Landsbankinn kominn með tillögur að nýjum höfuðstöðvum í hendurnar Tryggvi Páll Tryggvason skrifar 20. janúar 2018 18:00 Höfuðstöðvar Landsbankans hafa um áratugaskeið verið í Landsbankahúsinu í miðborg Reykjavíkur.
Frestur sem sjö arkitektateymi fengu til að skila inn frumtillögum að hönnun nýbyggingar fyrir Landsbankann við Austurhöfn í Reykjavík rann út í gær. Öll nema eitt skiluðu inn tillögum til bankans í gær. Samkvæmt upplýsingum frá Landsbankanum munu bankaráð bankans og bankastjórn nú fara yfir tillögurnar. Þeim til ráðgjafar verður þriggja manna ráðgjafaráð sem í sitja G. Oddur Víðisson arkitekt, Halldóra Vífildóttir arkitekt og Valgeir Valgeirsson verkfræðingur. Reikna má með að val á tillögu verði tilkynnt í lok febrúar. Í september á síðasta ári auglýsti bankinn eftir arkitektum til að hanna nýbygginguna. Alls lýstu 26 arkitektateymi yfir áhuga á að taka þátt í hönnun hússins en sjö teymi voru valin til þess að skila inn tillögum. Upphaflega fengu teymin sjö frest til 11. janúar til þess að skila inn tillögum en fresturinn var framlengdur til 19. janúar. Afþakkaði eitt teymana boð bankans um að skila inn tillögu. Teymin sem fengin voru til þess að skila in tillögum en MVRDV og Basalt arkitektar skiluðu ekki inn tillögu:• Arkþing og C.F. Møller• BIG og Arkiteó í samstarfi við BIG Engineering, VSÓ ráðgjöf, Dagný Land Design og Andra Snæ Magnason• Henning Larsen og Batteríið arkitektar• Kanon arkitektar ehf. og Teiknistofan Tröð ehf.• MVRDV og Basalt arkitektar• PKdM arkitektar• Teymið - A2F arkitektar, Gríma arkitektar, Kreatíva teiknistofa, Landmótun og TriviumHér má sjá fyrirhugaða staðsetningu nýbyggingar Landsbankans sem lituð er blá. Harpa er í forgrunni.Mynd/LandsbankinnNýjar höfuðstöðvar Landsbankans hafa verið í deiglunni í um áratug en komið hefur fram að stjórnendur bankans telji töluverða hagkvæmni felast í því að sameina starfsemi bankans í miðborg Reykjavíkur, sem nú er dreifð um miðborgina á mismunandi stöðum, í eitt hús.Árið 2007 ákvað bankinn að byggja nýjar höfuðstöðvar í miðbæ Reykjavíkur. Efnt var til hönnunarsamkeppni og voru úrslitin kynnt 2008. Vakti vinningstillagan töluverða athygli fyrir framúrstefnulega hönnun. Teiknistofa Danans Bjarke Ingels, BIG, teiknaði sigurtillögu samkeppninnar með íslensku stofunni Arkiteó en Andri Snær Magnason kom einnig að hönnun hennar. Eins og sjá má hér að ofan skiluðu BIG, Arkiteó og Andri Snær inn tillögu á nýjan leik eftir að hafa borið sigur úr býtum árið 2008.Vinningstillagan frá árinu 2008 þótti afar sérstæð og vakti töluverða athygli. Þessi bygging mun þó vafalítið aldrei líta dagsins ljós.Mynd/BIG, Arkiteó og Andri Snær MagnasonÁætlanir um byggingu nýrra höfuðstöðva Landsbankans voru hins vegar settar á ís eftir hrunið 2008 en endurvaktar fyrir nokkrum árum. Árið 2015 tilkynnti bankinn um að aftur yrði efnt til hugmyndasamkeppni um nýjar höfuðstöðvar bankans. Árið áður hafði bankinn keypt byggingarrétt við Austurhöfn fyrir nýjar höfuðstöðvar sínar á 957 milljónir króna. Áætlanir bankans mættu þó töluverðri mótstöðu í samfélaginu, ekki síst vegna kostnaðar sem þá var áætlaður átta milljarðar króna. Meðal þeirra sem gagnrýndu áætlanir bankans voru þá verandi stjórnarþingmennirnir Elín Hirst og Vigdís Hauksdóttir. Var málið sett í biðstöðu og nánari skoðun þangað til í fyrra þegar bankaráð Landsbankans tók ákvörðun um að byggja ætti nýjar höfuðstöðvar á lóð bankans við Austurhöfn. Er gert ráð fyrir að bankinn muni nýta um 60 prósent af því húsnæði sem byggt verður og mun það sem eftir stendur verða selt eða leigt. Er áætlað að verkið kosti bankann um níu milljarðar en sé tekið tillit til þess að hluti hússins verði leigður eða seldur muni kostnaður bankans vera um 5,5 milljarðar. Líkt og sjá má á yfirlitsmyndinni hér fyrir ofan er lóð Landsbankans við Hörpu og í grennd við þar sem nú er verið að reisa Mariott-hótel ásamt íbúðar- og verslunarhýsnæði. Stuttu frá eru nýjar byggingar á Hafnartorgi langt komnar og því ljóst að þegar framkvæmdunum sem hér hafa verið nefndar verður lokið muni svæðið í kringum Hörpu og í miðborg Reykjavíkur hafa tekið stakkaskiptum.Hér að neðan má sjá nokkrar myndir af nokkrum tillögum úr hugmyndasamkeppninni frá 2008.Tillaga Work séð frá Arnarhóli að næturlagi. Stofan segir mynstrið á klæðningunni undir áhrifum frá íslenskum vefnaði.Tillaga Work var ein af fimm sem valin var til áframhaldandi þróunar í samkeppni Landsbankans árið 2007.Anddyrið eins og arkitektarnir hjá Work í New York vildu hafa það.Eins og sést teygir húsið sig inn á Lækjartorgið.Skipsstefnið svokallaða á sigurtillögu BIG og Arkiteó.Björgólfur Guðmundsson var settur á myndina af fundarherberginu í sigurtillögu BIG og Arkiteó.Skýringamynd af byggingunni eftir arkitektana hjá Work.Skýringamynd af byggingunni eftir arkitektana hjá Work.Skýringamynd af byggingunni eftir arkitektana hjá Work.Skýringamynd af byggingunni eftir arkitektana hjá Work.Skýringamynd af byggingunni eftir arkitektana hjá Work.Skýringamynd af byggingunni eftir arkitektana hjá Work.
Skipulag Tengdar fréttir Hönnunarkeppni um nýbyggingu Landsbanka frestað Sjónarmið sem komið hafa upp á síðustu vikum varðandi bygginguna eru ástæða þess að keppninni er frestað. 7. ágúst 2015 16:01 Vinningstillaga Landsbankans loksins til sýnis Vinningstillaga úr alþjóðlegri samkeppni í fyrrasumar um hönnun á nýjum höfuðstöðvum Landsbanka Íslands verður sýnd á Háskólatorgi í dag. Að því er segir í tilkynningu sigraði tillaga frá BIG frá Danmörku ásamt 27. mars 2009 06:00 Höfuðstöðvar Landsbankans munu rísa við Austurhöfn Áætlaður kostnaður við að reisa húsið er um níu milljarðar króna, að lóðarverði meðtöldu. 17. maí 2017 15:47 Mest lesið Sætta sig ekki við höfnun Kviku Viðskipti innlent Skrautleg saga laganna hans Bubba Viðskipti innlent Hagnaðist um tæpar sjötíu milljónir króna Viðskipti innlent Svona mikið kostar kaffið á Starbucks hér á landi Neytendur Sorglegt að þurfa að hætta rekstri eftir 38 ár í Hveragerði Viðskipti innlent Lofar bongóblíðu við langþráð langborð Viðskipti innlent Starbucks opnaði á Laugavegi í dag Viðskipti innlent Minnstu sparisjóðirnir sameinast Viðskipti innlent Trausti Sigurður og Jóhanna nýir forstöðumenn hjá VÍS Viðskipti innlent Krefja nýjan rektor um að skólinn fari að lögum Viðskipti innlent Fleiri fréttir Skrautleg saga laganna hans Bubba Sætta sig ekki við höfnun Kviku Hagnaðist um tæpar sjötíu milljónir króna Lofar bongóblíðu við langþráð langborð Minnstu sparisjóðirnir sameinast Spá 2,2 prósent hagvexti í ár Trausti Sigurður og Jóhanna nýir forstöðumenn hjá VÍS Sorglegt að þurfa að hætta rekstri eftir 38 ár í Hveragerði Starbucks opnaði á Laugavegi í dag Krefja nýjan rektor um að skólinn fari að lögum Svikarar nýti sumarfrí til að blekkja fyrirtæki til að millifæra háar upphæðir EFTA-ríkin gera fríverslunarsamning við Mercusor-ríkin Ná að spara hver mánaðarmót en hvað svo? Sjónvarpsstöðin Sýn verður í opinni dagskrá Nokkurra ára leit að kaupanda eigna í Helguvík lokið Rafbílasala tekur við sér en nær enn ekki fyrri hæðum Tillaga Vilhjálms felld með nánast öllum atkvæðum Einungis áfengi í boði hjá Heimkaupum Vill lýsa yfir vantrausti á stjórnarmann vegna sautján ára tölvubréfs Fjórir sérfræðingar skoða möguleika Íslands í gjaldmiðlamálum Arctic Fish fær heimild til frekara fiskeldis Falið að leiða þjónustu og upplifun hjá Mílu Segja lækkun á olíu ekki hafa skilað sér til íslenskra neytenda Einföldun að segja að íslensk ferðaþjónusta sé láglaunagrein „Þetta eru mjög mikil vonbrigði fyrir okkur“ Tekjur Haga jukust á fyrsta ársfjórðungi Bjarni Ingimar ráðinn rekstrarstjóri Avia Húsið selt á 78 milljónir og Jakub þarf að reiða fram milljón Gjaldþrotin námu 1,2 milljörðum króna Stýrivextir líklegast ekki lækkaðir aftur á þessu ári Sjá meira
Hönnunarkeppni um nýbyggingu Landsbanka frestað Sjónarmið sem komið hafa upp á síðustu vikum varðandi bygginguna eru ástæða þess að keppninni er frestað. 7. ágúst 2015 16:01
Vinningstillaga Landsbankans loksins til sýnis Vinningstillaga úr alþjóðlegri samkeppni í fyrrasumar um hönnun á nýjum höfuðstöðvum Landsbanka Íslands verður sýnd á Háskólatorgi í dag. Að því er segir í tilkynningu sigraði tillaga frá BIG frá Danmörku ásamt 27. mars 2009 06:00
Höfuðstöðvar Landsbankans munu rísa við Austurhöfn Áætlaður kostnaður við að reisa húsið er um níu milljarðar króna, að lóðarverði meðtöldu. 17. maí 2017 15:47