta er bara eins og hina dagana“ Standa vaktina við lokunarpósta á jóladag Flugferðir hafnar að nýju í Keflavík Þak fauk nánast af hlöðu Fagna jólunum í Betlehem í skugga stríðs Hellisheiði og Þrengsli opna ekki fyrr en á morgun Aðeins ein flugvél lent í Keflavík í dag Útköll víða vegna óveðurs Erfiður tími þegar dóttirin kom út sem trans Gott að geta sagt „þú ert hjartanlega velkominn“ Appelsínugular viðvaranir og jólaboð hjá Hjálpræðishernum Á vaktinni við lokunarpósta alla jólanótt Tveir vörðu jólanótt í fangaklefa Gleðileg jól, kæru lesendur Vegir víða um land gætu lokast með litlum fyrirvara Varað við ferðalögum víða um land Margir á síðasta snúningi með jólapakkana Í sumum tilfellum eina hátíðlega stund dagsins Men Tolla komið í leitirnar: „Sannkölluð jólasaga“ Vonskuveður og þau sem eru á síðasta snúningi Fjúgandi hálka í kirkjugörðum Reykjavíkur Stolið hálsmen Tolla dúkkaði upp tuttugu árum síðar Nóg að gera hjá slökkviliðinu í nótt Mette óskaði Kristrúnu til hamingju Aðfangadagur: Hvar er opið og hve lengi? „Skiptir sannleikurinn engu máli?“ Fjölmenni gekk fyrir frið í miðborginni Rútur skildar eftir á Holtavörðuheiði og leiðinni lokað Vísnabók gefin til nýrra Hvergerðinga frá Hveragerðisbæ Vandræðamál sem ríkisstjórnin fær í arf Sjá meira
Sverrir Hermannsson látinn Sverrir Hermannsson, fyrrverandi alþingismaður og ráðherra, lést í gær, 88 ára að aldri. 13. mars 2018 05:30
Guðjón A. Kristjánsson er látinn Hann var 73 ára gamall og fæddist á Ísafirði þann 5. júlí 1944. 17. mars 2018 21:00
Litríkur ferill Sverris Hermannssonar Sverrir Hermannsson, fyrrverandi þingmaður og ráðherra, er látinn 88 ára að aldri. 13. mars 2018 23:02