Yfirgefa eyjuna Barbuda fyrir komu Jose Samúel Karl Ólason skrifar 9. september 2017 18:24 Talið er að um þriðjungur bygginga á Barbuda séu eyðilagðar. Vísir/AFP
Yfirvöld eyjunnar Barbuda hafa skipað öllum 1.800 íbúum eyjunnar að yfirgefa hana áður en fellibylurinn Jose fer fram hjá henni. Ekki er útlit fyrir að fellibylurinn, sem er fjórða stigs, fari beint yfir eyjuna en hann mun fara skammt frá henni. Nú þegar er búið að flytja hundruð manna frá eyjunni. Einungis nokkrir dagar eru frá því að fellibylurinn Irma olli gífurlegum skaða á eyjunni, samkvæmt frétt AFP fréttaveitunnar. Talið er að um þriðjungur allra bygginga á eyjunni vera í rúst. Íbúar segjast aldrei hafa upplifað annað eins. Ein kona sem ræddi við blaðamann fréttaveitunnar segist hafa skýlt sér ásamt vini sínum í fataskáp eftir að Irma reif þakið af húsi hennar. „Ég hef aldrei verið jafn hrædd á ævinni. Ég og Jackie héldum utan um hvora aðra og vorum í raun að kveðja,“ sagði Sira Berzas. Þegar auga fellibylsins fór yfir eyjuna hlupu þær út á nærfötunum og fundu lögregluþjóna á ferðinni sem fluttu þær í öruggara húsnæði. Heimili hennar og veitingastaður eyðilögðust. Þær gleymdu þó að taka kettlinginn Houdini með sér, en hann stóð undir nafni og lifði óveðrið af. Ljóst er að íbúar eru ekki allir sáttir við að þurfa að flýja frá eyjunni. Margir verða fluttir til Antigua, en þau segjast ekki vita hvert þau eigi að fara þar.
Fellibylurinn Irma Mest lesið Hjólhýsabyggð færist í Gufunes þrátt fyrir aðfinnslur Innlent „Í einu tilviki var talað um nauðgunarleik“ Innlent „Ég varð bara reiður, endalaust reiður“ Innlent Ellefu taldir af eftir að efnatankur gaf sig Erlent Áframhald á árásum og Trump hefur í hótunum við Óman Erlent Boða róttækar breytingar: Ari íhugar tilboð sem Líf vildi fá Innlent Fagnar því að allir þingmenn fái að kynna sér ESB-gögnin Innlent Saksóknarar rannsaka konu sem Trump braut á Erlent Arnarnesvegi ætlað að stytta bílaraðir Innlent Líkur á hlýjum og votum vetrum á norðurslóðum Erlent Fleiri fréttir Húsleit gerð hjá spænskum sósíalistum Saksóknarar rannsaka konu sem Trump braut á Hart sótt að Sánchez: Réttarhöld yfir litla bróður hefjast í dag Ný tilskipun Talíbana lögleiði barnahjónabönd á ný Áframhald á árásum og Trump hefur í hótunum við Óman Líkur á hlýjum og votum vetrum á norðurslóðum Ellefu taldir af eftir að efnatankur gaf sig Ósáttur við skilyrðin Fundust eftir að hafa verið föst í helli í viku Lenda þremur geimförum á tunglinu á þessu ári Trump-liði vann og Demókratar fagna Hörðustu árásir á Líbanon í langan tíma Hótel í fullum rétti að neita konu um kranavatn Bardagabúr rís við Hvíta húsið Skugganefndir styðja umdeilda Demókrata Kalla rússneska sendiherra á teppið vegna hótana Gera almenningssamgöngur ódýrari vegna olíukreppunnar Fleiri „brúðir-ISIS“ lenda í Ástralíu Ráðist á heilbrigðisstarfsmenn í ebólu-faraldri Æfðu árás á Suður-Kóreu Fjögur látin í árekstri skólarútu og lestar Hóta frekari árásum og hvetja sendifulltrúa til að flýja Kænugarð Bandaríkjaher gerði árásir á írönsk skotmörk í dag þrátt fyrir vopnahlé Margrét Þórhildur aftur inn á sjúkrahús Hitamet í maí slegið í Bretlandi Tæplega tuttugu fluttir á sjúkrahús vegna óþefs Rubio vongóður um vopnahlé Arftaki 757 aftur á teikniborði Boeing Trump vill ekki flýta sér Ofurhljóðfrárri eldflaug skotið að Úkraínu Sjá meira