Arion kaupir tíund í sjálfum sér Samúel Karl Ólason skrifar 15. febrúar 2018 09:41 Arion banki hf. hefur samþykkt að kaupa 9,5 prósent af hlutabréfum í bankanum af Kaupskilum ehf., dótturfélagi Kaupþings ehf. Vísir/Stefán
Arion banki hf. hefur samþykkt að kaupa 9,5 prósent af hlutabréfum í bankanum af Kaupskilum ehf., dótturfélagi Kaupþings ehf. Í tilkynningu segir að kaupin séu í takt við ákvörðun hluthafafundar Arion banka þann 12. febrúar, þar sem ákveðið var að taka upp í samþykktir bankans tímabundna heimild stjórnarinnar til að kaupa til baka hlutabréf útgefin af bankanum. Í tilkynningu frá Arion segir að fyrirhugað sé að uppgjör fram fari þann 21. febrúar 2018. Tilboð Kaupskila til Arion banka er háð því skilyrði að uppgjör hafi átt sér stað á milli Kaupskila og íslenska ríkisins varðandi nýtingu Kaupskila á kauprétti 13 prósenta hlutar íslenska ríkisins í Arion banka. Hafi framangreindu skilyrði ekki verið fullnægt á uppgjörsdegi, getur Kaupskil frestað uppgjörsdeginum um allt að tíu daga. Komi til þess að uppgjörsdeginum sé frestað hækkar kaupverð hinna seldu hluta í samræmi við skilmála samnings Kaupskila og íslenska ríkisins. Kaupréttur Kaupskila byggir á samningi við íslenska ríkið frá 3. september 2009. Arion mun greiða 90.087 krónur á hlut og er það sama verð og Kaupskil greiðir íslenska ríkinu við nýtingu kaupréttarins. Í tilkynningunni segir einnig að heildarkaupverð sé rúmlega 17,1 milljarður króna og sú upphæði komi til frádráttar arðgreiðslu sem samþykkt var á hluthafafundinum 12. febrúar og getur að hámarki verið 25 milljarðar króna.
Mest lesið Hópuppsögn hjá Rapyd á Íslandi Viðskipti innlent Uppsagnir hjá Bláa lóninu Viðskipti innlent Segir vanda Icelandair djúpstæðari en samningar flugmanna Viðskipti innlent Helmingur Air Atlanta seldur úr landi Viðskipti innlent Greiða sér rúmlega tvo milljarða í arð Viðskipti innlent Bora eftir jarðhita á Tenerife Viðskipti erlent Flugrisi eignast allan flugflota Air Atlanta Viðskipti innlent Verðbólga hjaðnar minna en vonir stóðu til Viðskipti innlent ESB sektar Temu um 28,7 milljarða króna Viðskipti erlent „Við þurfum að fara að spýta í lófana“ Viðskipti innlent Fleiri fréttir Flugrisi eignast allan flugflota Air Atlanta Greiða sér rúmlega tvo milljarða í arð Fá að kaupa Pei og Motus „Við þurfum að fara að spýta í lófana“ Gervigreindargjöf til lýðræðisins Hópuppsögn hjá Rapyd á Íslandi Helmingur Air Atlanta seldur úr landi Uppsagnir hjá Bláa lóninu Segir vanda Icelandair djúpstæðari en samningar flugmanna Fljúga til Færeyja árið um kring Verðbólga hjaðnar minna en vonir stóðu til Verslunin Air lokar í Kringlunni Fundi frestað til morguns Beina því til Storytel að gæta varúðar í markaðssetningu Skipulagsbreytingar hjá Símanum Advania lýkur kaupum á Evolv Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Klíník og klíník í eina sæng Lokar Sjoppunni eftir sextán ára rekstur Tuttugu stærstu eiga 400 milljarða í öðrum félögum Reynir á þolmörk flugmanna og svigrúm Icelandair Voni að allir fái starfið aftur Fótboltastjörnur mokgræða á nikótínpúðum Fljúga daglega til Washington D.C. í sumar Kvarta til Persónuverndar vegna nýrrar gjaldtöku Sektir rafrettukóngs og eiganda söluturns lækkaðar verulega Verkfalli hafnaverkafólks í Sundahöfn aflýst Loka í Kringlunni Sjá meira