Lífið

Fyrstu myndir af Kevin Spacey í meðferð við kynlífsfíkn

Lilja Katrín Gunnarsdóttir skrifar

Myndir náðust af Óskarsverðlaunaleikaranum Kevin Spacey fyrir utan Meadows-meðferðarstöðina í Arizona í Bandaríkjunum. Tímaritið Us Magazine birtir myndirnar. Er leikarinn í meðferð við kynlífsfíkn á stöðinni, eftir að fjölmargir menn hafa ásakað hann síðustu vikur um kynferðislegt ofbeldi.



Meadows-stöðin er fyrir löngu orðin þekkt meðal stjarnanna en golfarinn Tiger Woods og leikararnir David Duchovny og Michael Douglas hafa leitað sér hjálpar við kynlífsfíkn þar. Þá er einnig tekið á öðrum fíknisjúkdómum á stöðinni, til dæmis átröskun og áfengissýki.

Forsíða Us Magazine þegar þetta er skrifað.

Mánaðarmeðferð á stöðinni kostar 28 þúsund dollara, tæplega þrjár milljónir króna, en innifalið í því eru til dæmis reiðtímar og jógakennsla. Þá er notkun á farsímum og tölvum takmörkuð, strangar reglur um klæðnað gilda á svæðinu og ekki má reykja á stöðinni.



„Kevin Spacey ætlar að taka þann tíma sem nauðsynlegur er til að leita sér meðferðar,“ sagði blaðafulltrúi leikarans í fréttatilkynningu þann 2. nóvember síðastliðinn og bætti við að frekari upplýsingar um meðferðin væru ekki veittar að svo stöddu.



Leikarinn Anthony Rapp sakaði Kevin um að hafa haft kynferðislega tilburði við sig þegar hann var fjórtán ára gamall. Á American Beauty-leikarinn meðal annars að hafa lagst ofan á hann. Í kjölfarið stigu fleiri fram og sökuðu Kevin Spacey um kynferðislega tilburði og ofbeldi. Í framhaldi af því var leikarinn rekinn úr þáttunum House of Cards.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.