Haustspá Siggu Kling - Fiskurinn: Það er í þínu eðli að vera í sambandi 1. september 2017 09:00
Elsku Fiskurinn minn, það er svo ríkt í eðli þínu að vera veislustjóri alveg sama í hvaða partíi þú ert. Sumir kalla það stjórnsemi en það er þér í blóð borið að redda og bjarga svo allt gangi vel, helst hjá öllum. Núna er það svo sterkt í orkunni þinni að gefast bara upp fyrir því sem þú getur ekki breytt og breyta aðeins því sem þú getur. Svo æðruleysisbænin góða á vel við í því sem þú ert að gera. Þú hefur mikið til brunns að bera og í þér býr mikill skemmtikraftur, en það eina sem ég vil skila til þín frá hjartanu er: haltu í húmorinn þinn! Að hafa svo magnaðan húmor, eins og þann sem þú hefur, er ekki á allra færi. Kaldhæðni svífur oft yfir setningunum þínum og eins og Winston Churchill sagði þá er það að segja brandara háalvarlegt mál. Það eru bara þeir sem hafa sterka tilfinningagreind sem geta tvistað á þessum sviðum eins og þú getur elskan mín. Þú verður svo öflugt tengdur við tilfinningagreind þína á þessu tímabili sem er að byrja og þess vegna sérðu líf þitt í öðru ljósi. Það gerir lífið svo miklu auðveldara og skemmtilegra. Það er mikilvægt að þú athugir að hvert ár sem bætist við líf þitt gefur þér þroska og byggir upp þetta kómíska sjálfstraust þitt. Ein besta vinkona mín, sem er í þessu algjörlega frábæra merki, þurfti alltaf að eiga sjóð á bak við sig til þess að þora og allt gekk mjög vel hjá henni. En svo kom sá dagur að hún þurfti að eyða þessum sjóði og þá virtist hún ekki hafa þor eða kjark til að koma neinu í framkvæmd. Hún gerði sér þá grein fyrir að sjóðurinn var þetta bakland sem leyfði henni að vera Fiskur. Núna er hún búin að byggja upp nýjan sjóð sem gerir hana afslappaðri og allt gengur upp þó hún hendi sér í djúpu laugina inn á milli. Skilaboðin í þessari sögu er að þú þarft að hafa eitthvað að treysta á, eitthvað sem þú byggir upp og gefur þér öryggi til þess að leyfa þér að synda út lífið og skapa það sem þú vilt, þegar þú vilt. Þegar þú finnur til óöryggis, elskan mín, er það bara vegna þess að þér finnst grunnurinn ekki nógu sterkur. Þá ferðu að búa til í huga þínum að öll möguleg vitleysa muni mæta þér í lífinu, en þá missirðu húmorinn og það má ekki gerast. Þó að þér finnist þú óöruggur og einskis nýtur þá gefur þú samt frá þér svo mikla hlýju og umhyggju að fólk lítur á þig sem drottninguna eða kónginn í maurabúinu. Það sem byrjaði að breytast í vor og það sem þér fannst jákvætt á því tímabili er að magnast upp á þessum komandi mánuðum sem þú ert að fara inn í. Þetta byrjaði kannski lítið en margfaldast og gefur þér hugrekki í öllu þínu veldi án þess að hafa hræðslu. Það er í þínu eðli að vera í sambandi enda er fiskamerkið táknað með tveimur fiskum. Svo gefðu þig allan í að tengja þig ástargyðju eða goði sem skilur húmorinn þinn og þessa fallegu stjórnsemi sem í þér býr. Og sá aðili sem á að vera með þér er sá sem lætur þér líða eins og hann sé tryggt og öruggt bakland eða sá sjóður (og er ekki að tala um peninga) sem fær þig til að vaxa og vera afslappaður á sama tíma Setningin þín er: Hugurinn leiðir mig til sigurs - Imagine (John Lennon)Frægir Fiskar: Elísabet Ásberg listamaður, Beggi hans Pacasar, Baltasar Kormákur leikstjóri, Díana Ómel fjöllistakona, Árni Johnsen, fyrrverandi þingmaður, Albert Einstein, Sigmundur Davíð Gunnlaugsson forsætisráðherra, Vigdís Hauksdóttir þingkona, Ilmur Kristjánsdóttir leikkona, Svavar Örn engill, Páll Óskar poppstjarna, Katla Sign og Baby Kling, Lína Rut listaperla, Nanna Lovísa dýranuddari.
Stjörnuspá Siggu Kling Mest lesið Ekki talað við Franco lengi og vill ekki vinna með honum aftur Bíó og sjónvarp Stjörnulífið: Sjóðheit skvísuferð til Ibiza Lífið Dorrit á trampólíni Lífið Oliver Tree látinn 32 ára að aldri Lífið Jakob Frímann stal senunni í hátískuskyrtu Lífið Inga Reynis selur hæð í Hafnarfirði Lífið Tuttugu gellur á einu kvöldi Lífið Dagskráin í Reykjavík á 17. júní verður svona Lífið Tyra Banks kærir Netflix fyrir ærumeiðingar Bíó og sjónvarp Þórður leikstýrir kvikmyndaútgáfu Dead by Daylight Bíó og sjónvarp Fleiri fréttir Tuttugu gellur á einu kvöldi Dorrit á trampólíni 24 Jump Street á leiðinni Dagskráin í Reykjavík á 17. júní verður svona Inga Reynis selur hæð í Hafnarfirði Jakob Frímann stal senunni í hátískuskyrtu Stjörnulífið: Sjóðheit skvísuferð til Ibiza Oliver Tree látinn 32 ára að aldri Gáfu yfir 50 vinninga í beinni útsendingu Krakkatía vikunnar: HM, risaeðlur og naglaklippur Vildi hjálpa öðrum þótt hún vissi að tíminn væri naumur „Það er ástæða fyrir bólgunni“ Óboðni sturtugesturinn sextán sentímetra kónguló Ekkert líf að verða hrædd á hverju vori Fréttatía vikunnar: NASA, Messi og Mette-Marit Stórslasaðist átján ára eftir ölvaðan ökumann: „Braut öll bein á vinstri hliðinni minni“ Myndaveisla: Veðrið leikur við íbúa höfuðborgarsvæðisins Stærstu rauðu flöggin á stefnumótaforritum Gestir geti fengið innsýn í skapandi samfélag Hafnar.hauss Backstreet Boys frumsýna lag nýrrar Hvolpasveitarmyndar Allt að 200 ára veggjakrot fannst við framkvæmdir Marteinn Helgi Sigurðsson er látinn Hefur þegar fengið starfstilboð Hvað veistu um… árið 2010? Lífseigustu mýturnar um offitu: „Það er ekki sjúkdómur að fitna“ Sjö heitustu brúðkaupstrendin í sumar „Ég var löngu tilbúin að giftast honum“ Rassaumhirða karla í sókn Leggja áherslu á liti, gleði og glimmer Segir Weinstein hafa bannað sér að vera lesbía Sjá meira