Lögreglumaður skaut félaga sinn með rafbyssu Stefán Ó. Jónsson skrifar 1. desember 2017 07:24 Vúbbs. Skjáskot
Lögreglumaður í Ohio í Bandaríkjunum slasaðist þegar félagi hans skaut hann fyrir slysni með rafbyssu. Myndband af óhappinu má sjá hér að neðan. Lögreglumennirnir höfðu verið ræstir út til að bregðast við ábendingu um heimilisofbeldi á fimmtudaginn í síðustu viku, sjálfan Þakkargjörðardaginn. Þeir stöðvuðu ökumann sem þeir töldu tengjast málinu og þegar hann neitaði að framvísa skilríkjum drógu þeir hann úr bílnum. Maðurinn var ósamvinnuþýður og brá annar lögreglumannanna á það ráð að draga upp rafbyssu sína. Það fór þó ekki betur en svo að skot hans hafnaði í hinum lögreglumanninum, ekki ökumanninum sem átti að yfirbuga. Lögreglumaðurinn var fluttur á sjúkrahús og segja þarlendir miðlar að hann sé við góða heilsu. Ökumaðurinn var að lokum handtekinn og kærður fyrir að hindra framgang réttvísinnar. Hann neitaði ásökununum fyrir dómi á mánudag. Myndband ABC af slysaskotinu má sjá hér að neðan.
Mest lesið Íslenskir karlmenn flytji inn konur og haldi þeim sem kynlífsþrælum Innlent Athafnamaður sagður handtekinn í Leifsstöð Innlent Aldraður læknir sparkaði í flugfreyju Innlent Slitu samstarfinu vegna trúnaðarbrests „sem ekki var hægt að líta framhjá“ Innlent Handtekin í Bandaríkjunum grunuð um njósnir Erlent Vann óvæntan sigur í fyrri umferðinni Erlent Meirihlutinn sprakk eftir fjóra mánuði Innlent Fluttu allar sprengjuflugvélar frá RAF Fairford Erlent Vill breyta umdeildum gatnamótum Innlent „Við erum ekki að gera þetta til að gleðja fólk í Brussel“ Innlent Fleiri fréttir Fá Nóbelsverðlaun fyrir uppgötvun á ljósstýrðri erfðatækni Fluttu allar sprengjuflugvélar frá RAF Fairford Bein útsending: Hver hlýtur Nóbelsverðlaunin í læknisfræði? Höfðar mál gegn lögreglunni vegna húsleitarinnar Vann óvæntan sigur í fyrri umferðinni Boðaði óvænt þingkosningar á Spáni Stofnar „Ofurgreindarstjórnina“ þrátt fyrir ákall um hægari þróun Handtekin í Bandaríkjunum grunuð um njósnir Sýknaður eftir að hafa skotið mann til bana í dyragættinni Hyggst ná öllu landsvæðinu af Hútum Öryggisstjóri segir af sér hjá OpenAI Gerðu árás skömmu eftir að Þýskalandskanslari mætti Mennirnir sem létust voru feðgar Yfir fimm þúsund handteknir í frönsku stúdentamótmælunum Hluturinn sem fannst í sjónum reyndist meinlaus Rektor Cornell-háskóla rýfur þögnina Tveir látnir eftir skotárás í Noregi Fundið brak úr flugvélinni sem týndist á leið frá Bermúda Mikill viðbúnaður eftir að óþekktur hlutur fannst í sjónum Sjúkraflugvél týndist á leið frá Bermúda Þúsundir manna mótmæla í 50 borgum Samgöngur í lamasessi eftir enn eina árás á brú Veittist að flugstjóranum með öxi í tilraun til að fremja hryðjuverk Keyrði inn í mannfjölda norður af Sydney Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Menntaskólanemar mótmæla: Íslensk stúlka varð fyrir táragasi Syrgði Sovétríkin og hótaði notkun kjarnorkuvopna Fær umboðið í fangið fjórum dögum eftir uppgjöf Skipar sérstakan saksóknara vegna hópnauðgunar við Cornell-háskóla Boðaði ríkisstjórn á fund vegna mótmæla nemenda Sjá meira