Lífið samstarf

Nýtt nikótínlyf: Skammtapokar undir vör

Lyfis kynnir
Zonnic mint skammtapokar (posar) eru sænsk þróun og hafa verið notaðir þar í nokkur ár til að auðvelda fólki að draga úr eða að hætta tóbaksnotkun. Lyfið er einnig komið á markað í Noregi og Finnlandi

Nikótínið frásogast í munnholinu

„Zonnic mint skammtapokarnir með nikótíni eru vættir með tungunni og settir undir vörina og geymdir þar,“ segir Hákon Steinsson, lyfjafræðingur hjá LYFIS. „Gott er að færa pokann til öðru hvoru með tungunni en það eykur losun nikótínsins úr honum.“ Sumir fá brjóstsviða og ertingu í maga við notkun á nikótín lyfja­tyggigúmmíi en munnvatn myndast stöðugt þegar það er tuggið og er síðan kyngt og fer niður í maga. Nikótínið úr Zonnic skammta­pokum frásogast í munnholinu, sem lágmarkar magn nikótíns sem berst niður í háls og maga, þar sem það getur valdið ertingu.

Hættu á þínum hraða

Zonnic mint hjálpar bæði þeim sem vilja hætta tóbaksnotkun alveg og þeim sem vilja draga úr reykingum og skiptir þá máli að hafa í huga að hver sígaretta sem sleppt er að reykja er sigur. Þar sem mjög hátt hlutfall þeirra sem reyna að hætta reykingum hefur aftur tóbaks­notkun er mikilvægt að hver og einn taki ferlið á sínum hraða – sleppi einni sígarettu í einu. Oft á ekki við að nota tóbak og þá er Zonnic mint skammtapoki góð lausn. Þegar fólk vill ekki, getur ekki eða má ekki reykja, t.d. á fundum, í flugvélum eða á veitingahúsum, getur Zonnic mint skammtapokinn hentað vel þar sem hann er það lítill og þunnur að hann sést ekki, nikótínið losnar úr pokanum yfir lengri tíma og gefur um leið ferskan andardrátt.

Sölustaðir

Zonnic mint inniheldur 4 mg af nikótíni í hverjum skammtapoka og kemur í 20 stk. dósum með skrúf­loki og barnalæsingu. Salan hófst 1. september og er Zonnic mint komið í sölu í helstu apótek­um og í fjölda verslana og bensínstöðva.

Ítarlegar upplýsingar um Zonnic mint er að finna á www.zonnic.is.

Athugið að lesa vandlega upplýsingar á umbúðum og í fylgiseðli fyrir notkun lyfsins. Leitið til læknis eða lyfjafræðings sé þörf á frekari upplýsingum um áhættu og auka­verkanir.

Sjá nánari upplýsingar um lyfið á www.serlyfjaskra.is.

Máttu ekki reykja? Zonnic mint skammtapokinn hentar þar.
Zonnic er nýtt níkótínlyf.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.