Það er tapaður bolti í NBA ef þú gefur mömmu liðsfélaga fimmu á hliðarlínunni Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 27. febrúar 2018 21:30 Chris Paul og James Harden. Vísir/Getty
Chris Paul tapar vanalega ekki mörgum boltum í NBA-deildinni og er vanalega meðal þeirra leikstjórnanda sem passa hvað best upp á boltann. Paul náði því einu sinni að gefa 20 stoðsendingar í einum leik á síðasta tímabili án þess að tapa einum einasta bolta. Þá lék Chris Paul með Los Angeles Clippers en núna er hann í besta liði NBA-deildarinnar. Chris Paul og félagar í Houston Rockets unnu sinn þrettánda leik í röð á móti Utah Jazz í nótt og Chris Paul var með 15 stig, 7 stoðsendingar og 2 tapaða bolta. Hann var hinsvegar bara með einn tapaðan bolta þegar aðeins tólf sekúndur voru eftir af leiknum og sigurinn var í höfn. Chris Paul var þá með boltann og ákvað að gefa Monja Willis, móður James Harden, fimmu á sama tíma og hann hélt á boltanum. Monja Willis sat á gólfinu við hliðarlínuna en stóð upp og bað um fimmu frá Paul sem varð við þeirri ósk. Dómari leiksins gaf þeim engin grið og dæmdi um leið boltann af Chris Paul. Leikstjórnandi Houston Rockets fór ekki útaf vellinum sjálfur en telst hafa gert það um leið og hann snerti móður Harden sem var utan vallar. Það má sjá þetta hér fyrir neðan. Þetta var hárréttur dómur en fyndið atvik engu að síður. .@CP3pic.twitter.com/qnlsLeBZr6 — Houston Rockets (@HoustonRockets) February 27, 2018
NBA Mest lesið Segist „hafa dáið fjórum sinnum“ og er nánast óþekkjanlegur í dag Sport Í beinni: Ísland - Noregur | Stelpurnar okkar spila upp á stoltið Fótbolti Síðasti séns á að vinna milljónir Fótbolti Valdi Ísland fram yfir Noreg: „Ég er meiri Íslendingur“ Fótbolti Hneykslast á kostnaði við kveðjuveislu Þóris og Lio Handbolti Þegar náttúran kallar í miðjum klíðum Sport Danska þjóðin í áfalli: „Verra en okkar versta martröð“ Sport Fær ekki heimsmet sitt viðurkennt: „Þetta er kjánalegt“ Sport Stefán mætir Liverpool þrátt fyrir fráfall Jota Enski boltinn Sex hafa ekkert spilað á EM Fótbolti Fleiri fréttir Birkir Hrafn í NBA akademíunni „Þetta gerist rosa hratt“ Sengun í fantaformi í sumarfríinu Hægt að gista í glæsihúsi Michael Jordan Shai Gilgeous-Alexander og Angel Reese framan á 2K26 Sengun í fantaformi í sumarfríinu Jokic framlengir ekki að sinni Verður fimmti launahæsti íþróttamaður í heimi Fylkir og Valur í formlegt samstarf Mikil blóðtaka fyrir Valsmenn Sjö lið skiptust á sex leikmönnum Tyrese Haliburton missir af öllu næsta tímabili KR semur við ungan bandarískan framherja Hægt að skoða EuroBasket bikarinn og fá áritun hjá strákunum Þórsarar semja við Grikkja og Bandarikjamann Rauða pandan í NBA útskrifuð af sjúkrahúsi Helgi Magg hættir í Körfuboltakvöldi og semur við Grindavík Fær 2,7 milljarða á ári næstu fimm ár fyrir að spila ekki með liðinu Skórnir hennar seldust upp á mínútu Mike Brown sagður vera að taka við New York Knicks Sænsk landsliðskona til Grindavíkur Belgar vörðu Evrópumeistaratitilinn James tekur einn dans enn í það minnsta Körfuboltaspjald með Jordan seldist á 243 milljónir króna Einhenta undrið ekki í NBA Penninn á lofti í Keflavík Stólarnir búnir að semja við „DNA-ið í félaginu“ Tönnin slegin úr henni og var svo bannað að koma aftur inn á völlinn Fotios spilar 42 ára með Fjölni Cooper Flagg gerir sér grein fyrir pressunni sem verður á honum Sjá meira