Nordsjælland á enn möguleika á titlinum Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar 1. mars 2018 19:02 Rúnar Alex gat leyft sér að fagna í leikslok í dag Vísir / Getty
Rúnar Alex Rúnarsson og félagar í danska úrvalsdeildarliðinu Nordsjælland eiga enn möguleika á að hampa titlinum eftir 3-1 sigur á Silkeborg í kvöld. Rúnar Alex var að vanda milli stanganna í kvöld og hann þurfti að sækja boltann í eigið net á 12. mínútu eftir að Davit Skhirtladze skoraði úr vítaspyrnu. Áður hafði Nordsjælland þó komist yfir í leiknum og staðan því 1-1 og var hún þannig enn þegar liðin gengu til búningsherbergja. Thomas Norgaard lét reka sig af velli á 70. mínútu og heimamenn í Nordsjælland voru ekki lengi að nýta sér það, varamaðurinn Nicklas Jakobsen skoraði aðeins fimm mínútum seinna. Annar varamaður, Nikolai Baden, tryggði svo 3-1 sigur Nordsjælland. Þegar þrjár umferðir eru eftir í deildinni er Nordsjælland í þriðja sæti með 46 stig, sjö stigum á eftir toppliði Midtjylland. Bæði Midtjylland og Bröndby, sem situr í öðru sæti, eiga þó eftir að klára sinn leik í 23. umferðinni, liðin mætast innbyrðis seinna í kvöld. Eggert Gunnþór Jónsson og félagar í Sonderjyske lágu á heimavelli fyrir Álaborg. Jores Okore skoraði eina mark leiksins á 4. mínútu. Sonderjyske er í 10. sætinu með 25 stig, átta stigum frá botnliðunum.
Fótbolti á Norðurlöndum Mest lesið Konurnar aftur fleiri og sex fædd eftir 2000: Topp tíu listinn í ár Sport Rashford á lausu yfir jólin Fótbolti Látnir æfa á jóladag Enski boltinn Óvænt úrslit á HM í pílu í kvöld Sport Missti niður um sig brækurnar og gaf ódýrt mark Fótbolti Beint af HM á sjúkrahús vegna sjaldgæfs taugasjúkdóms Sport Logi frá FH til Króatíu Fótbolti Salah sló þrjú met í dag Fótbolti Mætir á leik í fyrsta sinn eftir að hjartað stoppaði Fótbolti Charlie Woods fór holu í höggi í fyrsta sinn Golf Fleiri fréttir „Allt er svo erfitt“ Látnir æfa á jóladag Mætir á leik í fyrsta sinn eftir að hjartað stoppaði Logi frá FH til Króatíu Rashford á lausu yfir jólin Missti niður um sig brækurnar og gaf ódýrt mark „Við vorum taugaóstyrkir“ Salah sló þrjú met í dag Semur við félagið sem bæði mamma og pabbi spiluðu fyrir Everton hjálpaði sér og nágrönnunum í Liverpool Útsalah á mörkum í Lundúnum Martröð hjá Manchester United í leikhúsi draumanna Drottning Lengjudeildarinnar ætlar að vera með Fram í Bestu Öruggt hjá Real Madrid gegn Sevilla Liverpool liðið ferðast mest yfir jólin Fjórar knattspyrnukonur handteknar Jackson komst upp fyrir Eið Smára Heiður að vera keypt á metfé frá Val: „Stórt og gott skref“ Sara Björk á skotskónum í Sádi-Arabíu Skallaði þjálfara andstæðinganna eftir leik Endar Rashford í Sádí-Arabíu? Saka yfirgaf Selhurst Park á hækjum Bellingham tryggði Sunderland sigurinn Atletico rændi sigrinum í blálokin Juric tekinn við Southampton Arsenal valtaði yfir Crystal Palace Isak með þrennu í stórsigri Newcastle Haaland: Ég hef ekki verið nógu góður Gumma komin heim eftir átta ára fjarveru Guardiola: Við erum í vandræðum með að skora Sjá meira