Kid Rock fær stuðning frá Repúblikanaflokknum Kjartan Kjartansson skrifar 12. ágúst 2017 09:29 Kid Rock gæti orðið þekktur sem herramaðurinn frá Michigan verði hann kjörinn til Bandaríkjaþings. Vísir/EPA
Forysta Repúblikanaflokksins í Bandaríkjunum er sögð áhugasöm um að tónlistarmaðurinn Kid Rock bjóði sig fram fyrir flokkinn til öldungadeildar Bandaríkjaþings. Kid Rock hefur ekki lýst því yfir að hann ætli að bjóða sig fram í heimaríki sínu Michigan. Það vakti hins vegar mikla athygli þegar hann skráði lénið kidrockforsenate.com og tísti framboðsmyndum. Skoðanakönnun sem gerð var í lok júlí sýndi að aðeins átta prósentustigum færri studdu Kid Rock en Debbie Stabenow, öldungadeildarþingmann Michigan-ríkis úr röðum demókrata. Tónlistarmaðurinn er ef til vill hvað best þekktur fyrir að hafa verið í sambandi við fyrrverandi Strandvarðarleikkonuna Pamelu Anderson til nokkurra ára.„Villtur sveitalubbi“ ætti ekki að fæla kjósendurNú segir Politico að Senate Leadership Fund, pólitísk aðgerðarnefnd sem var stofnuð fyrir forsetakosningarnar í fyrra og nýtur stuðnings Mitchs McConnell, oddvita repúblikana í öldungadeildinni, hafi lýst yfir stuðningi við tónlistarmanninn. „Við værum í raun og veru mjög áhugasöm um framboð hans,“ hefur blaðið eftir Steven Law, forseta nefndarinnar. Kid Rock studdi Donald Trump í síðustu forsetakosningum og Mitt Romney, frambjóðanda repúblikana gegn Barack Obama árið fjórum árum áður. Law segir að það eigi ekki að fæla kjósendur frá því að kjósa Kid Rock að hann sé talinn „villtur sveitalubbi“. Hann sé raunverulega snjall náungi sem hugsi um stefnumótun og sé klókur athafnamaður. Kosið verður til Bandaríkjaþings í nóvember á næsta ári.
Mest lesið Lady Gaga orðin mamma Lífið Herbert kveikti í myndverinu í fyrsta þætti Lífið Presturinn sem hataði kristinfræði Lífið „Verstur af öllu er helvítis doðinn, vera heima og vorkenna sér“ Tónlist Fréttatía vikunnar: Þagnargreiðsla, tannbursti og hálfvitar Lífið Saga um par með Downs og dverga reyndist tröllasaga Lífið Pétur og Birgitta nýtt par Lífið Sigrún Ósk mætt á RÚV Lífið Iceguys í erlendum raunveruleikaþætti Lífið TikTok-stjörnur fjölga mannkyninu Lífið Fleiri fréttir Lady Gaga orðin mamma Herbert kveikti í myndverinu í fyrsta þætti Presturinn sem hataði kristinfræði Fréttatía vikunnar: Þagnargreiðsla, tannbursti og hálfvitar Sökuð um að siga fylgjendum á móður fyrrverandi Iceguys í erlendum raunveruleikaþætti TikTok-stjörnur fjölga mannkyninu Pétur og Birgitta nýtt par Sigrún Ósk mætt á RÚV Saga um par með Downs og dverga reyndist tröllasaga Hvað veistu um... gönguleiðir? „Ég þurfti að segja heiminum að þú værir með krabbamein“ Persónuleg Vala Matt opnar sig um einkalífið Fallegar kveðjur og ósagðar sögur af meistara grínsins Faldi diktafóna, tók myndir og át til að fanga stemminguna Uppeldisfræðingurinn reyndist vel sósuð fótboltabulla Öldrunarlæknir og verkfræðingur selja miðbæjarperlu Ungfrú Austurríki látin aðeins 22 ára Leiðir skilja hjá leikhúspari Stærðarinnar hola gleypti innkeyrslu Cage Nornir komu saman á miðilsfundi Átti óheillavænlegt samtal við Kennedy fyrir flugslysið: „Ég þarf ekki aðstoðarflugmann“ Prinsinn hefur nám við Eton-skóla Hafnaði tæpum fimm milljarða þagnarsamningi Musks South Park verður South America Kappsmál sett á ís Áslaug Arna setur lúxusíbúð á leigu Hvað veistu um… textana hans Bubba? Engin ákvörðun tekin um Eurovision þátttöku Sögufrægt verslunarhús til sölu Sjá meira