Sjá um sérhæfða öryggisþjónustu á Keflavíkurflugvelli Samúel Karl Ólason skrifar 15. febrúar 2018 09:19 Ómar Brynjólfsson, nýr framkvæmdastjóri AVIÖR.
Öryggismiðstöðin hefur gert samninga við öll stærstu flugfélögin, sem fljúga um Keflavíkurflugvöll, um mjög sérhæfða öryggisþjónustu. Umfang verkefnisins er mjög mikið og hefur fyrirtækið því stofnað sérstakt svið utan um þennan rekstur undir nafninu AVIÖR. AVIÖR var sett á laggirnar í lok síðasta árs og er nú þegar orðið leiðandi einkafyrirtæki í öryggisgæslu á flugvellinum. Þetta kemur fram í tilkynningu. „Við sinnum mjög sérhæfðri öryggisþjónustu á Keflavíkurflugvelli. Við þjónustum flugfélög og hverja þá aðila sem þurfa aukalega öryggisþjónustu vegna sérkrafna sem ganga lengra en Evrópureglugerðir segja til. Við erum í góðu samstarfi við ISAVIA sem tók þá ákvörðun að bjóða ekki upp á þessa auka þjónustu þar sem það fellur fyrir utan lögbundið hlutverk þeirra,” segir Ómar Brynjólfsson, nýr framkvæmdastjóri AVIÖR. Um 60 starfsmenn starfa nú hjá AVIÖR og gera áætlanir ráð fyrir að sá fjöldi fari vel yfir 100 þegar nálgast háannatímabil á flugvellinum í sumar. AVIÖR er með skrifstofur í Reykjanesbæ og starfsaðstöðu á Keflavíkurflugvelli. Ómar segir að þetta hafi byrjað með verkefnum á vegum Air Canada í júní 2017. „Í framhaldinu var samið við ISAVIA um svokallaða SSSS leit (secondary security selection screening) fyrir íslensku flugfélögin. Við skrifuðum síðan í lok árs 2017 undir heildarsamninga beint við Icelandair og WOW um alla sérhæfða öryggisþjónustu á Keflavíkurflugvelli. Við sinnum einnig þeim bandarísku flugfélögum sem hafa flogið hingað undanfarin ár,” segir Ómar. „AVIÖR er í öflugu samstarfi við fremstu þekkingarfyrirtækin á heimsvísu í þessum geira um þjálfun, fræðslu og endurmenntun fyrir starfsmenn AVIÖR. Það eru gerðar miklar kröfur um gæði þjónustu og þannig fara allir starfsmenn í gegnum umfangsmikla þjálfun ásamt því sem kröfur um símenntun eru miklar. Í samræmi við reglur um flugöryggi eru gerðar reglubundnar úttektir á þjónustunni af óháðum aðilum. Við nýtum okkur einnig fremstu tæknilausnir sem standa til boða í þessum geira enda er Öryggismiðstöðin með gríðarlega sterkar lausnir í flugvallaröryggi,” segir Ómar enn fremur.
Mest lesið Hópuppsögn hjá Rapyd á Íslandi Viðskipti innlent Uppsagnir hjá Bláa lóninu Viðskipti innlent Segir vanda Icelandair djúpstæðari en samningar flugmanna Viðskipti innlent Helmingur Air Atlanta seldur úr landi Viðskipti innlent Greiða sér rúmlega tvo milljarða í arð Viðskipti innlent Bora eftir jarðhita á Tenerife Viðskipti erlent Verðbólga hjaðnar minna en vonir stóðu til Viðskipti innlent ESB sektar Temu um 28,7 milljarða króna Viðskipti erlent „Við þurfum að fara að spýta í lófana“ Viðskipti innlent Flugrisi eignast allan flugflota Air Atlanta Viðskipti innlent Fleiri fréttir Flugrisi eignast allan flugflota Air Atlanta Greiða sér rúmlega tvo milljarða í arð Fá að kaupa Pei og Motus „Við þurfum að fara að spýta í lófana“ Gervigreindargjöf til lýðræðisins Hópuppsögn hjá Rapyd á Íslandi Helmingur Air Atlanta seldur úr landi Uppsagnir hjá Bláa lóninu Segir vanda Icelandair djúpstæðari en samningar flugmanna Fljúga til Færeyja árið um kring Verðbólga hjaðnar minna en vonir stóðu til Verslunin Air lokar í Kringlunni Fundi frestað til morguns Beina því til Storytel að gæta varúðar í markaðssetningu Skipulagsbreytingar hjá Símanum Advania lýkur kaupum á Evolv Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Klíník og klíník í eina sæng Lokar Sjoppunni eftir sextán ára rekstur Tuttugu stærstu eiga 400 milljarða í öðrum félögum Reynir á þolmörk flugmanna og svigrúm Icelandair Voni að allir fái starfið aftur Fótboltastjörnur mokgræða á nikótínpúðum Fljúga daglega til Washington D.C. í sumar Kvarta til Persónuverndar vegna nýrrar gjaldtöku Sektir rafrettukóngs og eiganda söluturns lækkaðar verulega Verkfalli hafnaverkafólks í Sundahöfn aflýst Loka í Kringlunni Sjá meira