Innlent

Fleiri nórótilfelli greinast hjá skátum á Úlfljótsvatni

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Fjöldahjálparstöð var komið upp í grunnskólanum í Hveragerði til að hýsa skátana sem veiktust.
Fjöldahjálparstöð var komið upp í grunnskólanum í Hveragerði til að hýsa skátana sem veiktust. Vísir/Jóhann K. Jóhannsson

Nokkrir skátar sem dvöldu í fjöldahjálparstöðinni í Hveragerði um nýliðna helgi veiktust í dag. Þetta segir Elín Esther Magnúsdóttir, framkvæmdastjóri útilífsmiðstöðvar skáta á Úlfljótsvatni, í tilkynningu til fjölmiðla.



Einkennin eru þau sömu og hjá þeim sem veiktust aðfaranótt föstudags, uppköst og niðurgangur, en staðfest hefur verið að um nóróveiru væri að ræða.



„Okkur skilst að þetta sé ekki óvenjulegt við þessar aðstæður, að einkenni komi seinna fram hjá sumum en öðrum og að í kjölfarið séu líkur á einhverjum smitum til viðbótar. Það var því allt eins von á þessu,“ segir Elín Esther Magnúsdóttir, framkvæmdastjóri Úlfljótsvatns, en þar dvelja skátarnir.



Færðir í einangrað rými

„Við höfum búið um þá veiku í sér húsi og höfum fengið lánaða bedda frá Rauða krossinum ef ske kynni að okkur skorti rúm. Alls hafa fimm einstaklingar veikst í dag og búið er að aðskilja þá frá öðrum á meðan þetta gengur yfir,“ segir Elín.



Skátarnir séu í reglulegu sambandi við heilbrigðisstarfsfólk sem var skátunum innan handar um helgina. Á þessu stigi sé ekki litið svo á að þörf sé á frekari aðgerðum að sögn Elínar.



„Á þessum tímapunkti er ekkert sem bendir til þess að það sé eitthvað á staðnum sem veldur þessu, en nú verður allt kapp lagt á að koma í veg fyrir frekari smit á milli fólks,“ segir Elín.



181 erlendur skáti og foringjar voru færðir í einangrun í grunnskólann í Hveragerði aðfaranótt föstudags eftir að á sjötta tug þeirra greindust með fyrrnefnd einkenni nóróveisu. Bati flestra var þó fljótur og allir höfðu verið útskrifaðir í gær.


Tengdar fréttir

Skátarnir sem veiktust allir útskrifaðir

Unnið er að sótthreinsun fjöldahjálparmiðstöðvarinnar í Hveragerði sem hýsti skátana sem sýktust af nóróveiru í vikunni. Búið er að útskrifa síðustu skátana þaðan.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×