Kona sakar fyrrverandi Bandaríkjaforseta um að þukla á sér þegar hún var sextán ára Kjartan Kjartansson skrifar 13. nóvember 2017 12:06 Bush er á nítugasta og fjórða aldursári og bundinn við hjólastól. Atvikið átti sér stað þegar hann var 79 ára gamall. Vísir/AFP
Sjötta konan sem sakar George H.W. Bush, fyrrverandi Bandaríkjaforseta, um að þukla á sér hefur nú stigið fram. Konan segir að Bush hafi gripið í rassinn á henni þegar hún var sextán ára gömul árið 2003. Roslyn Corrigan segir að Bush, sem var forseti frá 1989 til 1993, hafi gripið í rassinn á sér þegar verið var að taka mynd af þeim á viðburði í höfuðstöðvum leyniþjónustinnar CIA í Texas þar sem faðir hennar vann fyrir fjórtán árum. „Fyrstu viðbrögð mín voru alger hryllingur. Ég var mjög, mjög ráðvillt,“ segir Corrigan við tímaritið Time. „Hvað segir unglingur við fyrrverandi forseta Bandaríkjanna? „Hey, gaur, þú ættir ekki að snerta mig svona?““ segir hún en Bush var 79 ára þegar atvikið átti sér stað. Fimm aðrar konur hafa sakað Bush um sambærilega áreitni frá því í október. Talsmaður forsetans fyrrverandi segir hins vegar við Time að Bush „hafi það ekki í hjarta sér að geta vísvitandi valdið skaða eða þjáningu“. Hann biðji hvern þann sem gæti hafa móðgast við myndatökuna afsökunar. Talsmaðurinn hefur áður afsakað framferði Bush með því að hann hafi „klappað konum á afturendann sem hann ætlaði á góðlátlegan hátt“. Það tengist því einnig að hann standi ekki lengur uppréttur eftir að hann varð bundinn við hjólastól árið 2012. Þegar atvikið sem Corrigan lýsir átti sér stað stóð hann þó á eigin fótum.
MeToo Bandaríkin Mest lesið Aukafundur borgarfulltrúa: Tugir stöðugilda í nýrri hrinu uppsagna og niðurskurðar Innlent „Von okkar er að lík Lúlla finnist og við getum jarðað hann“ Innlent „Við eigum bara að þegja og sætta okkur við þetta“ Innlent Ákærður fyrir að drepa tvo af gáleysi Innlent Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Erlent Fjörutíu föngum fylgt úr landi fyrstu níu mánuði ársins Innlent Markmið að kanna aðstæður en ekki björgun Innlent Lögregla kölluð til vegna drengjanna í Goðafossi Innlent Óljóst hver mun leiða ríkisstjórn Stúdenta í Serbíu Erlent Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Erlent Fleiri fréttir Ákæra Comey enn eina ferðina Stubb og Støre ræddu við Pútín Fóðruðu loftslagsvá aðeins minna en metárið á undan Kjörstaðir opnir í Ísrael Óljóst hver mun leiða ríkisstjórn Stúdenta í Serbíu Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Biskupar sjá eftir bænastund með Trump Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Sjá meira