Með þrennu í öllum leikjunum sínum á móti litlu systur Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 1. febrúar 2018 15:00 Helena Sverrisdóttir. Vísir/Ernir
Helena Sverrisdóttir stimplaði sig aftur inn í Domino´s deild kvenna í gær með því að ná þrefaldri tvennu í sigri á toppliðinu á Ásvöllum. Þetta var fyrsti leikur hennar eftir rúmlega mánaðardvöl í Slóvakíu. Helena endaði leikinn með 12 stig, 13 fráköst og 17 stoðsendingar en Haukakonur unnu þar öruggan sigur. Helena var líka með þrennu í síðasta leiknum fyrir Slóvakíuför en sá var á mótim Skallagrími um miðjan desember. Helena var þarna að mæta litlu systur sinni en Guðbjörg Sverrisdóttir sem er fyrirliði Valsliðsins. Helena hefur verið með þrennu í öllum þremur leikjum sínum á móti litlu systur í vetur. Meðaltöl Helenu í Valsleikjunum í vetur eru 11,7 stig, 13,7 fráköst og 14,7 stoðsendingar. Til að vera með þrennu að meðaltali á móti Val í deildarleikjum tímabilsins þarf Helena „bara“ að vera með 5 stig en hvorki að taka frákast eða gefa stoðsendingu. Valur er eina liðið í deildinni sem Helena nær að vera með þrennu að meðaltali á móti en hún er með 21,5 stig, 16,0 fráköst og 9,5 stoðsendingar að meðaltali á móti Skallagrími. Hún hefur líka verið með þrjár af fjórum þrennum sínum á móti Val. Haukaliðið hefur ennfremur unnið tvo af þremur leikjum sínum á móti Val og er því í efsta sæti deildarinnar á betri árangri í innbyrðisleikjum Hauka og Vals. Valskonur voru á toppnum fyrir leikinn.Leikir Helenu á móti Valsliðinu í Domino´s deild kvenna í vetur:18. október á Ásvöllum 11 stig, 13 fráköst og 16 stoðendingar [36 í framlagi]2. desember á Hlíðarenda 12 stig, 15 fráköst og 11 stoðendingar [30 í framlagi]31. janúar á Ásvöllum 12 stig, 13 fráköst og 17 stoðendingar [33 í framlagi]
Dominos-deild kvenna Mest lesið Sjáðu alblóðugan Kolbein lúskra á Tékkanum Sport Japan - Ísland 1-0 | Málning þornar Fótbolti „Vissi ekki að þetta væri svona alvarlegt“ Körfubolti „Hann vildi taka fimmtu spyrnuna“ Fótbolti Van Dijk sendi Slot kveðju Enski boltinn HM-minningin: Barnalegur Pelé féll á prófinu Fótbolti Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Körfubolti Byrjunarliðin í Tókýó: Stefán Teitur og Liverpool-maður fyrirliðar Fótbolti Anton Haukur heimsmeistari í Varsjá Sport Varði ekki eitt einasta skot en vann titilinn Fótbolti Fleiri fréttir Ingvi tekur slaginn áfram með Ármanni „Vissi ekki að þetta væri svona alvarlegt“ Sló út meistarana eftir áskorun þjálfarans Aðstoðaði Baldur en tekur nú við í Þorlákshöfn Martin og félagar tóku fyrsta skref að úrslitum Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Tryggvi tryggði sigur á móti Elvari Rétt unnu botnliðið í lokaumferðinni Doncic flytur félag til Rómar Hjalti stýrir Skagamönnum Spurs knúðu fram oddaleik Martin valinn mikilvægastur Emil Barja tekur við Stjörnunni Pétur Már tekur við Grindavík Gerir ekki ráð fyrir heimkomu Martin magnaður í oddaleik Ægir hjá Stjörnunni næstu tvö tímabil Collin Pryor í Álftanes Meistararnir einum sigri frá úrslitaeinvíginu Grindavík endursemur við fjóra leikmenn: Beeman áfram í gulu New York Knicks í úrslitin í fyrsta sinn á þessari öld Óvænt ræða frá goðsögninni blés San Antonio byr í brjóst Martin stigahæstur og tryggði oddaleik Tryggvi upp fyrir Elvar fyrir uppgjörið á Tenerife Einum sigri frá því að fara í úrslit í fyrsta sinn á öldinni Elvar byrjar vel hjá sínu nýja félagi Halldór Garðar kveður Keflavík Martin stigahæstur í svekkjandi tapi Úr fríi á Spáni til Íslands en endaði aftur á Spáni Sjá meira