Utanríkisráðherra Bandaríkjanna segir Rússa ábyrga fyrir efnavopnaárásum í Sýrlandi Kjartan Kjartansson skrifar 23. janúar 2018 18:48 Tillerson sagði að Rússar ættu að sitja hjá í öryggisráði SÞ ef þeir treystu sér ekki til styðja ályktanir gegn notkun efnavopna í Sýrlandi. Vísir/AFP
Rússar bera á endanum ábyrgð á notkun efnavopna í Sýrlandi, að sögn Rex Tillerson, utanríkisráðherra Bandaríkjanna. Grunur leikur á að efnavopnaárás hafi verið gerð nærri Damaskus, höfuðborg Sýrlands, í vikunni. Fullyrðir Tillerson að Rússar brjóti gegn ákvæðum samkomulags um að fjarlæga skuli efnavopn frá Sýrlandi sem gert var árið 2013. Rússnesk stjórnvöld aðstoði ríkisstjórn Bashars al-Assad forseta við að brjóta alþjóðlega sáttmála gegn notkun efnavopna, að því er segir í frétt AP-fréttastofunnar. Rússar verði að hætta að beita neitunarvaldi sínu í öryggisráði Sameinuðu þjóðanna gegn ályktunum um að þeir sem beiti efnavopnum verði dregnir til ábyrgðar. Ummælin lét Tillerson falla á alþjóðlegum fundi í París þar sem tuttugu og fjögur ríki ætla að stofna samtök sem eiga að finna þá sem beita efnavopnum og refsa þeim. Sýrlensk stjórnvöld eru sökuð um að hafa beitt eiturgasi í árás á úthverfi Damaskusar þar sem uppreisnarmenn fara með völdin í gær. Því neita þau hins vegar. Rússar fullyrða að öfgamenn hafi beitt efnavopnum í Sýrlandi áður.
Sýrland Mest lesið Gerðu vopnin upptæk og sviptu hann leyfinu Innlent Dóttirin hafi viljað „fara“ fyrst Innlent Trump sagður beita sér í ESB-umræðunni hér á landi Innlent Ráðleggur Þorgerði fram að þjóðaratkvæðagreiðslu Innlent Krafði Sigmund svara varðandi MAGA og uppskar skammir Innlent Skólastjórinn umdeildi snýr ekki aftur Innlent Fundar með lækni frá Úkraínu sem þjónar til borðs á Íslandi Innlent Rannsaka kynferðisbrot á Akureyri Innlent Telja eldinn hafa kviknað út frá hleðslutæki Innlent Óljóst hvað verður um Kjartan og Mörtu Innlent Fleiri fréttir Bera kennsl á fleiri möguleg fórnarlömb lögreglumanns Snúa sér aftur að kjarnorku fimmtán árum eftir Fukushima Gefa ekki eftir fyrr en „óvinurinn hefur verið gersigraður“ Ræddi við Pútín í síma og íhugar að slaka frekar á refsiaðgerðum Íranir enn vígreifir „Höfum ekki unnið nóg“ Vaxandi ótti við langvarandi átök Skutu niður eldflaugar í landhelgi Tyrklands Rannsaka heimagerða sprengju sem hryðjuverk Felldu sex í árás á enn einn bátinn Eldhaf í Glasgow Kveikt í púðurtunnu í Mið-Austurlöndum Segir sig og Netanyahu munu ákveða hvenær þeir hætta Sonur Khamenei nýr leiðtogi Írans Ræddust við í síma í kjölfar ummæla Trump um Breta Segir af sér vegna samnings Pentagon við gervigreindarfyrirtæki Til skoðunar hvort um hryðjuverk sé að ræða Sprenging við bandaríska sendiráðið í Osló Hóta öllum mögulegum arftökum Khamenei „Þess í stað eru þeir ræflar svæðisins“ Leiðtogar kalla eftir breytingum á erfðaröðinni Soham-morðinginn látinn Segir kröfu Bandaríkjanna um skilyrðislausa uppgjöf Íran draum Segir Kúbu brátt munu falla Rússar hjálpa Írönum að finna skotmörk Segir ekkert annað en uppgjöf Írana koma til greina Birtu viðtölin um Trump sem vantaði í Epstein-skjölin Hættir við framboð sitt í kjölfar játningar um framhjáhald Telja líklegt að þeir hafi drepið írönsku skólastúlkurnar Skurðlæknir í Lundúnum fjarlægði blöðruhálskirtil á Gíbraltar Sjá meira