Spænskur dómari hefur dregið til baka alþjóðlega handtökuskipan á hendur Carles Puigdemont, fyrrverandi forseta héraðsstjórnar Katalóníu, og fjórum öðrum ráðherrum. Þeir flúðu til Belgíu eftir að héraðsstjórnin lýsti yfir sjálfstæði héraðsins.
Pugidemont og ráðherrarnir gætu enn átt yfir höfði sér ákærur fyrir uppreisnaráróður og uppreisn gegn spænska ríkinu. Allt að þrjátíu ára fangelsisvist liggur við uppreisn samkvæmt spænskum lögum, að því er segir í frétt breska ríkisútvarpsins BBC.
Dómarinn vísaði til þess að fimmmenningarnir hefðu lýst yfir vilja til að snúa aftur til Spánar fyrir héraðsþingskosningar sem fara fram 21. desember. Mariano Rajoy, forsætisráðherra Spánar, boðaði til kosninganna eftir að ríkisstjórn hann leysti héraðsstjórn Katalóníu upp.
Sex ráðherrum katalónsku héraðsstjórnarinnar var sleppt úr fangelsi nærri Madrid gegn tryggingargjaldi í gær. Tveir aðrir, þar á meðal varaforseti héraðsstjórnarinnar, eru enn í varðhaldi.
Handtökuskipun á hendur fyrrverandi forseta Katalóna dregin til baka
Tengdar fréttir
Ógildir sjálfstæðisyfirlýsingu Katalóníu
Stjórnlagadómstóll Spánar ógilti í dag sjálfstæðisyfirlýsingu héraðsþings Katalóníu líkt og búist hafði verið við.
Hundruð þúsunda krefjast þess að leiðtogar Katalóníu verði frelsaðir
Umfangsmikil mótmæli standa nú yfir í Katalóníu en lögreglan í Barcelona áætlar að um 750 þúsund manns gangi um götur borgarinnar.
Puigdemont gaf sig fram við lögreglu í Belgíu
Fjórir fyrrverandi ráðherrar héraðsstjórnar Katalóníu gáfu sig einnig fram, að því er fréttastofa BBC hefur eftir belgískum saksóknara.
Katalónskum ráðherrum sleppt úr gæsluvarðhaldi
Sex fyrrverandi ráðherrum katalónsku héraðsstjórnarinnar var sleppt úr gæsluvarðhaldi í gær gegn tólf milljóna króna tryggingu.