Haukakonur fóru heim með bæði stigin eftir spennuleik í Grafarvoginum Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 10. október 2017 21:36 Maria Ines da Silva Pereira var markahæst á vellinum í kvöld. Hér skorar hún eitt af sjö mörkum sínum. Vísir/Eyþór
Haukar tóku með sér bæði stigin úr Dalhúsunum í 4. umferð Olís deildar kvenna i handbolta í kvöld en Haukakonur þurftu að hafa fyrir sigrinum á móti nýliðum Fjölnis.Eyþór Árnason, ljósmyndari Vísis og Fréttablaðsins, var á leiknum í kvöld og tók þessar skemmtilegu myndir hér fyrir neðan. Haukaliðið vann á endanum tveggja marka sigur, 20-18, eftir að hafa verið einu marki yfir í hálfleik, 10-9. Bæði lið töpuðu síðasta leik sínum fyrir landsleikjahléið en Fjölnir hafði náð í stig í síðasta heimaleik sínum. Leikurinn var jafn og spennandi og enn eitt dæmið um að kvennadeildin verði mjög jöfn í vetur. Maria Ines da Silva Pereira skoraði sjö mörk fyrir Hauka en þurfti í það 16 skot. Berta Rut Harðardóttir var næstmarkahæst með þrjú mörk en öll mörk hennar komu af vítalínunni. Elín Jóna Þorsteinsdóttir var betri en engin í markinu en hún varði öll fjögur víti Fjölnisliðsins í leiknum sem munaði mikið um í tveggja marka sigri. Unga landsliðskonan Andrea Jacobsen var með fimm mörk og þrjár stoðsendingar fyrir Fjölni og Elísa Ósk Viðarsdóttir skoraði fjögur mörk. Sara Sif Helgadóttir átti fínan leik í marki og varði fimmtán skot.Fjölnir - Haukar 18-20 (9-10)Mörk Fjölnis: Andrea Jacobsen 5, Elísa Ósk Viðarsdóttir 4, Helena Ósk Krisjánsdóttir 3, Díana Ágústsdóttir 3, Sara Margrét Raba Brynjarsdóttir 1, Berglind Benediktsdóttir 1, Ólöf Ásta Arnþórsdóttir 1Mörk Hauka: Maria Ines da Silva Pereira 7, Berta Rut Harðardóttir 3/3, Rakel Sigurðardóttir 2, Karen Helga Díönudóttir 2, Ragnheiður Ragnarsdóttir 2, Guðrún Erla Bjarnadóttir 2, Ragnheiður Sveinsdóttir 1, Erla Eiríksdóttir 1.Vísir/EyþórVísir/EyþórVísir/EyþórVísir/EyþórVísir/EyþórVísir/EyþórVísir/EyþórVísir/Eyþór
Olís-deild kvenna Mest lesið Óhuganlegt atvik á Tenerife: Líðan mannsins alvarleg en stöðug Fótbolti Ronaldo var skilinn eftir heima Fótbolti Eiður fær enn hlýjar þakkir á Anfield Enski boltinn Segir að Cristiano Ronaldo hafi verið búinn árið 2021 Enski boltinn Fremsta afreksfólk Íslands fær 600 þúsund í verktakalaun Sport Hjörvar gaf Ljungberg búning íslenska handboltalandsliðsins Enski boltinn Gísli kom af fjöllum þegar talið barst að Ljungberg Sport Fjórtán ára drengur gaf sig fram við lögreglu Sport Þjálfari Hákonar grét eftir leik Fótbolti Lést aðeins tveimur árum eftir að hún varð Evrópumeistari Sport Fleiri fréttir Einmana á botninum í hléinu Fram steinlá gegn nýliðunum og FH vann Þór Atli Steinn kláraði Stjörnuna Íslendingarnir með sextíu prósent markanna Yfirburðir Hauka sem tapa ekki leik „Sóknarleikurinn vel smurður“ Uppgjörið: Valur - Afturelding 40-37 | Valur gerði Aftureldingu grikk að Hlíðarenda Fimmti sigur Eyjakvenna í röð Fjórði sigur Valskvenna í röð Fái að fresta prófum til að spila fyrir Íslands hönd Arnar með fleiri á tánum: „Hefðum alveg getað verið heppnari“ Samningur Arnars að renna út: „Vonandi ekki síðasta mótið“ Hópurinn sem fer til Rúmeníu á EM Svona var EM-fundur Arnars „Förum að gera klaufamistök og klikka á dauðafærum“ „Stemning í liðinu og traust“ Uppgjörið: Fram - Haukar 26-29 | Haukar enn með fullt hús Magnús Dagur tryggði fyrsta útisigur Eyjamanna síðan í september Ólíkt gengi hjá Íslendingaliðum í sama riðli í Meistaradeildinni Þessar 35 mega spila á EM: Átta hafa ekki spilað landsleik Átta sigrar í átta leikjum hjá Haukum KA-menn burstuðu FH-inga í Krikanum Elín Klara öflug í stórsigri Sävehof HSÍ syrgir einstakan stuðningsmann Enginn valdi Ísland fyrir næsta EM „Mér finnst þessi ruðningslína leiðinleg“ „Sigurinn nærir“ Uppgjörið: Selfoss - Fram 29-35 | Fram hafði betur í botnslagnum Arnór með ellefu og Valsmenn nálgast toppinn Strax aftur á sigurbraut Sjá meira