Viðar Guðjohnsen vill einnig í slaginn Jakob Bjarnar skrifar 10. janúar 2018 15:22 Viðar Guðjohnsen gefur kost á sér í leiðtogakjör Sjálfstæðismanna í borginni.
Viðar Guðjohnsen hefur tekið þá ákvörðun að gefa kost á sér í leiðtogakjör Sjálfstæðismanna vegna komandi sveitarstjórnarkosninga sem fram fram 27. janúar. Viðar bætist þá í kátan hóp sem fyrir er; Eyþór Arnalds, Áslaug Friðriksdóttir, Kjartan Magnússon og Vilhjálmur Bjarnason. Þessi öll hafa gefið sig fram sem kandídatar í að leiða Sjálfstæðisflokkinn í Reykjavík. Viðar, sem kallaður er Viðar Guðjohnsen eldri, innan flokksins, er ekki vel þekktur utan hans þó hann hafi látið til sín taka innan vébanda Sjálfstæðisflokksins, eins og sjá má að neðan. Framboðsfrestur rennur út nú eftir hálftíma, klukkan 16:00, en oft hefur það gerst að menn hafa skilað inn framboði á síðustu stundu. Leiðtogakjörið fer fram þann 27. janúar.Uppfært 16:25 Meðfylgjandi tilkynning barst frá Viðari eftir að þessi frétt birtist þar sem hann kynnir sig nánar til sögunnar og stefnumál sín, svohljóðandi:Viðar Guðjohnsen, leigusali og athafnamaður, hefur ákveðið að gefa kost á sér í leiðtogakjöri Sjálfstæðisflokksins. Vill Viðar gefa flokksmönnum færi á að kjósa sterkan og stefnufastan leiðtoga með skýrar áherslur.Telur Viðar að opinber gjöld, skattar og regluverk séu farin að hamla nýbyggingu íbúðarhúsnæðis. Mikilvægt er að taka til í þeirri óreiðu sem einkennir Reykjavíkurborg í dag. Fjármálin eru í ólestri á sama tíma og núverandi meirihluti eys fjármunum í gæluverkefni sem eru ekki til þess fallin að leysa þau miklu vandamál sem steðja að borginni. Nauðsynlegt er að bjóða upp á valkost sem er tilbúinn að taka til í rekstrinum og skera niður í því óhófi sem hefur verið stundað síðustu ár. Of lengi hefur núverandi meirihluti ausið miklu fjármagni í yfirbyggingu, nefndir og gæluverkefni sem betur færu í grunnstoðir borgarinnar eða í hendur harðduglegra skattgreiðenda sem núverandi meirihluti vill reyna að mjólka um hverja krónu í gæluverkefni sín.Samgöngumál höfuðborgarinnar eru í algjörum ólestri og skapa mikla og óþarfa mengun. Rándýr verkefni á borð við borgarlínu þarf að stöðva og leggja þarf þess í stað áherslu á betri vegi, umferð sem flæðir og skattalega hvata fyrir atvinnuuppbyggingu í efri byggðum. Skaði jafnaðarmanna á samgöngukerfinu er mikill og hugmyndafræði þeirra sem gengur út á að neyða fólk til þess að taka strætó hefur beðið algjört skipbrot. Reykjavík er höfuðborg landsmanna og flugvöllurinn í Reykjavík er flugvöllur allra landsmanna og tenging landsmanna við höfuðborgina. Flugvöllurinn á að vera þar sem hann er.Viðar er fæddur 14. Janúar 1958 í Reykjavík. Foreldrar: Pétur Guðjohnsen, sjómaður og Gréta Guðjohnsen, húsmóðir. Eiginkona: Margrét Björg Júlíusdóttir, kennari (fædd 1955). Börn: Viðar Guðjohnsen, lyfjafræðingur (fæddur 1983), Júlíus Pétur Guðjohnsen, athafnamaður (fæddur 1986), Andri Valur Guðjohnsen, tölvunarfræðingur (fæddur 1989).Á sínum yngri árum var Viðar Guðjohnsen afreksmaður í íþróttum, júdómeistari og í fyrsta hóp íslenskra ólympíufara í júdó 1976, þá aðeins átján ára að aldri. Viðar stofnaði með bróður sínum fyrstu líkamsræktarstöð sinnar tegundar á Íslandi í byrjun níunda áratug síðustu aldar, Orkubót, þá rétt um tvítugur. Þrítugur var hann orðinn umsvifamikill í byggingariðnaði og frumkvöðull í byggingu og leigu stúdíóíbúða sem á hug hans og hjarta enn þann dag í dag. Umræður um stjórnmálaályktun - Viðar Guðjohnsen from Sjálfstæðisflokkurinn on Vimeo.
Sveitarstjórnarkosningar Tengdar fréttir Vala fer ekki fram í Reykjavík Komin undan feldi og svarið er nei. 10. janúar 2018 11:37 Eyþór Arnalds gefur kost á sér í borginni Eyþór Arnalds, kaupsýslumaður og fjárfestir gefur kost á sér í leiðtogaprófkjöri Sjálfstæðisflokksins í borginni. 9. janúar 2018 17:15 Vilhjálmur Bjarnason fer fram í leiðtogakjöri Sjálfstæðisflokksins Vilhjálmur Bjarnason, fyrrverandi þingmaður Sjálfstæðisflokksins og lektor við Háskóla Íslands, ætlar að bjóða sig fram í leiðtogakjöri Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík. 10. janúar 2018 11:54 Mest lesið Telur núna sannað að fundin sé hin rétta Brattahlíð Eiríks rauða Innlent Tugir slösuðust vegna skýstróka á Sikiley Innlent Vill auka aðgengi að verkjalyfjum Innlent Halla Gunnars svarar fyrir sig á Sprengisandi Innlent Braust inn með hníf í annarri og hamar hinni Innlent Suðaustan stormur og gul viðvörun Veður Vill nýjan Úkraínuforseta Erlent Hútar sagðir ábyrgir fyrir árás á flugvöll Erlent Á annað hundrað sektaðir Innlent Vilja bílastæðin upp úr skotgröfunum Innlent Fleiri fréttir Halla Gunnars svarar fyrir sig á Sprengisandi Tugir slösuðust vegna skýstróka á Sikiley Braust inn með hníf í annarri og hamar hinni Telur núna sannað að fundin sé hin rétta Brattahlíð Eiríks rauða Kalla eftir aðgerðum ekki yfirlýsingum Vill auka aðgengi að verkjalyfjum „Ég sé ekki að íslenskt samfélag vilji kasta því fyrir róða“ Vilja bílastæðin upp úr skotgröfunum Á annað hundrað sektaðir Þrír réðust á einn Halla ætli að sölsa undir sig ASÍ Guðmundur Ari nýr varaformaður Samfylkingar „Vona nú bara að hann fari að jafna sig á tapinu“ Bein útsending: Samtal um framtíðina Opið hús í Höfða í dag Kristrún flytur ræðu á flokksstjórnarfundi Eldur í álverinu í Straumsvík Áfall fyrir Evrópu, hvatning um að jafna sig á tapi og sögulegt afmæli Guðlaugur Þór villtist inn í myndver Þyrlulaus í nokkrar klukkustundir Segjast geta hafið framkvæmdir á morgun Keyrði á og flúði en skildi númeraplötu eftir Seldu óvart hjól viðskiptavinar Sigurveig I. Jónsdóttir er látin Þingmenn laumuðust í laugina eftir lokun Katrín ekki í forsetaslaginn og deilur skekja ASÍ fyrir þing Bein útsending: Af minkum og mönnum Þau vilja stýra Fjölmiðlanefnd Þrír unglingar á breyttu hjóli en VÍS ber samt ábyrgð Einn fékk fimm ár, annar átján mánuði en þriðji sýknaður Sjá meira
Eyþór Arnalds gefur kost á sér í borginni Eyþór Arnalds, kaupsýslumaður og fjárfestir gefur kost á sér í leiðtogaprófkjöri Sjálfstæðisflokksins í borginni. 9. janúar 2018 17:15
Vilhjálmur Bjarnason fer fram í leiðtogakjöri Sjálfstæðisflokksins Vilhjálmur Bjarnason, fyrrverandi þingmaður Sjálfstæðisflokksins og lektor við Háskóla Íslands, ætlar að bjóða sig fram í leiðtogakjöri Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík. 10. janúar 2018 11:54