Keflavík vann toppslaginn og minnkaði forskotið niður í tvö stig Anton Ingi Leifsson skrifar 17. janúar 2018 21:12 Keflavík fagnar bikarnum um helgina og fagnaði einnig í kvöld. vísir/hanna
Keflavík minnkaði forskot Vals á toppi Dominos-deildar kvenna niður í tvö stig þegar Keflavík vann viðureign liðanna í TM-höllinni í Keflavík í kvöld, 82-71. Brittany Dinkins lék á alls oddi í liði nýkrýndra bikarmeistara Keflavíkur, en hún skoraði alls 38 stig. Keflavík er með 22 stig, jafn mörg og Haukar sem eru í öðru sætinu, en Haukar eru með betri innbyrðisviðureignir. Aalyah Whiteside skoraði 35 stig fyrir Val, en þetta var fjórði tapleikur Vals á tímabilinu. Deildin er afar jöfn og spennandi, en það stefnir í rosalegan endasprett. Haukar lentu í engum vandræðum með Njarðvík að Ásvöllum í kvöld. Haukarnir byrjuðu af krafti og leiddu 45-27 í hálfleik. Eftirleikurinn varð auðveldur. Að endingu varð munurinn 32 stig, en Whitney Michelle Frazier var stigahæst með 27 stig. Dýrfinna Arnardóttir gerði 19 stig, en Haukar eru í öðru sæti deildarinnar með 24 stig. Shalonda Winton gerði átján stig fyrir gestina úr Reykjanesbæ sem sitja sem fastast á botni deildarinnar án stiga. Bikarliðið mikla ekki að ná sér á strik í deildinni. Snæfell vann níu stiga sigur á grönnum sínum í Skallagrím, 82-71, en Snæfell var fjórum stigum yfir í hálfleik, 37-33. Kristen McCarthy var frábær í liði Snæfells. Hún skoraði 37 stig og tók átta fráköst. Snæfell er með jafn mörg stig og Skallagrímur í sjötta til sjöunda sæti deildarinnar. Carmen Tyson-Thomas skoraði 39 stig fyrir Skallagrím, en athygli vakti að Skallagrímur var -15 með hana inni á vellinum.
Dominos-deild kvenna Mest lesið Sjáðu alblóðugan Kolbein lúskra á Tékkanum Sport Japan - Ísland 1-0 | Málning þornar Fótbolti „Vissi ekki að þetta væri svona alvarlegt“ Körfubolti „Hann vildi taka fimmtu spyrnuna“ Fótbolti Van Dijk sendi Slot kveðju Enski boltinn HM-minningin: Barnalegur Pelé féll á prófinu Fótbolti Byrjunarliðin í Tókýó: Stefán Teitur og Liverpool-maður fyrirliðar Fótbolti Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Körfubolti Anton Haukur heimsmeistari í Varsjá Sport Varði ekki eitt einasta skot en vann titilinn Fótbolti Fleiri fréttir Ingvi tekur slaginn áfram með Ármanni „Vissi ekki að þetta væri svona alvarlegt“ Sló út meistarana eftir áskorun þjálfarans Aðstoðaði Baldur en tekur nú við í Þorlákshöfn Martin og félagar tóku fyrsta skref að úrslitum Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Tryggvi tryggði sigur á móti Elvari Rétt unnu botnliðið í lokaumferðinni Doncic flytur félag til Rómar Hjalti stýrir Skagamönnum Spurs knúðu fram oddaleik Martin valinn mikilvægastur Emil Barja tekur við Stjörnunni Pétur Már tekur við Grindavík Gerir ekki ráð fyrir heimkomu Martin magnaður í oddaleik Ægir hjá Stjörnunni næstu tvö tímabil Collin Pryor í Álftanes Meistararnir einum sigri frá úrslitaeinvíginu Grindavík endursemur við fjóra leikmenn: Beeman áfram í gulu New York Knicks í úrslitin í fyrsta sinn á þessari öld Óvænt ræða frá goðsögninni blés San Antonio byr í brjóst Martin stigahæstur og tryggði oddaleik Tryggvi upp fyrir Elvar fyrir uppgjörið á Tenerife Einum sigri frá því að fara í úrslit í fyrsta sinn á öldinni Elvar byrjar vel hjá sínu nýja félagi Halldór Garðar kveður Keflavík Martin stigahæstur í svekkjandi tapi Úr fríi á Spáni til Íslands en endaði aftur á Spáni Sjá meira