Forsætisráðherra Spánar hótar Katalónum Kjartan Kjartansson skrifar 15. janúar 2018 13:22 Mariano Rajoy hugnast ekki að Carles Puigdemont verði leiddur aftur til valda í Katalóníu.
Ríkisstjórn Spánar mun áfram stjórna málefnum Katalóníu ef nýkjörið héraðsþing þar velur sér Carles Puigdemont aftur sem forseta héraðsstjórnarinnar. Þessu hótaði Mariano Rajoy, forsætisráðherra Spánar, í dag. Stjórnvöld í Madrid leystu upp héraðsstjórn Katalóníu í kjölfar þess að leiðtogar hennar lýstu einhliða yfir sjálfstæði héraðsins eftir umdeilda þjóðaratkvæðagreiðslu í haust. Puigdemont fór í útlegð til Belgíu þegar hann og fleiri leiðtogar héraðsstjórnarinnar voru ákærðir fyrir uppreisn. Rajoy boðaði jafnframt til nýrra kosninga í Katalóníu sem fóru fram 21. desember. Flokkar sem styðja sjálfstæði Katalóníu unnu nauman meirihluta. Sjálfstæðissinnar segja að þeir hafi hug á að gera Puigdemont, sem á yfir höfði sér handtöku ef hann snýr aftur til Spánar, að forseta héraðsstjórnarinnar á nýjan leik. Katalónska þingið kemur saman í vikunni og búist er við því að það kjósi nýjan forseta fyrir lok þessa mánaðar. „Það er út í hött að flóttamaður í Brussel skuli sækjast eftir að verða forseti héraðsstjórnar Katalóníu, það er almenn skynsemi,“ sagði Rajoy á fundi Lýðflokksins í Madrid í dag. Hótaði hann því að landsstjórnin myndi þá áfram fara með málefni héraðsins. Yfirvöld myndu jafnframt skjóta máli hans strax til dómstóla, að því er segir í frétt Reuters.
Sjálfstæðisbarátta Katalóníu Mest lesið Nóg sé komið af Trump Erlent Musk segi ósatt um Starlink Erlent Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Innlent Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Erlent Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Erlent Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Erlent Hörður Arnarsson og náttúru- og innviðagjald á Sprengisandi Innlent Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Erlent Fluttur á bráðamóttöku eftir líkamsárás í Skeifunni Innlent Fleiri fréttir Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Segist hafa tryggt staðbundið vopnahlé „Loka“ Vesturbakkanum eftir árás á hermenn Einn látinn eftir mögulega hryðjuverkaárás Thomas Markle sakaður um vörslu barnaníðsefnis Enn einu skipinu sökkt á Svartahafi Flugsamgöngur í lamasessi vegna öflugs fellibyls Saka Kanadamenn um afskipti af kosningunum „Niðurstaðan er sú að hann setti þetta aftur á“ Ákærður fyrir að nauðga sautján ára stúlku en neitar sök Lögðu andstæðingunum vafasöm orð í munn með gervigreind Vilja afsökunarbeiðni frá Kim vegna jarðsprengju Ætlar að halda þingsætinu þrátt fyrir rannsókn á svikum Sjá meira