Lægðin margumrædda ekki lokið sér af Stefán Ó. Jónsson skrifar 15. janúar 2018 06:20 Svona var um að litast á Þingvöllum í gær. Skyggni lítið sem ekkert. Vísir/SÓJ
Lægðin sem fór yfir landið í gær er nú að koma að norðurströndinni aftur og mun því hvessa fyrir norðan með aukinni úrkomu. Það verður því norðvestan 13 til 23 m/s á vestanverðu landinu og hvassast á Vestfjörðum og Ströndum. Sunnantil á landinu er norðvestanáttin óðum að taka yfir eftir suðvestanáttina enda kominn þar „mun minni vindur og úrkoma“ að sögn Veðurstofunnar. „Lægðin margumrædda hefur ekki lokið sér af með okkur ennþá því að í dag kemur hún inná Norðurland og færist síðan til austurs,“ segir á vef Veðurstofunnar. Þá dregur úr vindi seinnipartinn, víða norðvestan 8 til 15 m/s seint í kvöld, en hvassara suðaustanlands. Lægðin færir sig svo síðan aftur norður fyrir land í nótt og því hvessir aftur með ofankomu fyrir norðan á morgun. Eins er útlit að hvessi með ofankomu um allt vestanvert landið um tíma á morgun og því gott að fylgjast vel með spám því „minniháttar breytingar á staðsetningu lægðarinnar geta haft miklar breytingar í för með sér hvar veður verður vont á hverjum tíma,“ eins og Veðurstofan orðar það. Frostið verður yfirleitt á bilinu 0 til 7 stig.Veðurhorfur á landinu næstu dagaÁ þriðjudag:Norðvestan 10-18 m/s með snjókomu eða éljum, hvassast á annesjum vestast, en mun hægari og bjartviðri S- og A-til. Frost víða 0 til 10 stig, kaldast inn til landsins.Á miðvikudag:Norðaustlæg átt 3-10 m/s og víða dálítil él. Hiti breytist lítið.Á fimmtudag, föstudag og laugardag:Norðlægar áttir og snjókoma eða él á norðanverðu landinu, en úrkomulítið syðra. Frost 0 til 10 stig, mildast við ströndina.Á sunnudag:Útlit fyrir vaxandi suðaustanátt með úrkomu og hlýnandi veðri.
Veður Mest lesið Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða Innlent Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Innlent Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Innlent Svínum sleppt út í Saltvík Innlent „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Innlent Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Innlent Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Innlent Enginn handtekinn vegna hótana í garð Þorgerðar Innlent „Þetta er smjörklípa“ Innlent Tveir á slysadeild í kjölfar bruna á hóteli í miðbænum Innlent Fleiri fréttir Svínum sleppt út í Saltvík „Þetta er smjörklípa“ Minningarstundir og ESA undirbýr dómsmál Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Aðild að ESB hafi aldrei verið markmið í sjálfu sér Einn grunaður um íkveikju á Center Hotel Skjaldbreið Bruninn mikið áfall og tjónið líklega verulegt í versluninni Um þriðjungur þjóðarinnar horfði á síðasta fréttatímann Flúði hótelherbergið vegna brunans og gleymdi tönnunum Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Eldri borgarar fái sanngjarnari tekjur þrátt fyrir aukin gjöld Gestir fluttir á önnur hótel vegna skemmda eftir brunann Enginn handtekinn vegna hótana í garð Þorgerðar Lægð nálgast og hviður geta orðið bílum skeinuhættar Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða „Hér var enginn glæpur og ekki heldur gáleysi“ Tveir á slysadeild í kjölfar bruna á hóteli í miðbænum Tvær líkamsárásir í miðbæ í nótt Hálft ár fyrir ræktun á þriðja hundrað kannabisplantna Kynna úrræði sem eigi að liðka fyrir kjarasamningum „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Allir níu áfram í haldi Mátti ekki gefa blóð í gær en gerði það í dag Staðan hafi ekki verið betri á þessari öld Halla verður viðstödd útför Haraldar Ætli að leggja áherslu á bókun 35 Viðreisn tapar fylgi Sigríður Þorvaldsdóttir látin Hópuppsögn á sviði heilsu- og líkamsræktar Sjá meira