Pétur Pétursson ráðinn þjálfari Vals Tómas Þór Þórðarson skrifar 26. október 2017 17:00 Pétur Pétursson með barnabarni sínu. vísir/ernir
Pétur Pétursson, fyrrverandi atvinnu- og landsliðsmaður í fótbolta, hefur verið ráðinn þjálfari kvennaliðs Vals í Pepsi-deildinni í fótbolta en hann var kynntur til leiks á blaðamannafundi félagsins í dag. Pétur skrifaði undir þriggja ára samning við Val. Pétur tekur við starfinu af Úlfi Blandon sem entist í eitt ár á Hlíðarenda en undir hans stjórn endaði Valsliðið í þriðja sæti með 37 stig. Það var aldrei í alvöru titilbaráttu eftir slaka byrjun. Á síðustu leiktíð var Pétur aðstoðarþjálfari Jóhannesar Karls Guðjónssonar hjá HK í Inkasso-deildinni en þar áður var hann aðalþjálfari Fram í sömu deild sumarið 2015. Hann hefur aldrei áður þjálfað kvennalið. Pétur, sem er einn af bestu leikmönnum Íslands frá upphafi, hóf þjálfaraferil sinn hjá Tindastóli árið 1993 en hann hefur einnig þjálfað Keflavík, Víking, KR og Fram. Hann gerði KR að Íslandsmeistara árið 2000 og var svo aðstoðarþjálfari Ólafs Jóhannessonar hjá íslenska landsliðinu frá 2009-2010. Mikið hefur verið lagt í Valsliðið undanfarin tímabil til að vinna aftur Íslandsmeistaratitilinn sem liðið hefur ekki hampað síðan 2010 þegar að það varð Íslandsmeistari fimmta árið í röð. Á blaðamannafundinum í dag var einnig greint frá því að þriggja manna teymi, skipað Rakel Logadóttur, Margréti Magnúsdóttur og Þórði Jenssyni, muni þjálfa 2. og 3. flokk kvenna hjá Val.
Pepsi Max-deild kvenna Mest lesið „Fyrirgefðu mamma“ Enski boltinn Pabbinn urðaði yfir þjálfara sem sá að sér Enski boltinn Sjáðu Albert í essinu sínu þrátt fyrir innbrotið Fótbolti Stórstjarnan biðlar til stuðningsmanna Liverpool Enski boltinn Extraleikarnir: Nabblinn varð náfölur og ældi endalaust eftir keppni Körfubolti Liðsfélagi Sveindísar spilaði sinn fyrsta leik eftir hjartastoppið Fótbolti Fær ekki að spila hjá Liverpool en er kominn í norðurírska landsliðið Enski boltinn Skoraði ekki fyrir Val en kostar núna 1,7 milljarð Fótbolti Hótar eigin leikmönnum og þjálfurum Handbolti „Allir vildu að hann yrði áfram hjá Man. United“ Enski boltinn Fleiri fréttir Blikakonur með þriðja stórsigurinn í röð Sjáðu mörkin er KR valtaði yfir Stjörnuna og flaug áfram í úrslitaleikinn Fimmtán ára skoraði tvö þegar KR fór í úrslit Íslenskukunnáttan takmarkast við „kjúklingawingers“ Tilfinningarík kveðjustund eftir þriggja ára baráttu David James þjálfar markverði Vals Sektir fyrir klúður í skýrslu og brotthvarf í hálfleik Föstudagsfjör hjá KA: Svíi mættur í kjölfar Danijels Danijel Djuric gerir þriggja ára samning við KA Valsmenn hafi sýnt vanvirðingu: „Gamla góða kjaftæðið“ „Gátum ekki látið hann stjórna því“ Baldé snýr aftur til bikarmeistaranna Fylkir á barmi undanúrslita eftir sigur á ÍBV Sjáðu fimmu Atla Sigurjóns á móti Val í gær Fleury fór á kostum gegn FH Atli Sigurjóns skoraði fimm mörk og fór illa með Val Víkingurinn fljótur að láta til sín taka í Keflavík Meistararnir skoruðu sjö mörk gegn Víkingi Mættur til Skagamanna á Tenerife og gæti spilað gegn KR um helgina Fram fær hávaxna Hvergerðinginn Þróttarar fyrstir til að vinna Fylki og enn barist um efsta sætið Kani í mark Víkinga „Talaði við nokkur lið en á endanum var Víkingur mest heillandi“ Ejub látinn fara af fjárhagslegum ástæðum Dramatík í Nettóhöllinni FH-ingar kláruðu leikinn en töpuðu Jóhannes Kristinn gengur til liðs við Víking „Hvað er hann að gera hér?“ Keflavík fær víking að láni HM-farinn Cisse strax búinn að kveðja Vestra Sjá meira