Með stærstu útgefendum landsins 12. desember 2017 14:15 Huginn Þór Grétarsson er í forsvari fyrir Óðinsauga sem gefur út 48 bækur í ár. MYND/VILHELM
KYNNING: Bókaútgáfan Óðinsauga hefur vaxið hratt undanfarin ár og er nú á meðal stærstu bókaútgefenda landsins enda koma út á hennar vegum 48 bækur í ár. Að sögn Hugins Þórs Grétarssonar, sem er í forsvari fyrir Óðinsauga, er einkenni þessa unga útgáfufyrirtækis helst það að þar fá fjölmargir nýir höfundar tækifæri til að stíga sín fyrstu skref. „Upphaflega var Óðinsauga sjálfsútgáfa og er í raun hugsað sem grasrótarfyrirtæki til að aðstoða nýja rithöfunda með verk sín. Útgáfulisti hvers árs mótast þó vissulega af því hvernig vindar blása í samfélaginu hverju sinni.“ Í ár gefur Óðinsauga út margar barnabækur, bæði innlendar og þýddar. „Þar má t.d. nefna Etna og Enok fara í sveitina, en þar skrifar höfundur um sveit foreldra sinna í Tálknafirði. Einnig koma út þýddar skáldsögur, s.s. Lífið á ísskápshurðinni sem er hjartnæm saga mæðgna, skrifuð í minnismiðaformi.“ Fullorðnir finna líka fjölmargt skemmtilegt og áhugavert að sögn Hugins. Hann nefnir t.d. krimmann Vefurinn eftir Magnús Þór Helgason en hún er önnur bók hans. „Í fyrra kom út bókin Bráð eftir sama höfund. Þessi nýja bók fjallar um Kormák, fertugan lektor við Háskóla Íslands sem er nýkominn heim úr námi í Svíþjóð. Konan hans beitir hann ofbeldi og hann fer að halda framhjá með Kolbrúnu, ungum stúdent við Háskólann sem er grúskari og hakkari. Þar kynnist Kormákur heimi á netinu sem vekur upp spurningar um friðhelgi einkalífsins. Á sama tíma er lögreglan að rannsaka dularfulla bylgju sjálfsmorða.“Fjölbreyttar bækur Óðinsauga gefur út eina matreiðslubók í ár sem heitir Pabbi, áttu fleiri uppskriftir? eftir Smára Hrafn Jónsson matreiðslumeistara. „Hann tók til uppskriftirnar þar sem börnin hans hringdu oft og spurðu hvernig ætti að elda hitt og þetta. Honum fannst þörf á að hafa þessar kjarnauppskriftir í matreiðslu á einum stað. Mikið af fróðleik er einnig að finna í bókinni, t.d. leiðbeiningar um hvernig best sé að gera sósur frá grunni og margt fleira.“ Einnig nefnir Huginn metnaðarfullt verk eftir Þorgrím Gestsson sem heitir Færeyjar út úr þokunni. „Þar ferðast höfundur um Færeyjar með Færeyingabók í farteskinu. Þannig verður úr fróðleikur og ferðasaga í bland auk þess sem fjallað er lítillega um sjálfstæðisbaráttu Færeyinga og þróun ritmáls. Bók í svipuðum dúr kom út um Orkneyjar og Hjaltland fyrir þremur árum síðan en bókin sú heitir Í kjölfar jarla og konunga.“ Huginn Þór er ekki einvörðungu útgefandi heldur afkastamikill rithöfundur. „Ég sendi frá mér nokkrar bækur í ár, t.d. bókina Teljum kindur, sem er gamansöm bók með 176 skrípamyndum af kindum í hinum ýmsu aðstæðum. Samkvæmt fullyrðingu á bókarkápu á bókin að hjálpa til við að svæfa börnin. Auk þess hef ég skrifað nýjan bókaflokk sem eru svokallaðar léttlestrarbækur.“ Nánari upplýsinga um bækur Óðinsauga má finna á www.odinsauga.com.
Mest lesið Balta bregst bogalistin Gagnrýni Segir Candy hafa séð að faðir hans væri „skrímsli“ á undan öðrum Lífið Glæsibústaðir yfir hundrað milljónum Lífið „Stolt af því að hafa ekki gefist upp á sjálfri mér“ Lífið Yfir sig ástfangin og býr bæði á Spáni og Íslandi Lífið Friðrik Þór og Guðrún selja 225 milljón króna parhús í Hlíðunum Lífið Enn ástfangnari að sjá maka sinn í foreldrahlutverkinu Lífið Laufey Lín endar Evróputúrinn á Íslandi Tónlist Sophie Turner verður Lara Croft Bíó og sjónvarp Glæsihöll Livar og Sverris á Arnarnesi til sölu Lífið Fleiri fréttir Opnunarhátíð í Ríteil Kids „við erum að drukkna í fötum“ Hætti að þurfa að ryksuga upp hárin eftir hverja sturtu Ný svefnlína sem hjálpar þér að sofna, sofa og vakna hress! Með stimpil upp á ekta spænska matarmenningu Með stimpil upp á ekta spænska matarmenningu Er hárið skemmt eða bara þurrt? Opna Preppbarinn í Keflavík og bjóða 50% afslátt Stjörnum prýdd dagskrá Bylgjunnar í Hljómskálagarðinum Stöðugt á ferð og flugi með sterkari skrokk Víkurverk hefur allt fyrir ferðalagið og meira til Hver dáleiðsla er spennandi og ófyrirsjáanlegt ferðalag Fann lausn við verkjunum sem breytti öllu Egill, Valgeir og Sigurður Bjóla saman á sviði í fyrsta sinn síðan 1976 Sjá meira