Vímaður ökumaður hlaupinn uppi eftir bílaeltingarleik Kristín Ólafsdóttir skrifar 25. nóvember 2017 07:14 Fangageymslur á höfuðborgarsvæðinu eru nær fullar eftir nóttina. Vísir/Eyþór
Um klukkan 4:20 í nótt hugðust lögreglumenn stöðva bifreið sem var ekið gegn rauðu ljósi. Ökumaður sinnti ekki stöðvunarmerkjum lögreglu og því hófst eftirför á miklum hraða, að því er fram kemur í dagbók lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. „Ökumaður ók á miklum hraða Kringlumýrarbraut að Sæbraut og áfram til austurs. Inn á Miklubraut til vesturs að Kringlumýrarbraut og áfram Kringlumýrarbrautina að Sæbraut. Loks fór ökumaður vestur Sæbraut að Hörpu,“ segir í dagbók lögreglu. Þegar að Hörpu var komið stöðvaði ökumaður bifreiðina og tók á rás á tveimur jafnfljótum en lögreglumenn hlupu manninn uppi. Ökumaðurinn ók enn fremur ítrekað gegn rauðu ljósi meðan á bílaeltingarleiknum stóð og hraði bifreiðarinnar var jafnframt mjög mikill. Þá er ökumaður grunaður um að hafa verið undir áhrifum áfengis, fíkniefna og að aka sviptur ökuréttindum.Tæplega 60 mál á borð lögreglu í nóttTvær minniháttar líkamsárásir komu upp í miðborginni í nótt. Einhverjir voru handteknir í báðum tilfellum og gista nú fangageymslu vegna rannsóknar málanna. Klukkan 00:46 var bifreið mæld á 134 km hraða á Reykjanesbraut og hlaut ökumaður sekt fyrir brotið. Þá varð minniháttar umferðaróhapp í Skógarseli um klukkan 23:30 í gærkvöldi og einn handtekinn í grunaður um akstur undir áhrifum áfengis og fíkniefna vegna málsins. Í dagbók lögreglu kemur fram að tæplega 60 mál hafi komið inn á borð lögreglu í nótt. Fangageymslur eru nú svo til fullar en þeir sem þar sitja tengjast flestir líkamsárásum og ölvum, segir í dagbókinni.
Mest lesið Braut reglur þegar hann minntist Steins Innlent Aðstoðar tugi fórnarlamba Samúels á Spáni Innlent Útför Steins Ármanns Innlent Skera rúma fjóra milljarða af vegagerð Innlent Fæddi barn utan við verslun Elko Innlent Jarðsyngur sinn besta vin Innlent Hafna tilboðum í rekstur skíðasvæðisins og sjá um það sjálf Innlent Samúel hafi sótt hart að fólki að greiða fyrir fram Innlent Halla hæstánægð með stólaskiptin Innlent Daði segir eyðsluseggjum að hemja sig Innlent Fleiri fréttir Hanna Katrín átti fund með sendiherra Kína Viðraði hugmyndir um bandarískt Ísland við Bjarna „Við erum að gera stóra hluti í samgöngum“ Halla hæstánægð með stólaskiptin Próflaus á öfugum vegarhelmingi Uppstokkun í fullri sátt innan Framsóknar Tvíkjálkabraut konuna en sleppur við fangelsi Braut reglur þegar hann minntist Steins Skera rúma fjóra milljarða af vegagerð Hallinn töluverður en mun minni en búist var við Fæddi barn utan við verslun Elko Daði segir eyðsluseggjum að hemja sig Afkoma borgarinnar tólf milljörðum króna verri en reiknað var með Féllu af þingi en fóru ekki langt „Við tökum þessa stöðu mjög alvarlega“ Útför Steins Ármanns Ráðherra boðar aukið eftirlit Samúel hafi sótt hart að fólki að greiða fyrir fram Rektorarnir svara fyrir sig Opna nýja sundlaug í Urriðaholti Hekla Aurora skorin niður í minjagripi Jarðsyngur sinn besta vin Segja ráðherra hafa gengið fram hjá þingnefnd þegar hann sendi ESB bréf Aðstoðar tugi fórnarlamba Samúels á Spáni Geti leyst mannaflavanda hjúkrunarheimila með tæknilausnum Hafna tilboðum í rekstur skíðasvæðisins og sjá um það sjálf Uppgjör sýni „alvarlega“ stöðu Seltjarnarnesbæjar „Þið fáið ekki að skilgreina hvað íslenska þjóðin sagði“ Verkin segi allt aðra sögu en Kristrún Telja íslenska birgja sátta og áfengisverð í fríhöfninni samkeppnishæft Sjá meira