Vill 300 milljónir frá Virðingu vegna ófullnægjandi ráðgjafar Kristinn Ingi Jónsson skrifar 13. september 2017 10:00 ET Sjón var einn þriggja hluthafa eignarhaldsfélagsins Þorgerðar sem seldi 45 prósenta hlut sinn í Ölgerðinni síðasta haust.
Félagið ET Sjón ehf., í eigu Eiríks Ingvars Þorgeirssonar, krefst þess að fá greiddar liðlega 300 milljónir króna í skaðabætur vegna meintrar ófullnægjandi ráðgjafar af hálfu Auðar Capital, sem síðar sameinaðist verðbréfafyrirtækinu Virðingu. Hefur félagið höfðað mál á hendur Virðingu, en aðalmeðferð fer fram fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur í byrjun næsta árs. ET Sjón er einn þriggja hluthafa eignarhaldsfélagsins Þorgerðar sem seldi 45 prósenta hlut sinn í Ölgerðinni síðasta haust. Félagið fór fram á að sýslumaðurinn á höfuðborgarsvæðinu legði lögbann á söluna, en því var hafnað. Skömmu síðar var tilkynnt um sölu á 69 prósenta hlut í Ölgerðinni. Félagið Þorgerður var stofnað í október 2010 utan um kaup á hlut í Ölgerðinni. Fjárfestingarsjóðurinn Auður 1, í stýringu Auðar Capital, fór fyrir kaupendahópnum og á meirihluta hlutafjár í Þorgerði. ET Sjón á tæplega 30 prósenta hlut í félaginu. Samkvæmt heimildum Markaðarins tengist óánægja Eiríks með ráðgjöf Auðar Capital því að hann hafi þurft að bera kostnað vegna rúmlega milljarðs króna endurálagningar ríkisskattstjóra á Ölgerðina árið 2013 vegna öfugs samruna félagsins frá árinu 2007. Virðing telur málssóknina með öllu tilhæfulausa og hefur krafist sýknu.Fréttin birtisti fyrst í Markaðnum, fylgiriti Fréttablaðsins um viðskipti og efnahagsmál.
Markaðir Mest lesið Stjórnendur þurfa líka stuðning og FOBO á vinnustöðum eykst Atvinnulíf Afgreiðsla launakrafna Play fyrirhuguð 16 mánuðum eftir fallið Viðskipti innlent Magnús leiðir Stofnun atvinnuveganna Viðskipti innlent Samherji selur Margréti til Færeyja Viðskipti innlent Minnsta hlutabréfavelta frá faraldursárinu 2020 Viðskipti innlent Þrotabú Play krefur Einar um skaðabætur Viðskipti innlent Olíuflæðið nálgast fyrra horf en verð lækkar ekki Viðskipti erlent Telja gagnaver skila litlum ávinningi í Noregi Viðskipti innlent Högnuðust um milljarð Viðskipti innlent Ekki sjái fyrir endann á uppsögnum Viðskipti innlent Fleiri fréttir Spá óbreyttum vöxtum Minnsta hlutabréfavelta frá faraldursárinu 2020 Magnús leiðir Stofnun atvinnuveganna Samherji selur Margréti til Færeyja Afgreiðsla launakrafna Play fyrirhuguð 16 mánuðum eftir fallið Vaxtahækkunarferli lokið en langt í lækkun Ekki sjái fyrir endann á uppsögnum Þrotabú Play krefur Einar um skaðabætur Verðbólga í tveggja ára hámarki eftir að skattalækkun rann út Telja gagnaver skila litlum ávinningi í Noregi Á áttunda tug starfsmanna Netapp sagt upp Verðbólga ekki meiri í tvö ár Högnuðust um milljarð Rúmlega tuttugu sagt upp hjá ÍAV Hannes Þór, Hannes Þór og Allan greiða sér 100 milljónir í arð Uppsagnir í Arion banka Loka Krambúðinni á Húsavík Atvinnulausum Íslendingum fjölgaði um 700 á einu ári Verulegur samdráttur hjá Isavia 50skills tryggir 729 milljónir í fjármögnun Mikill munur á afkomu almannatengla Vill að ríkissáttasemjari fái auknar valdheimildir í kjaradeilu Selja fyrir 400 milljónir í Síldarvinnslunni Setja upp fjörutíu smáhýsi í Þjórsárdal Sextán starfsmönnum sagt upp á Siglufirði Vilja að 23 lóðir verði seldar undan Vatnsendaerfingja Launahækkanir gætu orðið upptaktur að harðri lendingu Tíu milljarðarnir sem ráðherra segir hafa farið til bílaleiga Sonja ráðin viðskiptastjóri hjá OK Atvinnuleysi jókst á ný í ágúst Sjá meira