Andi Steingríms J mun svífa yfir vötnum um ókomna tíð Jakob Bjarnar skrifar 28. nóvember 2017 14:11 Málað verður sérstakt portrett af Steingrími og það sett á vegg þingsins, hann mun semsagt horfa af veggjum þingsins á þingheim framtíðarinnar. Vísir/Valli
Egill Helgason sjónvarpsmaður á Ríkissjónvarpinu segir nánast frágengið að Steingrímur J. Sigfússon verði forseti Alþingis, en ráðherralistar væntanlegrar ríkisstjórnar verða kynntir á fimmtudaginn. Egill nefnir þetta í pistli á bloggsíðu sinni á Eyjunni og telur að vel fari á þessu, hann hafi gríðarlega reynslu og þekki þingið út og inn. Egill nefnir jafnframt að það hafi verið orðrómur í gangi þess efnis að Steingrím hafi langað í þetta embætti. Og Vísir greindi frá því að ýmislegt bendir til þess að Steingrímur hafi nánast verið búinn að leggja drög að þessu ríkisstjórnarsamstarfi þegar hann talaði um gildi þess að VG og Sjálfstæðisflokkurinn gengju í þessa sömu sæng. „Forseti Alþingis er ekki slæmt djobb. Forsetinn nýtur fríðinda sem ráðherrar hafa, hefur meðal annars bíl og bílstjóra. Og eitt enn – forsetinn fær af sér málverk sem er hengt upp í sölum Alþingis. Til að mála eru fengnir sérstakir portrettmálarar. Eitt sinn tíðkaðist mjög að mála myndir af fyrirfólki, helst körlum auðvitað, en kannski er þetta síðasta vígi portrettmálunar? Steingrímur mun semsagt horfa af veggjum þingsins á þingheim framtíðarinnar – á staðnum þar sem hann hefur starfað og talað lengur en gengur og gerist.“ Þetta þýðir með öðrum orðum það að andi Steingríms J. Sigfússonar mun svífa yfir vötnum um ókomna tíð í sölum Alþingis. Vissulega setur samstarf VG og Sjálfstæðisflokksins allar skilgreiningar í pólitík sem byggja á þessum vinstri/hægri ási. Nær væri ef til vill að tala um hring. Augu manna hafa einkum beinst að gremju innan VG með þetta samstarf. En víst er að það mun reynast ýmsum hægri manninum vandkvæðum bundið að kyngja því að Steingrímur verði í þessari stöðu – þessi fyrrum erkiandstæðingur Sjálfstæðismanna.
Tengdar fréttir Kraumandi óánægjan brýst út á vegg Kolbeins Kolbeinn Óttarsson Proppé fær það óþvegið á Facebookvegg sínum. 27. nóvember 2017 11:42 Mest lesið Höfuðborgarsvæðið skalf Innlent Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Innlent Katla skelfur Innlent Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Innlent Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Innlent Mikill viðbúnaður eftir að óþekktur hlutur fannst í sjónum Erlent Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna Innlent Sjúkraflugvél týndist á leið frá Bermúda Erlent Illa brugðið en heill á húfi Innlent Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Innlent Fleiri fréttir Höfuðborgarsvæðið skalf Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Katla skelfur Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna „Okkur finnst við vera undanskilin“ Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Sjá meira
Kraumandi óánægjan brýst út á vegg Kolbeins Kolbeinn Óttarsson Proppé fær það óþvegið á Facebookvegg sínum. 27. nóvember 2017 11:42