Aftur ellefta í Lundúnum Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 9. ágúst 2017 06:00 Ásdís grýtir spjótinu í gær. vísir/getty
Ásdís Hjálmsdóttir endaði í 11. sæti í úrslitum í spjótkasti á heimsmeistaramótinu í frjálsum íþróttum sem fer fram í London þessa dagana. Ásdís endaði einnig í 11. sæti í úrslitum á Ólympíuleikunum fyrir fimm árum. Keppnin fór þá fram á sama velli, Lundúnaleikvanginum, þar sem Ásdís virðist kunna afar vel við sig. Ásdís tryggði sér sæti í úrslitunum með því að kasta 63,06 metra í undanúrslitunum á sunnudaginn. Það var níunda besta kastið í undanúrslitunum. Ásdís byrjaði á því að kasta 57,38 metra og var í 10. sæti eftir 1. umferðina. Flestir keppendurnir gáfu í í 2. umferðinni og köstuðu lengra. Það gerði Ásdís einnig en annað kast hennar var afar gott, 60,16 metrar. Það kom Ármenningnum upp í 9. sætið, einu sæti frá því að komast í átta kvenna úrslit. Það var allt undir í síðasta kasti Ásdísar. Þar gerði hún ógilt og möguleikinn á að komast í átta kvenna úrslit var því úr sögunni. Þetta er þriðji besti árangur Ásdísar á stórmóti. Hún endaði í 8. sæti á EM í Amsterdam í fyrra og í 10. sæti á EM í Barcelona 2010. Sumarið hefur verið afar gott hjá Ásdísi. Hún vann gull á Smáþjóðleikunum og bætti svo Íslandsmetið sitt í síðasta mánuði.
Frjálsar íþróttir Mest lesið Fremsta afreksfólk Íslands fær 600 þúsund í verktakalaun Sport Eiður fær enn hlýjar þakkir á Anfield Enski boltinn Ítalinn ungi hágrét eftir sögulegan heimsmeistaratitil Formúla 1 Sjáðu mark Havertz og „augljósa vítið“ sem ekki var dæmt Enski boltinn Segir að Cristiano Ronaldo hafi verið búinn árið 2021 Enski boltinn Tíunda markið í húsi hjá Sveindísi Jane í lokaleiknum Fótbolti Halldór tekinn til starfa með nýja teyminu Íslenski boltinn Eiður fann til með Liverpool Enski boltinn Tómas riðaði eftir höfuðhögg og endaði á sjúkrahúsi Fótbolti Ísland náði fram hefndum og fagnaði titlinum Sport Fleiri fréttir Segir að Cristiano Ronaldo hafi verið búinn árið 2021 Messi tryggði Inter Miami mikilvægan sigur Tíunda markið í húsi hjá Sveindísi Jane í lokaleiknum Eiður fær enn hlýjar þakkir á Anfield Dagskráin í dag: Bónus-deild kvenna og umferðinni lýkur í Newcastle Fremsta afreksfólk Íslands fær 600 þúsund í verktakalaun Ítalinn ungi hágrét eftir sögulegan heimsmeistaratitil Markvörður ársins náði að stöðva Orra Tómas riðaði eftir höfuðhögg og endaði á sjúkrahúsi Halldór tekinn til starfa með nýja teyminu Sjáðu mark Havertz og „augljósa vítið“ sem ekki var dæmt Einmana á botninum í hléinu „Viss um að við gerðum alla ákaflega stolta“ Góðar fréttir fyrir landsliðið og Mikael Egill á uppleið Fram steinlá gegn nýliðunum og FH vann Þór Meistararnir á toppnum eftir langþráðan sigur á Anfield Júlíus með ný skilaboð til landsliðsþjálfarans Real heldur sig nálægt Barcelona Eiður fann til með Liverpool Ísland náði fram hefndum og fagnaði titlinum Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Eiður með gæsahúð á Anfield Ída Marín og Guðrún skoruðu í stórsigri Atli Steinn kláraði Stjörnuna Marc McAusland tekur við Njarðvík Ekki unnið á Anfield í 14 ár Pálmi Rafn tekur hanskana af hillunni og semur við Njarðvík Hildur skoraði í sigri Fabregas hafði betur gegn Þóri Tryggvi hafði betur gegn Rubio Sjá meira