Stjörnuspá Siggu Kling - Sporðdrekinn: Ef þú lætur þig bara fljóta þá drukknarðu 6. október 2017 09:00
Elsku hjartans merkilegi Sporðdrekinn minn. Þú ert ekki alveg viss allar stundir um hvort þú sért að koma eða fara, hvað þú vilt eða hvað þú vilt ekki. Það er svo sem í lagi en hafðu undirstöðurnar þó alveg á hreinu. Fyrsta setningin til þín er: „Passaðu upp á sjálfan þig og vertu viss um að þú sért sú manneskja sem þú heldur sjálfur mest upp á.“ Slepptu alls ekki taki á draumunum þínum, því það eru svo sannarlega margir draumar sem hafa ræst og það væri mjög gott fyrir þig að skrifa niður alla þá gleði og hamingju sem þú hefur fengið og verðskuldað á síðustu þremur árum, því annars kemur hin niðurdrepandi tilfinning að draga sig í hlé og festast í því að vorkenna sjálfum sér. Þú ert bardagamaður og á hverjum morgni þarft þú að segja við sjálfan þig: „Þetta er minn dagur og ég ætla að vinna mikla eða litla sigra á þessum degi.“ Ef þú lætur þig bara fljóta þá drukknarðu, Sporðdrekar kunna ekki að synda. Þú þarft alltaf að vinna að einhverju takmarki og það er enginn listi yfir það hvað er merkilegt takmark eða hvað er ómerkilegt takmark. Það hefur verið mikil gleði og mikil streita í kringum þig og þú ert svo sannarlega búinn að standa þig vel í öllu sem tengist öðrum. Ég bendi þér á að henda þér út í lífið, trúa á að það muni bjarga þér, hugsa sem minnst og að treysta sem mest. Þú ert að fá svo rosalega merkileg skilaboð úr ótrúlegustu áttum, svo vertu vakandi fyrir því að veröldin er bara einn hugur sem vill þér vel og þú færð tækifæri til að gera líf þitt miklu yndislegra og njóta ólíklegustu aðstæðna sem koma upp á næstunni. Þú ert svo merkilegur karakter ef við ætlum að tala um ást. Þú getur hugsað þig frá ástinni, fundist ekkert nógu fullnægjandi og hangið svo bara eins og úlpa á einhverjum snaga. Ef þér finnst ekkert vera að gerast í ástinni og enginn að láta hjarta þitt slá örar (eins og það á svo sannarlega skilið) þá ertu ekki á réttum stað í ástinni. Ef þér finnst þér líða illa, líta illa út og vera ekki nógu magnaður, þá er hætta á því að að það geti verið vegna þess að þú ert ekki fullnægður í lífinu. Næstu þrír mánuðir gefa þér það að ef þú ert á jákvæðri tíðni, þá færðu ótrúlega möguleika til að skrifa skemmtilegri kafla í lífshandritið þitt, svo þú þarft að þora til að skora. Þetta á líka við í vinnu og skóla, þú getur gefið þig allan og tekur þá fastmótuðu ákvörðun að breyta, því að þegar þú tekur ákvörðun mun ekkert stoppa þig.Frægir Sporðdrekar: Birkir Már Sævarsson landsliðsmaður, Dísa í World Class, Helga Braga Jónsdóttir leikkona, Björk Guðmundsdóttir söngkona, Scarlett Johansson leikkona, Whoopie Goldberg leikkona, Sigríður Elva Vilhjálmsdóttir sjónvarpskona, Emmsjé Gauti rappari, Björk, Indira Ghandi, Karl bretaprins, Hillary Clinton, Leonardo DiCaprio, Magnús Scheving, Steingrímur Sævarr Ólafsson fjölmiðlaráðgjafi, Guðný Hrefna Sverrisdóttir, flugfreyja og gourmé kokkur, Hörður Ágústsson Macland snillingur.
Stjörnuspá Siggu Kling Mest lesið Ekki talað við Franco lengi og vill ekki vinna með honum aftur Bíó og sjónvarp Stjörnulífið: Sjóðheit skvísuferð til Ibiza Lífið Oliver Tree látinn 32 ára að aldri Lífið Dorrit á trampólíni Lífið Jakob Frímann stal senunni í hátískuskyrtu Lífið Inga Reynis selur hæð í Hafnarfirði Lífið Dagskráin í Reykjavík á 17. júní verður svona Lífið Tyra Banks kærir Netflix fyrir ærumeiðingar Bíó og sjónvarp Þórður leikstýrir kvikmyndaútgáfu Dead by Daylight Bíó og sjónvarp 24 Jump Street á leiðinni Lífið Fleiri fréttir Tuttugu gellur á einu kvöldi Dorrit á trampólíni 24 Jump Street á leiðinni Dagskráin í Reykjavík á 17. júní verður svona Inga Reynis selur hæð í Hafnarfirði Jakob Frímann stal senunni í hátískuskyrtu Stjörnulífið: Sjóðheit skvísuferð til Ibiza Oliver Tree látinn 32 ára að aldri Gáfu yfir 50 vinninga í beinni útsendingu Krakkatía vikunnar: HM, risaeðlur og naglaklippur Vildi hjálpa öðrum þótt hún vissi að tíminn væri naumur „Það er ástæða fyrir bólgunni“ Óboðni sturtugesturinn sextán sentímetra kónguló Ekkert líf að verða hrædd á hverju vori Fréttatía vikunnar: NASA, Messi og Mette-Marit Stórslasaðist átján ára eftir ölvaðan ökumann: „Braut öll bein á vinstri hliðinni minni“ Myndaveisla: Veðrið leikur við íbúa höfuðborgarsvæðisins Stærstu rauðu flöggin á stefnumótaforritum Gestir geti fengið innsýn í skapandi samfélag Hafnar.hauss Backstreet Boys frumsýna lag nýrrar Hvolpasveitarmyndar Allt að 200 ára veggjakrot fannst við framkvæmdir Marteinn Helgi Sigurðsson er látinn Hefur þegar fengið starfstilboð Hvað veistu um… árið 2010? Lífseigustu mýturnar um offitu: „Það er ekki sjúkdómur að fitna“ Sjö heitustu brúðkaupstrendin í sumar „Ég var löngu tilbúin að giftast honum“ Rassaumhirða karla í sókn Leggja áherslu á liti, gleði og glimmer Segir Weinstein hafa bannað sér að vera lesbía Sjá meira