Skráning í Jólastjörnuna hafin Stefán Árni Pálsson skrifar 9. október 2017 15:15 Tónleikar Björgvins fara fram í Eldborg þann 10.des.
Skráning í Jólastjörnuna 2017 hófst í morgun. Í ár er Jólastjarnan haldin í sjötta skiptið en hér fá ungir söngsnillingar tækifæri á að syngja með Jólagestum í Hörpu í söngkeppni fyrir 14 ára og yngri. Til að taka þátt skulu þátttakendur senda myndband af sér að syngja á skráningarsíðu Jólastjörnunnar á Vísi. Þátttakendur syngja lag að eigin vali, með sínu nefi og senda hlekk á myndbandsupptöku af söngnum á skráningarsíðu Vísis. 12 bestu söngvararnir að mati dómnefndar verða boðaðir í prufur og eftir þær mun sigurvegarinn koma í ljós. Stöð 2 gerir sérstaka þáttaröð um allt ferlið og verða þrír þættir sýndir í seinni hluta nóvember. Í fyrstu tveimur koma keppendurnir tólf í prufur og í þeim þriðja er sigurvegarinn afhjúpaður. Sigurvegarinn mun syngja með Jólagestum Björgvins, 10. desember í Eldborg. Guðrún Lilja Guðbjartsdóttir vann síðustu Jólastjörnu og stóð hún sig einstaklega vel. Hálfdán Helgi Matthíasson bar sigur úr býtum í Jólastjörnunni 2015 en hann var valin úr hópi um tvö hundruð barna sem sóttu um með því að senda myndbönd inn á Vísi. Jólastjarnan 2014 var Gunnar Hrafn Kristjánsson, 11 ára drengur, nemandi í Salaskóla í Kópavogi. Jólastjarnan 2013 var Eik Haraldsdóttir, fædd og uppalin á Akureyri. Stella Kaldalóns sigraði keppnina árið 2012, sem kom henni ánægjulega á óvart en skólasystkini hennar voru aldrei í vafa um að hún myndi vinna. Hinn 14 ára gamli Aron Hannes Emilsson frá Grundarfirði bar á sigur úr býtum í fyrstu keppninni og kom fram þann 3. desember 2011.Hægt er að skrá sig til leiks á síðunni visir.is/jolastjarnan.
Jólastjarnan Mest lesið Stefnir Eiði vegna meðlagsskuldar Lífið Hvar eru Píratarnir sem fóru með himinskautum? Lífið Patrick Stewart látinn Lífið „Ég ætla allavega að deyja á Íslandi“ Lífið Hætt við að hita upp fyrir Azealiu Banks Tónlist Elliði Vignisson er eins og offitu-aktívisti Lífið Erna Mist og Þorleifur selja Lífið Barbara Barrie lést með aðstoð lækna Lífið „Nú erum við trúlofaðar dúllur“ Lífið Hvað veistu um... Með allt á hreinu? Lífið Fleiri fréttir Hvað veistu um... Með allt á hreinu? Patrick Stewart látinn Erna Mist og Þorleifur selja „Nú erum við trúlofaðar dúllur“ Missti röddina á ögurstundu Barbara Barrie lést með aðstoð lækna Stefnir Eiði vegna meðlagsskuldar Sjáðu gjörbreyttan Kaffivagn úti á Granda Hvar eru Píratarnir sem fóru með himinskautum? Elliði Vignisson er eins og offitu-aktívisti „Ég ætla allavega að deyja á Íslandi“ Sjálfuglaður ráðherra og allt í boði mysu Sjóðheitar í ísköldu teiti „Eins og ein sál í tveimur líkömum“ Tryggðu sér sigurinn á ótrúlegan hátt Kakkalakkarnir í Ísrael tóku vel á móti Dorrit Extreme Chill í febrúar í stað september Hálfnakinn steggur handtekinn á Arnarhóli Noah Wyle sá kynþokkafyllsti í heimi Jay-Z sér um hálfleikssýningu Ofurskálarinnar 2027 Hvað veistu um… pitsur? Star Trek-leikarinn Walter Koenig látinn Chris Brown á skilorði Ný skjöl: Var túlkur Kennedys á mála hjá KGB? Tóku í gegn fjögur hundruð fermetra einbýli í Hafnarfirði Tom Brady og Candice Swanepoel slá sér upp Theodór Elmar og Móheiður ástfangin Stjörnulífið: Laumugifting í helli Stukku fram af kletti ofan í Goðafoss Er hægt að treysta aftur eftir framhjáhald? Sjá meira