Tólf tonn af kókaíni grafin á bananaekru Stefán Ó. Jónsson skrifar 9. nóvember 2017 07:46 Forseti Kolumbíu sést hér standa ofan á kókaínhafinu í hvítri skyrtu. Vísir/epa
Lögreglan í Kolumbíu lagði hald á 12 tonn af kókaíni á dögunum. Er þetta mesta magn fíkniefna sem lögregla landsins hefur nokkurn tímann haldlagt í einni aðgerð. Fíkniefnin voru grafin niður á bananaekru í norðurhluta landsins, skammt frá vegslóðum sem nýttir eru til að flytja efnin til Bandaríkjanna. Talið er að kókaínið hafi verið í eigu glæpagengisins Flóaflokkurinn (e. Gulf Gang) og að það hafi verið í umsjá sjálfs foringja samtakanna, Dairo Úsunga. Lögreglan hefur árum saman reynt að hafa hendur í hári hans en hafði ekki erindi sem erfiði að þessu sinni. Engu að síður hefur hún handtekið fjóra einstaklinga sem taldir eru viðriðnir kókaínfjallið. Alls hafa um 1500 meðlimir Flóaflokksins verið handteknir á þessu ári að sögn breska ríkisútvarpsins. Virði efnanna á bananaekrunni er talið vera um 40 milljarðar íslenskra króna. Frá því í ágúst hefur kolumbíska lögreglan lagt hald á rúmlega 20 tonn af kókaíni.
Mest lesið Íslenskir karlmenn flytji inn konur og haldi þeim sem kynlífsþrælum Innlent Aldraður læknir sparkaði í flugfreyju Innlent Tugir starfsmanna Reykjavíkur veiktust Innlent Segir Aþenu í andarslitrunum Innlent Athafnamaður sagður handtekinn í Leifsstöð Innlent Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Innlent „Ég geri ekki ráð fyrir því að við munum halda útgáfupartí í Valhöll“ Innlent SA hafi skilað auðu og telur að samningum verði sagt upp Innlent Tuttugu milljónir fyrir rafmagn hjólhýsa Innlent Tugir í sóttkví í Síberíu eftir andlát starfsmanns rannsóknarstofu Erlent Fleiri fréttir Tugir í sóttkví í Síberíu eftir andlát starfsmanns rannsóknarstofu Fá Nóbelsverðlaun fyrir uppgötvun á ljósstýrðri erfðatækni Fluttu allar sprengjuflugvélar frá RAF Fairford Bein útsending: Hver hlýtur Nóbelsverðlaunin í læknisfræði? Höfðar mál gegn lögreglunni vegna húsleitarinnar Vann óvæntan sigur í fyrri umferðinni Boðaði óvænt þingkosningar á Spáni Stofnar „Ofurgreindarstjórnina“ þrátt fyrir ákall um hægari þróun Handtekin í Bandaríkjunum grunuð um njósnir Sýknaður eftir að hafa skotið mann til bana í dyragættinni Hyggst ná öllu landsvæðinu af Hútum Öryggisstjóri segir af sér hjá OpenAI Gerðu árás skömmu eftir að Þýskalandskanslari mætti Mennirnir sem létust voru feðgar Yfir fimm þúsund handteknir í frönsku stúdentamótmælunum Hluturinn sem fannst í sjónum reyndist meinlaus Rektor Cornell-háskóla rýfur þögnina Tveir látnir eftir skotárás í Noregi Fundið brak úr flugvélinni sem týndist á leið frá Bermúda Mikill viðbúnaður eftir að óþekktur hlutur fannst í sjónum Sjúkraflugvél týndist á leið frá Bermúda Þúsundir manna mótmæla í 50 borgum Samgöngur í lamasessi eftir enn eina árás á brú Veittist að flugstjóranum með öxi í tilraun til að fremja hryðjuverk Keyrði inn í mannfjölda norður af Sydney Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Menntaskólanemar mótmæla: Íslensk stúlka varð fyrir táragasi Syrgði Sovétríkin og hótaði notkun kjarnorkuvopna Fær umboðið í fangið fjórum dögum eftir uppgjöf Skipar sérstakan saksóknara vegna hópnauðgunar við Cornell-háskóla Sjá meira