Ágætt veður til heimferðar í dag Kristín Ólafsdóttir skrifar 7. ágúst 2017 08:55 Í dag er spáð norðlægri átt, víða á bilinu 3-8 m/s svo vindur ætti ekki að hafa áhrif á þá sem eru á heimleið, segir veðurfræðingur. vísir/andri marínó
Veður hefur verið með rólegasta móti þessa verslunarmannahelgi en strax á morgun skiptir veðrið um gír, að því er segir í hugleiðingum veðurfræðings hjá Veðurstofu Íslands. Ágætt veður verður þó til ferðalaga í dag en margir hyggja ef til vill á heimferð. „Í dag er spáð norðlægri átt, víða á bilinu 3-8 m/s svo vindur ætti ekki að hafa áhrif á þá sem eru á heimleið. Skúrir eða rigning í flestum landshlutum, en yfirleitt þurrt á Vesturlandi eftir hádegi,“ segir í hugleiðingum veðurfræðings. Vindur um verslunarmannahelgina hefur alla jafna verið hægur, sem veðurfræðingur telur heppilegt, en skúrir hafa þó verið nokkuð tíðar síðustu daga. „Margir hafa þó fengið á sig skúrir og flestir hefðu viljað hafa meira sólskin, en það verður aldrei á allt kosið.“ Á morgun skiptir veðrið hins vegar um gír. Þá gengur í sunnan kalda eða strekking með rigningu, sem gert er ráð fyrir að verði drjúg seinnipartinn á morgun og annað kvöld. Útlitið næstu daga er því vinda- og vætusamt.Hér að neðan má sjá veðurhorfur á landinu í dag og næstu daga eins og fram kemur á vef Veðurstofu Íslands:Í dag og á morgun: Norðlæg eða breytileg átt 3-8 m/s. Víða skúrir eða rigning, en yfirleitt þurrt á Vesturlandi eftir hádegi. Gengur í sunnan 8-13 á morgun með rigningu og súld. Hægari vindur og birtir til á austanverðu landinu, en bætir í vind og fer að rigna þar annað kvöld. Hiti 8 til 16 stig, hlýjast á Suðurlandi í dag, en á Austurlandi á morgun.Á miðvikudag: Breytileg og síðar norðlæg átt 3-10 og víða skúrir eða rigning, en styttir upp að mestu seinnipartinn. Hiti frá 8 stigum á Norðurlandi, upp í 17 stig suðaustanlands.Á fimmtudag: Austan og norðaustan 8-13, en 10-18 með suðurströndinni. Víða rigning, en úrkomulítið norðvestantil á landinu. Hiti 8 til 14 stig.Á föstudag: Norðaustan og norðan 8-15 og rigning norðaustantil á landinu, en annars þurrt. Hiti 6 til 14 stig, hlýjast sunnanlands.
Veður Mest lesið Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða Innlent Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Innlent Sex svín drápust eftir annað innbrot Innlent Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Innlent „Þetta er smjörklípa“ Innlent Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Innlent „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Innlent Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Innlent Enginn handtekinn vegna hótana í garð Þorgerðar Innlent Samfélagið syrgir ungmennin sem létust Innlent Fleiri fréttir Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Sonur þingmannsins í áframhaldandi gæsluvarðhald Rúvarar verði einir eftir í Efstaleitinu Stefnan tengist ekki þjóðaratkvæðagreiðslu Talsvert tjón og týndar tennur Eigendur Santé neita sök Samfélagið syrgir ungmennin sem létust Sex svín drápust eftir annað innbrot „Þetta er smjörklípa“ Minningarstundir og ESA undirbýr dómsmál Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Aðild að ESB hafi aldrei verið markmið í sjálfu sér Einn grunaður um íkveikju á Center Hotel Skjaldbreið Bruninn mikið áfall og tjónið líklega verulegt í versluninni Um þriðjungur þjóðarinnar horfði á síðasta fréttatímann Flúði hótelherbergið vegna brunans og gleymdi tönnunum Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Eldri borgarar fái sanngjarnari tekjur þrátt fyrir aukin gjöld Gestir fluttir á önnur hótel vegna skemmda eftir brunann Enginn handtekinn vegna hótana í garð Þorgerðar Lægð nálgast og hviður geta orðið bílum skeinuhættar Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða „Hér var enginn glæpur og ekki heldur gáleysi“ Tveir á slysadeild í kjölfar bruna á hóteli í miðbænum Tvær líkamsárásir í miðbæ í nótt Hálft ár fyrir ræktun á þriðja hundrað kannabisplantna Kynna úrræði sem eigi að liðka fyrir kjarasamningum „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Allir níu áfram í haldi Sjá meira