Schulz mun sitja sem fastast Þórgnýr Einar Albertsson skrifar 9. ágúst 2017 06:00 Baráttan fyrir þingkosningar í Þýskalandi er hafin. vísir/afp
Martin Schulz, kanslaraefni þýska Jafnaðarmannaflokksins, mun ekki segja af sér formannsembætti í flokknum jafnvel þótt flokkur hans tapi í þingkosningum næsta mánaðar. Skoðanakannanir benda sterklega til þess að einmitt það muni gerast í september. Kristilegir demókratar, flokkur Angelu Merkel kanslara, mælast með 37 til 38 prósenta stuðning í fjórum nýjustu könnununum. Aftur á móti mælast Jafnaðarmenn með 23 til 25 prósenta fylgi og er því ljóst að nokkur munur er á flokkunum. „Ég mun að sjálfsögðu sækjast eftir endurkjöri á næsta landsþingi,“ sagði Schulz við fjölmiðla í gær. „Jafnaðarmannaflokkurinn myndi njóta þess að leiðtogar hans þjónuðu lengur.“ Schulz var kosinn leiðtogi flokksins á landsþingi í mars. Fékk hann hundrað prósent greiddra atkvæða. Í kjölfar landsþingsins tók fylgi Jafnaðarmannaflokksins kipp en það lækkaði þó aftur í fyrra horf. Áður hafði hann meðal annars gegnt hlutverki forseta Evrópuþingsins. Jafnaðarmannaflokkurinn hefur undanfarið kjörtímabil setið með Kristilegum demókrötum í ríkisstjórn og er ekki útilokað að það samstarf haldi áfram að loknum kosningum. Þó gefa sumar skoðanakannanir til kynna að hægriflokkurinn Frjálsir demókratar gæti fengið nógu marga þingmenn til að tryggja meirihluta með flokki Merkel.
Mest lesið Leidd út í járnum eftir lögregluaðgerð í Skipholti Innlent Lést í umferðarslysi við Vík í Mýrdal Innlent „Minnstu munaði að þetta yrði hennar hinsta ferð“ Innlent Veggur af fólki mætti svöngum tónleikagestum Innlent „Það jákvæða við þetta er að þeir verða hundeltir núna“ Innlent „Gekk kannski ekkert endilega hratt alltaf“ Innlent Hafði fé af mótsgesti Innlent Sjósundsmaður tilkynntur til lögreglu Innlent Undarlegt mál á Þingvöllum og þýsk öfgaöfl Innlent Sól úti um allt og hátt í sautján gráður Innlent Fleiri fréttir „Konur eru svangari, fátækari og örvæntingarfyllri en nokkru sinni fyrr“ Sagður ætla að tilkynna afsögn á morgun Vance þreifar fyrir sér í Sviss Níu í lífshættu og einn látinn eftir lestarslys í Englandi Segjast hafa lokað Hormússundi á ný Meloni segir Trump skrökva upp á sig Witkoff stefnir til Sviss Þungt haldinn eftir að kýr réðst á tvo Ráðherrar krefja Starmer um afsögn Ísrael semur um vopnahlé við Hezbollah Konungur Norðursins sækir að Starmer Hættu skyndilega við viðræðurnar í Sviss Íranir segjast ætla að taka gjald af siglingum um sundið „Það verða engir konungar“ Telja dráp á rússneskum teiknara „pólitískt launmorð“ Ein stærsta drónaárásin á Rússland frá upphafi stríðsins Leghálskrabbameini nánast útrýmt í Bretlandi eftir bólusetningarátak Þetta er í samkomulagi Trumps við Írani Fuglaflensan stráfelldi kópa á suðurskautinu Trump undirritaði samkomulag við Írani Spá allt að fjörutíu stiga hita Rex Heuermann fær lífstíðardóm Eins árs gamalt barn skotið til bana af lögreglumanni Rex Heuermann leiddur fyrir dómara í dag Mette-Marit krónprinsessa fékk ný lungu í vel heppnaðri aðgerð Skopmyndateiknari skotinn til bana Rússnesk freigáta skaut varúðarskotum að skútu í Ermarsundi Rússar skipulögðu íkveikjur gegn forsætisráðherra Bretlands Segjast hafa sprengt olíuhreinsistöð nærri Moskvu Stefna á að hafa ný aðildarríki í styttri ól Sjá meira