Naprapati er árangursrík meðhöndlun við verkjum 23. október 2017 10:00 Naprapat meðhöndlar og leiðréttir orsök verkja. Guttormur útskrifaðist sem naprapat árið 1996, hefur síðan rekið sína eigin naprapati-stöð á Spáni og hefur nú einnig opnað stofu hér á landi. MYND/ERNIR
KYNNING Guttormur Brynjólfsson er menntaður naprapat (Doctor of naprapathy) en naprapati-meðhöndlun felst meðal annars í hnykkingum, meðhöndlun á band- og stoðvef og sérsniðnum æfingum fyrir hvers kyns stoðkerfisvandamál. Tækni sem tryggir að líkaminn virki sem allra best. Naprapat meðhöndlar og leiðréttir orsök verkja. Bein þýðing á orðinu naprapati er ,,að leiðrétta orsökina“. Í naprapati-meðferðinni er litið á stoð- og taugakerfið sem eina heild og naprapat leitast við ná fólki sársaukalausu sem fyrst, ásamt því að finna og rétta til ástæðuna fyrir verkjunum,“ útskýrir Guttormur Brynjólfsson, naprapat eða doctor of naprapathy.Hnykkir, nuddar og teygir Starf naprapats snýst um greiningu, meðhöndlun og endurhæfingu stoðkerfisins, naprapatinn leggur mikla áherslu á að finna og lagfæra orsök verkja, en orsökin getur leynst meðal annars í stoð- eða taugakerfi. „Þegar vandinn hefur verið greindur hefst meðferðin sem getur meðal annars falist í hnykkingum, meðhöndlun á band- og stoðvef með nuddi og teygjum og sérsniðnum æfingum fyrir stoðkerfið svo koma megi í veg fyrir þjáningu og sársauka.“ Naprapatinn býr yfir þekkingu og tækni til þess að meðhöndla bandvef/vöðva og liði líkamans s.s. axlir, olnboga,hendur, mjaðmir, hné, fætur, háls og bak svo eitthvað sé nefnt. Naprapati varð löggild starfsgrein í Svíþjóð árið 1994 og tilheyrir sænska heilbrigðiskerfinu. „Þriðji hver Svíi hefur leitað til naprapats með stoðkerfisvandamál sín sem gerir naprapati að vinsælustu stoðkerfismeðhöndlun landsins. Rannsóknir hafa verið gerðar í samvinnu við meðal annars Karolinska Institutet í Stokkhólmi, og hafa bent til að naprapati sé ein af áhrifaríkustu meðhöndlunum á stoðkerfinu sem völ er á. Í því samhengi má benda á rannsókn sem var birt í ,,Clinical Journal of Pain“, einu af virtustu læknaritum heims, ,,Naprapathic manual therapy or evidence-based care for back and neck pain“,“ segir Guttormur, sem útskrifaðist sem naprapat árið 1996 og hefur allt frá útskrift átt og rekið sína eigin naprapati-stöð í Madrid á Spáni, Natt Center, og rekur enn.Jafnvægi heilans mikilvægt Ástæðu bak- og hálsverkja má oftar en ekki rekja til starfsemi heilans að sögn Guttorms, að meðhöndla (hnykkja, nudda, teygja, æfa) stoðkerfið í samræmi við virkni miðtaugakerfisins, eykur líkurnar mjög á því að við getum hjálpað þér. „Heili og mæna, einu nafni miðtaugakerfi, stjórna allri starfsemi líkamans. Ójafnvægi í virkni heilahvelanna veldur mismunandi spennu í vöðvum og leiðir til endurtekinnar rangrar beitingar sem getur leitt til meiðsla eða eymsla í líkamanum. Ýmsar ástæður geta leitt til þess að heilinn vinni ekki eins og best verður á kosið, til dæmis ef litli heilinn fær mismunandi skilaboð frá hægri eða vinstri hlið líkamans. Ástæður fyrir því geta verið læsingar og minnkuð hreyfigeta í liðum eða jafnvel eitthvað í miðtaugakerfinu, sem veldur mismunandi vöðvastyrk eða hreyfigetu í hliðum líkamans og getur valdið rangri líkamsstöðu,“ lýsir hann.Stofur á Spáni og Íslandi Guttormur hefur síðastliðin tuttugu ár byggt upp gott orðspor á Spáni og víðar, meðal annars hafa komið til hans í meðhöndlun fótboltamenn úr ensku úrvalsdeildinni og var Guttormur einnig fenginn til Liverpool FC til þess að meðhöndla leikmenn. Fyrir honum eru þó allir sjúklingar jafnir og er það honum kappsmál að geta hjálpað sem flestum. Naprapat-stofu Guttorms er að finna í Orkuhúsinu á Suðurlandsbraut 34 þar sem hann meðhöndlar alla þá sem eiga við meiðsli eða verki að stríða, eða vilja bara fyrirbyggja stoðkerfisvandamál og hámarka vellíðan sína. „Naprapat býr yfir mikilli þekkingu og tækni til að tryggja það að líkaminn virki sem allra best.“Stofa Guttorms er í Orkuhúsinu Suðurlandsbraut 34, sími: 6250011. Frekari upplýsingar má fá á www.naprapat.is, á Facebook undir Naprapat – Orkuhúsið eða senda tölvupóst á info@naprapat.is.
Mest lesið Láta forræðishyggju hinna fullorðnu ekki fipa sig Lífið Hrekkjavökubúningar sem er best að forðast Menning Telur Sweeney hafa verið blekkta í kjólinn Tíska og hönnun Ískyggilega líkur ofurfyrirsætu: „Ég er með píku“ Lífið Atli Steinn fann ástina á ný Lífið „Get ekki gengið óstudd og framundan er mikil endurhæfing“ Lífið Stjörnurnar skinu skært á sögulegum sjónvarpsverðlaunum Lífið „Síðasta flugtak“ Play í Gamla bíói Lífið Fundin eftir sjö vikur á vergangi: „Takk hver sem þú ert“ Lífið Heillandi raðhús Evu Maríu og Trausta til sölu Lífið Fleiri fréttir Vetrartískan er mætt í Boozt með kósýheit Nýir réttir Serrano aðgengilegir í LifeTrack appinu Frank Sinatra, Dean Martin og Sammy Davis Jr. lifna við í Hörpu „Við eigum meira blóð en blóðbankinn!“ Flytja alla Springsteen slagarana í Hörpu Frábær árangur í meðferðarstarfi Kalklitir og Slippfélagið mála framtíðina saman Hárolía, vinur eða óvinur hársins? Dineout gjafabréf er jólagjöfin í ár Hjálpa öðrum að eignast lítil kraftaverk Þarf alltaf að vera vín? Trúði varla eigin augum þegar hún sá fyrir og eftir myndirnar Úrval Útsýn hefur svarað kalli um björgunarfargjöld Þessi litla breyting breytti í raun öllu! Eldhúspartý KVIK er á laugardaginn Hug-A-Lums þyngdarbangsar sem allir elska The Ultimate Eagles halda tónleika í Hörpu Sjá meira