Saka stjórnvöld um dýraníð Sunna Sæmundsdóttir skrifar 30. júlí 2017 20:00
Samtökin Jarðarvinir saka stjórnvöld um dýraníð og hyggja á málarekstur. Þau vilja að griðartími hreindýrskálfa verði lengdur um einn mánuð og að hreindýraveiðum verði seinkað. Hreindýraveiðar eru þegar hafnar þetta sumarið en fram til 1. ágúst má einungis fella tarfa. Eftir það má einnig skjóta kýr. Heildarstofninn á Íslandi telur um 6.000 dýr en veiðikvóti þessa árs telur 1.315 hreindýr. Þar af eru 922 kýr. Samtökin Jarðarvinir segja of snemmt að hefja veiðar á kúm á þessum tíma þar sem kálfarnir séu ekki tilbúnir að skilja við mæður sínar. „Þær eignuðust kálfana sína um mánaðarmótin maí/júní, eða seint í maí, og kálfarnir eru rétt tveggja mánaða gamlir," segir Óli Anton Bieltvedt, kaupsýslumaður og talsmaður Jarðarvina. „Dýrin í eðli sínu þurfa á aðstoð, í fyrsta lagi mjólk, en aðstoð og vernd móður sinnar að halda í allt að eitt ár," segir Óli. Hann leggur til að griðartími kálfa verði lengdur um einn mánuð og að veiðum á kúm verði seinkað þar til 1. september. Þannig fái kálfarnir auka mánuð á spena. Hann telur málið varða við nokkur ákvæði laga um dýravelferð og bendir meðal annars á að kýrnar séu skotnar fyrir framan kálfana. Óli hefur reynt að benda stjórnvöldum á málið en talað fyrir daufum eyrum. „Við teljum að með þessu athæfi sé verið að brjóta þau lög í mörgum efnum, nokkrar greinar. Ég hef því beðið lögfræðing um að skoða þetta mál með það í huga að kæra eða stefna stjórnvöldum fyrir þetta athæfi sem ég tel að standist alls ekki," segir Óli. Umhverfis- og auðlindaráðherra ákveður hreindýrakvóta að fengnum tillögum frá Umhverfisstofnun en hvorki náðist í ráðherra né forstjóra Umhverfisstofnunar vegna málsins í dag.
Mest lesið Höfuðborgarsvæðið skalf Innlent Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Innlent Fundið brak úr flugvélinni sem týndist á leið frá Bermúda Erlent Katla skelfur Innlent Mikill viðbúnaður eftir að óþekktur hlutur fannst í sjónum Erlent Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Innlent Lægðin ætlar ekki að láta okkur í friði alveg strax Veður Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Innlent Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna Innlent Sjúkraflugvél týndist á leið frá Bermúda Erlent Fleiri fréttir Ók bílnum yfir kant og upp á gras en hafnaði að lokum á ljósastaur Höfuðborgarsvæðið skalf Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Katla skelfur Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna „Okkur finnst við vera undanskilin“ Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Sjá meira