Hetjur sem óttast ekkert Tómas Þór Þórðarson í Eskisehir skrifar 7. október 2017 06:00
Strákarnir okkar í íslenska landsliðinu í fótbolta eru einu skrefi frá því að komast beint á HM 2018 eftir magnaðan 3-0 sigur gegn Tyrkjum í Eskisehir í gærkvöldi. Þökk sé jafntefli Finnlands og Króatíu er Ísland nú efst í riðlinum og er öruggt með farseðil til Rússlands vinni það Kósóvó á mánudaginn í Laugardalnum. Hverjum hefði dottið í hug að þetta yrði staðan eftir tapið gegn Finnlandi? Sigur strákanna í gærkvöldi var algjörlega magnaður. Enn eina ferðina gekk Tyrkjum ekkert að brjóta niður fastmótað og vel útfært leikskipulag Íslands og fljótlega fór það að fara í taugarnar á þeim. Í síðustu fjórum leikjum gegn Tyrklandi er íslenska liðið aðeins búið að fá á sig eitt mark og það var draumamark, beint úr aukaspyrnu. Ísland hélt sig við grunngildi sín og skipulag. Undirbúningurinn fyrir leikinn var augljóslega fullkominn bæði er varðar fótboltafræðin og eins varðandi undirbúninginn fyrir stemninguna sem var búist við að myndi ríkja á leiknum. Hún var svakaleg til að byrja með; ærandi læti og baul svo enginn heyrði mannsins mál. Það er ekki nema mánuður síðan króatíska landsliðið mætti til Tyrklands og bognaði undan þessu andrúmslofti. Það gerðu okkar strákar ekki. Hetjur nefnilega óttast ekkert og þessir drengir eru ekkert annað en hetjur. Alltaf þegar maður heldur að þeir séu búnir að toppa sig draga þeir svona frammistöðu fram úr erminni og kemur íslensku þjóðinni, sem er nú þegar búin að fá að fagna með þeim, á óvart. Hver einn og einasti maður vissi hvað hann átti að gera inn á vellinum og gerði það vel. Eins og alltaf er þó ein stjarna sem skín aðeins skærar og að þessu sinni var það Jón Daði Böðvarsson sem átti sviðið. Þó honum gangi illa að skora fyrir landsliðið er hann þyngdar sinnar virði í gulli með vinnusemi sinni og baráttu. En í gær lagði hann upp fyrstu tvö mörkin og var óskabarn þjóðarinnar í nokkrar klukkustundir. Það er skammur tími fyrir Heimi til að vinna með strákana fyrir leikinn á mánudaginn en við vitum að þeir eru klárir. Kósóvó er klisja; sýnd veiði en ekki gefin. Við erum samt með betra lið og ef menn spila svona eins og í Tyrklandi verður mánudagurinn 9. október rauður dagur á dagatölum framtíðarinnar. HM-dagurinn.
HM 2018 í Rússlandi Tengdar fréttir Kári: Hefðum tekið þessa stöðu fyrir mót Kári Árnason, miðvörður Íslands, átti frábæran leik í kvöld sem og allir leikmenn íslensa liðsins í 3-0 sigri á Tyrkjum. Kári segir að liðið hefði tekið þessa stöðu fyrir mót; að vera sigri frá sæti á HM. 6. október 2017 21:23 Jón Daði: Frábært að hjálpa okkur að taka skref í átt að HM Jón Daði Böðvarsson, maður leiksins gegn Tyrkjum í kvöld, var eðlilega ánægður en hélt sig á jörðinni í samtali við Vísi í leikslok. Selfyssingurinn var einnig ánægður með sinn leik. 6. október 2017 21:12 Pyry Soiri kominn í guðatölu á Íslandi Finnski miðjumaðurinn er nýjasta þjóðhetja Íslendinga. 6. október 2017 21:30 Aron Einar: Alveg sama þó hann skori ekki, hann er töffari Aron Einar Gunnarsson, fyrirliði Íslands, segir að leikplan Íslands hafi gengið fullkomnlega upp í Tyrklandi í kvöld, en Ísland vann þar frækinn 3-0 sigur. 6. október 2017 21:45 Twitter í hálfleik: Jón Daði myndi standa af sér fólskulega líkamsárás Twitter er gjörsamlega á hliðinni eftir frábæran fyrri hálfleik strákanna okkar gegn Tyrkjum í Tyrklandi, en leikurinn er liður í undankeppni HM 2018 sem fer fram í Rússlandi. 6. október 2017 19:35 Undankeppni HM: Finnar gerðu Íslendingum mikinn greiða Níu leikir voru í kvöld í undankeppni HM 2018 sem fer fram í Rússlandi. Wales og Írland unnu bæði mikilvæga sigra og Spánn átti í engum vandræðum með Albaníu. 6. október 2017 21:01 Heimir: Risa karaktersigur Heimir Hallgrímsson var að vonum hæstánægður eftir 0-3 sigur Íslands á Tyrklandi í Eskisehir í undankeppni HM í kvöld. 6. október 2017 21:10 Jói Berg: Strákarnir orðnir þreyttir á að gera grín að markaleysinu "Þetta var örugglega einn sá stærsti sigur í sögu íslensks fótbolta“ 6. október 2017 22:06 Einkunnir eftir sigurinn í Tyrklandi: Jón Daði maður leiksins Ísland vann stórbrotinn sigur á Tyrklandi í kvöld, en leiknum lauk með 3-0 sigri Íslands. Jóhann Berg Guðmundsson, Birkir Bjarnason og Kári Árnason skoruðu mörk Íslands og liðið hefur því tryggt sér að minnsta kosti umspilssæti. 6. október 2017 20:42 BBC: Það er mjög líklegt að Ísland verði á HM en ekki Argentína 6. október 2017 21:09 Umfjöllun: Tyrkland - Ísland 0-3 | Frábær frammistaða í Eskisehir og Ísland einum sigri frá sæti á HM Stund sannleikans er runnin upp í Tyrklandi þar sem strákarnir okkar sækja Tyrki heim á einn erfiðasta útivöll heims. Okkar menn þurfa helst að fá eitthvað úr leiknum. 6. október 2017 20:30 Hannes: Æðisleg tilfinning þegar þögn sló á Tyrki "Alveg klárlega einn af stærstu sigrum landsliðsins.“ 6. október 2017 21:48 Kjartan Henry kallaður inn í landsliðið Kjartan Henry Finnbogason kemur inn í íslenska karlalandsliðið í fótbolta fyrir leikinn á móti Kósóvó á mánudagskvöldið. 6. október 2017 13:28 Mest lesið Crystal Palace vann Samfélagsskjöldinn Enski boltinn Sveindís Jane til bjargar á síðustu stundu Fótbolti Hafþór Júlíus fagnaði tólfta titlinum með því að rífa bolinn af sér Sport Mo Salah krefur UEFA um svör vegna Palestínu Pele Enski boltinn Arnar með met í 100 km: „Sýnist þetta vera níundi hraðasti tíminn í heiminum“ Sport Fór holu í höggi í beinni í sjónvarpinu Golf Uppgjör: Vestri-Fram 3-2 | Vestri með sigurmark í uppbótatíma Íslenski boltinn Tveir látnir eftir sama hnefaleikakvöld í Tókýó Sport Enska augnablikið: Lærði 200 ný blótsyrði Enski boltinn Leik lokið: KA - ÍBV 1-0 | Dagur Ingi tryggði KA mikilvæg stig Fótbolti Fleiri fréttir Brøndby náði í sigur heimafyrir Davíð Smári: Ánægður með orkustigið Ísak nældi í gult í tapi Crystal Palace vann Samfélagsskjöldinn Uppgjör: Vestri-Fram 3-2 | Vestri með sigurmark í uppbótatíma Leik lokið: KA - ÍBV 1-0 | Dagur Ingi tryggði KA mikilvæg stig Enska augnablikið: Hjátrú og alsæla Ólafur skoraði en Aalesund fékk skell Ísak skoraði en Lyngby tapaði Umræða um hártog Þróttarakonu í Bestu mörkunum Hákon gaf syni Dagnýjar treyjuna sína Sveindís Jane til bjargar á síðustu stundu Öll mörk Patricks Pedersen í efstu deild Mo Salah krefur UEFA um svör vegna Palestínu Pele Enska augnablikið: Lærði 200 ný blótsyrði Nunez farinn frá Liverpool McLagan framlengir við Framara De Gea: Mun aldrei gleyma þessum leik Gyökeres byrjaður að skora fyrir Arsenal Völsungur kom til baka og nældi í stig Björgvin Karl: Settið sem kom að sunnan ekki í Bestu deildar klassa Uppgjör: FHL-FH 0-2 | Þolinmæði vann þraut FH gegn FHL Diljá með stoðsendingu í fyrsta byrjunarliðsleiknum Enska augnablikið: Mætti sköllóttur á Old Trafford Daníel Tristan lagði upp mark en það var ekki nóg gegn toppliðinu Gerrard: Owen var betri sem táningur en Yamal og Mbappé Albert lagði upp á Old Trafford í síðasta leik United fyrir tímabilið Draumabyrjun Wrexham breyttist í martröð í lokin Isak verður áfram í frystikistunni í fyrsta leik Newcastle Meiðsli Rodri verri en menn héldu Sjá meira
Kári: Hefðum tekið þessa stöðu fyrir mót Kári Árnason, miðvörður Íslands, átti frábæran leik í kvöld sem og allir leikmenn íslensa liðsins í 3-0 sigri á Tyrkjum. Kári segir að liðið hefði tekið þessa stöðu fyrir mót; að vera sigri frá sæti á HM. 6. október 2017 21:23
Jón Daði: Frábært að hjálpa okkur að taka skref í átt að HM Jón Daði Böðvarsson, maður leiksins gegn Tyrkjum í kvöld, var eðlilega ánægður en hélt sig á jörðinni í samtali við Vísi í leikslok. Selfyssingurinn var einnig ánægður með sinn leik. 6. október 2017 21:12
Pyry Soiri kominn í guðatölu á Íslandi Finnski miðjumaðurinn er nýjasta þjóðhetja Íslendinga. 6. október 2017 21:30
Aron Einar: Alveg sama þó hann skori ekki, hann er töffari Aron Einar Gunnarsson, fyrirliði Íslands, segir að leikplan Íslands hafi gengið fullkomnlega upp í Tyrklandi í kvöld, en Ísland vann þar frækinn 3-0 sigur. 6. október 2017 21:45
Twitter í hálfleik: Jón Daði myndi standa af sér fólskulega líkamsárás Twitter er gjörsamlega á hliðinni eftir frábæran fyrri hálfleik strákanna okkar gegn Tyrkjum í Tyrklandi, en leikurinn er liður í undankeppni HM 2018 sem fer fram í Rússlandi. 6. október 2017 19:35
Undankeppni HM: Finnar gerðu Íslendingum mikinn greiða Níu leikir voru í kvöld í undankeppni HM 2018 sem fer fram í Rússlandi. Wales og Írland unnu bæði mikilvæga sigra og Spánn átti í engum vandræðum með Albaníu. 6. október 2017 21:01
Heimir: Risa karaktersigur Heimir Hallgrímsson var að vonum hæstánægður eftir 0-3 sigur Íslands á Tyrklandi í Eskisehir í undankeppni HM í kvöld. 6. október 2017 21:10
Jói Berg: Strákarnir orðnir þreyttir á að gera grín að markaleysinu "Þetta var örugglega einn sá stærsti sigur í sögu íslensks fótbolta“ 6. október 2017 22:06
Einkunnir eftir sigurinn í Tyrklandi: Jón Daði maður leiksins Ísland vann stórbrotinn sigur á Tyrklandi í kvöld, en leiknum lauk með 3-0 sigri Íslands. Jóhann Berg Guðmundsson, Birkir Bjarnason og Kári Árnason skoruðu mörk Íslands og liðið hefur því tryggt sér að minnsta kosti umspilssæti. 6. október 2017 20:42
Umfjöllun: Tyrkland - Ísland 0-3 | Frábær frammistaða í Eskisehir og Ísland einum sigri frá sæti á HM Stund sannleikans er runnin upp í Tyrklandi þar sem strákarnir okkar sækja Tyrki heim á einn erfiðasta útivöll heims. Okkar menn þurfa helst að fá eitthvað úr leiknum. 6. október 2017 20:30
Hannes: Æðisleg tilfinning þegar þögn sló á Tyrki "Alveg klárlega einn af stærstu sigrum landsliðsins.“ 6. október 2017 21:48
Kjartan Henry kallaður inn í landsliðið Kjartan Henry Finnbogason kemur inn í íslenska karlalandsliðið í fótbolta fyrir leikinn á móti Kósóvó á mánudagskvöldið. 6. október 2017 13:28