Tómas aftur til WOW Tryggvi Páll Tryggvason skrifar 20. febrúar 2018 16:12 Tómas Ingason Mynd/Aðsend
Tómas Ingason hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri viðskiptasviðs WOW air. Undir viðskiptasvið mun heyra sala, markaðssetning, þjónusta og tekjustýring. Hann starfaði áður hjá Arion banka sem forstöðumaður Stafrænnar framtíðar. Þetta er í annað sinn sem Tómas kemur til liðs við WOW air en árið 2014 starfaði hann sem framkvæmdastjóri viðskiptaþróunarsviðs WOW air. Á árunum 2011 til 2013 starfaði Tómas sem stjórnunarráðgjafi hjá Bain & Company í Kaupmannahöfn. Áður leiddi Tómas tekjustýringu og verðlagningu hjá Icelandair. Tómas hefur MBA gráðu frá MIT Sloan School of Management í Boston en auk þess hefur hann lokið MS gráðu í verkfræði frá MIT með áherslu á flugrekstur og aðfangakeðjur. Tómas er með BS gráðu í iðnaðarverkfræði frá Háskóla Íslands. Á sama tíma lætur Engilbert Hafsteinsson af störfum hjá félaginu. Engilbert starfaði síðast sem framkvæmdastjóri sölu- og markaðssviðs og hefur verið hjá félaginu í 5 ár. „Engilbert hefur verið lykilstarfsmaður í uppbyggingu félagsins og leiddi meðal annars alla vöruþróun tengdri sölu en t.d innleiddi hann hliðartekjur WOW air. Ég þakka honum fyrir hans góða framlag og óska honum alls hins besta. Einnig vil ég bjóða Tómas velkominn aftur í hópinn í nýja stöðu hjá félaginu en hans mikla reynsla mun nýtast WOW air vel í hröðum vexti“ segir Skúli Mogensen forstjóri og stofnandi WOW air.
Vistaskipti Mest lesið Cayenne Electric kikkstartar nýjum rafbílakafla Porsche Samstarf Moldrík með ADHD: Hafa getuna til að horfa út fyrir boxið Atvinnulíf Húsið sem næstum gleymdist: „Eins og kýlt í hjartað á mér“ Atvinnulíf Kallar eftir breytingum á lífeyriskerfinu til að lækka íbúðalánavexti Viðskipti innlent Alltaf jafn hressandi að fara út og tala aðeins við hundinn Atvinnulíf „Vefveiðar eru ekki tæknivandamál, þær eru mannlegt vandamál“ Viðskipti innlent Tækifæri í vátryggingakerfi til að draga úr verðbólgu Viðskipti innlent Markaðurinn tók tíðindunum vel Viðskipti innlent Þórarinn dæmdur fyrir markaðsmisnotkun Viðskipti innlent Verðbólga eykst enn Viðskipti innlent Fleiri fréttir Tækifæri í vátryggingakerfi til að draga úr verðbólgu „Vefveiðar eru ekki tæknivandamál, þær eru mannlegt vandamál“ Markaðurinn tók tíðindunum vel Töldu nauðsynlegt að taka stærra skref en lutu í lægra haldi Kallar eftir breytingum á lífeyriskerfinu til að lækka íbúðalánavexti Engar fækkanir fyrirhugaðar fari kaupin í gegn Gengið í Icelandair rýkur upp í kjölfar fregna af tilboði í Fly Play Europe Icelandair ræðir um kaup á dreggjum Play Samkaup eykur hlut sinn í Kjötkompaní Ólafur Björn til liðs við Jónsbók Fyrirhugað flugfélag vekur athygli en engar leyfisumsóknir liggja fyrir Árni nýr stjórnarformaður Íslandsstofu Brimgarðar kaupa tíu milljónir hluta í Reitum SKE gert afturreka með ógnarlanga stefnu og kærir til Landsréttar „Eins rangt og það getur orðið“ að bankarnir hafi stungið lækkun í vasann Gagnaver gæti hitað upp hús Bolvíkinga Ríteil Kids hættir rekstri Bankaskatturinn á að skila sex milljörðum í ríkissjóð „Við erum ekkert æst í að fá nýjan skatt“ Loka bráðum á 3G-kerfið Sigurjón fékk heiðursverðlaun SVEF Bein útsending: Ársfundur SFS - Tækifæri á flekaskilum Kemi og Fálkinn Ísmar sameinast Breytingar á stjórn Sýnar Vill fresta atkvæðagreiðslunni til að greiða fyrir vaxtalækkun Þrotabú Wow air verður af hundruðum milljóna króna Ingunn nýr innri endurskoðandi borgarinnar Jóhann Már verður framkvæmdastjóri Wolt á Íslandi Innleiða verði „einhvers konar verðþak á olíu“ Vaxtahækkun í maí blasi við Sjá meira