Bíó og sjónvarp

Hasarinn ræður ríkjum í nýrri Mission Impossible stiklu

Samúel Karl Ólason skrifar
Sé eitthvað að marka stikluna virðist Ethan Hunt (Tom Cruise) vera kominn, enn einu sinni, í vandræði við yfirvöld Bandaríkjanna og eiga gamlar ákvarðanir að koma í vakið á honum.

Það er ansi mikið um hasar í fyrstu stiklu myndarinnar Mission: Impossible - Fallout. Eltingaleikir á þyrlum, mótorhjólum og bílum, slagsmál, klettaklifur, skothríð og dass af tilfinningum.

Sé eitthvað að marka stikluna virðist Ethan Hunt (Tom Cruise) vera kominn, enn einu sinni, í vandræði við yfirvöld Bandaríkjanna og eiga gamlar ákvarðanir að koma í vakið á honum.

Með honum eru auðvitað liðsfélagar hans þeir Neji Dunn og Luther Stickell, sem leiknir eru af Simon Pegg og Ving Rhames. Auk þeirra eru þau Rebecca Ferguson, Henry Cavill, Michelle Monaghan, Angela Bassett og Alec Baldwin einnig í myndinni.

Myndin verður frumsýnd í júlí.

Fleiri fréttir

Sjá meira

×