Stórauka öryggisgæslu vegna forsetakosninganna Stefán Ó. Jónsson skrifar 26. október 2017 07:15 Raila Odinga hefur beðið stuðningsmenn sína um að sniðganga kosningarnar. Vísir/Getty
Mikil spenna og aukin öryggisgæsla er nú í Kenýa þar sem verið er að endurtaka forsetakosningar sem þar fóru fram á dögunum. Niðurstöður fyrstu atkvæðagreiðslunnar voru véfengdar og var ákveðið að kjósa að nýju. Uhuru Kenyatta, sitjandi forseti sem sækist eftir endurkjöri hvetur fólk til að mæta á kjörstað en Raila Odinga leiðtogi stjórnarandstöðunnar, sem bauð sig fram í fyrri umferðinni, hefur dregið framboð sitt til baka og hvetur fólk til að halda sig heima. Kenyatta var úrskurðaður sigurvegari fyrri atkvæðagreiðslunnar en komið hefur í ljós að ýmislegt var athugavert við framkvæmdina og því var ákveðið að kjósa að nýju. Ef marka má útgönguspár virðist kjörsóknin vera umtalsvert minni núna en í síðustu kosningum. Stjórnarandstæðingar reyndu hvað þeir gátu í morgun til að meina fólki aðgang að kjörstöðum í fátækrahverfum höfuðborgarinnar, Naíróbí. Greip lögreglan þá til táragass sem hún varpaði inn í hópinn. Varð það til þess að dreifa mannfjöldanum. Alþjóðlegar eftirlitsstofnanir hafa kallað fjölmarga starfsmenn sína til baka því þær telja sig ekki geta tryggt öryggi þeirra.
Mest lesið Var illa sofin og endaði á bíl úr gagnstæðri átt Innlent Erfitt að stöðva umfangsmikla sölu Innlent Hvað er best að gera þegar maður er bitinn? Innlent Bandero yfirgefur Íslandsmið vegna veikinda Innlent Eiga von á allt að 35 metrum á sekundu í hviðum Veður „Vinalegt“ spjall í bílakjallara sem varð að manndrápstilraun Innlent „Svimandi“ bótakröfur á leiðinni frá Sindra Snæ og Ísidóri Innlent „Við erum stórveldi, það er ekkert ríki eins og við“ Innlent Þyngja þurfi dóma þeirra sem láta sér ekki segjast Innlent „Ég hef aldrei farið á Vog, ekki enn þá“ Innlent Fleiri fréttir Handtekinn grunaður um morðið á fyrrverandi ráðherra Geta fengið sekt vegna ávanabindandi hönnunar Rannsaka andlát fyrrverandi ráðherra sem morð Heimsins frægasti refill fluttur til Bretlands Lést er hún fagnaði sigri Frakka Le Pen hvergi af baki dottin og stefnir ótrauð á forsetahöllina Hefur svo gott sem tryggt sér forsætisráðherrastólinn Tólf látnir í skógareldum í suðurhluta Spánar Robinson hafi lýst eftirsjá Þúsundir fylgja æðstaklerkinum til grafar í skugga árása Þurfti að lenda flugvél eftir að kennarinn stökk út og hrapaði til bana Orkuskortur í kjölfar árása: Stjórnvöld í Rússlandi banna útflutning á dísilolíu Árásir á báða bóga og umferð um sundið dregst saman Kornabarn reyndist á lífi í líkhúsi „Ef það gerist aftur mun þetta versna til muna!“ Boðar fleiri árásir Trump fer hamförum í Ankara: Búinn að fá nóg af Írönum, sparkar í Nató og vill hætta öllum viðskiptum við Spán Tólf Evrópuríki sögð ætla að smíða nýja langdræga eldflaug Íranir svara fyrir sig með árásum á Kúveit og Barein Fréttaútsending stöðvuð til að uppræta áróður Orbáns Bandaríkin hefja árásir á Íran á ný Trump sló harðan tón við upphaf leiðtogafundar NATO Le Pen staðfestir forsetaframboð Gæti hætt að styðja við Evrópu fái Bandaríkin ekki Grænland Daily Mail hafði betur gegn Harry Farage segir af sér þingmennsku eftir uppljóstranir um gjafir Óvíst með framboð Le Pen eftir tvíræðan dóm Tilræðiskona í Mónakó sögð fundin látin í Úkraínu Þrír á sjúkrahús eftir fyrsta nautahlaup ársins í Pamplona Örlög forsetaframboðs Le Pen gætu ráðist í dag Sjá meira
Trump fer hamförum í Ankara: Búinn að fá nóg af Írönum, sparkar í Nató og vill hætta öllum viðskiptum við Spán