Lífið

Ekkert „Wild Card" í úrslitum Söngvakeppninnar

Birgir Olgeirsson skrifar
Aron Hannes mun flytja lag sitt Golddigger í úrslitum Söngvakeppninnar.
Aron Hannes mun flytja lag sitt Golddigger í úrslitum Söngvakeppninnar. RÚV
Nú liggur fyrir hvaða lög mun keppa til úrslita í Söngvakeppni Sjónvarpsins í ár. Það eru lögin Golddigger með Aroni Hannesi, Hér með þér með Áttunni, Í stormi með Degi Sigurðssyni, Kúst og fæjó með Heimilistónum, Aldrei gefast upp með Fókus hópnum, og Heim með Ara Ólafssyni. Framkvæmdastjórn Söngvakeppninnar hefur leyfi til að hleypa einu þeirra laga í úrslitin sem sátu eftir ef það er talið eiga sérstakt erindi þangað. Birna Ósk Hansdóttir, framleiðstjóri RÚV, segir í samtali við Vísi að í ár verði engu lagi hleypt áfram sem svonefndu „Wild Card-lagi“ í úrslitin þar sem ekki þótti tilefni til þess. 

RÚV leggur nú lokahönd á val dómnefndarinnar sem mun hafa fimmtu prósenta vægi á móti símakosningu almennings á úrslitakvöldinu. Tvö efstu lögin, sem hljóta flest atkvæði frá dómnefnd og almenningi, mætast svo í einvígi þar sem hrein símakosning almennings ræður hvort þeirra verður framlag Íslands í söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva, Eurovision, sem fer fram í Lissabon í Portúgal í maí næstkomandi. 

Í dómnefnd situr fagfólk með sérhæfingu í sviði tónlistar, svo sem laga- eða textahöfundar, söngvarar, hljóðfæraleikarar, upptökustjórar, plötusnúðar eða aðrir sem hafa atvinnu af tónlist eða tónlistarsköpun. 

Gæta skal jafnvægis í kynjahlutföllum, aldri og bakgrunni þeirra sem sitja í dómnefnd.

Fulltrúar í dómnefnd mega ekki hafa náin tengsl við höfunda eða flytjendur og ekki hafa unnið við gerð þeirra laga sem keppa til úrslita í Söngvakeppninni 2018. Þeir skulu kjósa eftir eigin sannfæringu og ávallt hafa faglegt mat að leiðarljósi.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.