Lífið

Kaflaskil hjá Unni Ösp og Birni Thors

Stefán Árni Pálsson skrifar
Unnur Ösp og Björn giftu sig árið 2013.
Unnur Ösp og Björn giftu sig árið 2013. Myndir/ fasteignaljósmyndun.is
„Kaflaskil eftir dásamlegan tíma í yndislegu íbúðinni okkar,“ segir leikkonan Unnur Ösp Stefánsdóttir en leikarahjónin Unnur og Björn Thors hafa sett íbúð sína við Marargötu á sölu.

Hjónin eignuðust tvíbura í febrúar en fyrir áttu þau tvö börn. Nú þarf greinilega að stækka við sig og því er íbúðin komin á sölu.

Unnur og Björn leika saman í verkinu Brot úr hjónabandi sem frumsýnt var á síðasta ári. Gera þurfti hlé á verkinu þar sem Unnur gekk með tvíbura. Það fer því aftur í loftið í nóvember.

Um er að ræða mjög bjarta og mikið endurnýjaða 107,2 fermetra neðri hæð með sérinngangi í mjög fallegu þríbýlishúsi á frábærum og rólegum stað við Marargötu í Reykjavík.

Húsið var byggt árið 1929 en í íbúðinni eru þrjú svefnherbergi. Ásett verð er 69,5 milljónir en fasteignamat eignarinnar er 44,7 milljónir.

Hér að neðan má sjá fallegar myndir af eigninni.

Fallegt hús í miðborginni.
Skemmtileg stofa.
Smekkleg borðstofa.
Fín barnaherbergi í eigninni.
Mjög falleg baðherbergi.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.