Saga EM er saga Þýskalands Henry Birgir Gunnarsson skrifar 16. júlí 2017 08:00 Sex í röð. Þýskaland hefur unnið EM sex sinnum í röð. Þýska liðið fagnar hér titlinum á síðasta EM. vísir/getty
Það eru margir sem spá því að Þýskaland vinni Evrópumótið í Hollandi. Ekki að ástæðulausu því Þýskaland hefur hampað bikarnum í sjö af þeim átta skiptum sem mótið hefur farið fram. Það var aðeins árið 1993 sem önnur þjóð vann en það var Noregur með 1-0 sigri í úrslitaleik gegn Ítalíu. Það ár varð Þýskaland að sætta sig við fjórða sætið á mótinu. Noregi hefur iðulega gengið vel á EM og farið fjórum sinnum í úrslit. Norska liðið hefur aftur á móti lent á þýska stálveggnum eins og allar hinar þjóðirnar. Þýskaland er búið að vinna EM núna sex sinnum í röð og þýsku stelpurnar hafa ekki fengið nóg. Þær elska að vinna og sigurhefðin er rík í þýska boltanum. Saga EM kvenna er ekki löng en svo sannarlega á réttri leið. Fyrsta óopinbera EM fór fram árið 1969 en þá tóku fjórar þjóðir þátt. Ítalía vann þá Danmörku, 3-1, í úrslitaleiknum á meðan England vann 2-0 sigur á Frakklandi í bronsleiknum. Það liðu tíu ár þar til annað óopinbert EM fór fram. Þá snerist dæmið við og Danmörk vann sigur á Ítalíu í úrslitaleiknum, 2-0. Tólf þjóðir tóku þátt að þessu sinni og Svíþjóð fékk brons eftir sigur á Englandi í vítaspyrnukeppni. Á þessum tíma var áhuginn að aukast á kvennaknattspyrnu og Knattspyrnusamband Evrópu, UEFA, fór þá loksins að setja á mót fyrir kvennalið. UEFA fór þó varlega af stað og árin 1984, 1987 og 1989 fengu aðeins fjögur lið að taka þátt í mótinu. Svíþjóð, Noregur og Vestur-Þýskaland unnu þessi þrjú mót. Árið 1991 var loksins byrjað að kalla mótið EM eins og hjá strákunum. Mótið fór þá fram í Danmörku en þó aðeins með fjórum liðum líkt og áður. Þýskaland vann úrslitaleikinn gegn Noregi, 3-1, eftir framlengingu. Noregur vann árið 1993 og Þýskaland tveimur árum síðar. Í öll skiptin voru aðeins fjögur lið á mótinu. Það er ekki fyrr en árið 1997 sem mótið er loksins stækkað og átta þjóðir unnu sér inn farseðil á lokamótið. Það breytti engu um niðurstöðuna. Þýskaland varð Evrópumeistari. Eftir mótið árið 2001, sem Þýskaland vann auðvitað, var ákveðið að láta fjögur ár líða á milli móta líkt og þekkist í stórmótum hjá körlunum. Það er samt ekki fyrr en 2009 sem þjóðum á lokamótinu er fjölgað í tólf. Árin 2009 og 2013 voru tólf þjóðir á EM en núna verða í fyrsta skipti sextán þjóðir á lokamóti EM. EM kvenna heldur áfram að stækka og verður veglegra í hvert einasta skipti. Áhorfendum fjölgar líka og áhugi fjölmiðla á mótinu hefur aukist í takt við fjölgun þjóða á lokakeppninni. Eins og áður segir verða augu margra á þýska liðinu sem er alltaf sigurstranglegt. Það má að mörgu leyti þakka fyrrverandi þjálfara liðsins sem er hin goðsagnakennda Silvia Neid. Þessi 53 ára gamli þjálfari þýska liðsins var einn farsælasti knattspyrnumaður Þýskalands en hún vann sjö meistaratitla sem leikmaður og sex bikartitla. Hún spilaði þess utan 111 landsleiki og skoraði í þeim leikjum 48 mörk. Um leið og Neid lagði skóna á hilluna var hún komin í vinnu hjá þýska knattspyrnusambandinu. Hún byrjaði á að þjálfa U-19 ára lið Þjóðverja og gerði það að heimsmeisturum árið 2004. Hún varð svo aðstoðarþjálfari A-landsliðsins en tók við stjórnartaumunum þar í lok júní árið 2005. Neid stýrði liðinu í ellefu ár en hætti á síðasta ári en þá var hún löngu búin að gera þýska landsliðið að stórveldi. Þýska liðið lék 169 leiki undir stjórn Neid. Liðið vann 125 þeirra, gerði 22 jafntefli og tapaði 22 leikjum. Hún er því með vinningshlutfall upp á tæp 74 prósent. Ekki amalegt. Það er því pressa á Steffi Jones í Hollandi að halda áfram því starfi sem Neid hafði unnið árin á undan henni.Þessi grein birtist fyrst í sérstöku EM-blaði sem fylgdi Fréttablaðinu laugardaginn 15. júlí.Drottningin. Hin magnaða Silvia Neid gerði þýska landsliðið að stórveldi.vísir/gettyBianca Schmidt og Birgit Prinz eru goðsagnir hjá þýska liðinu. Prinz, til hægri, var þrívegis valin besta knattspyrnukona heims á mögnuðum ferli.vísir/getty
EM 2017 í Hollandi Mest lesið Davíð Tómas segir flautukörfu Hilmars Smára löglega: „Ekki skref“ Körfubolti Upp úr sauð milli þjálfaranna í Garðabæ: „Ég bað hann afsökunar“ Körfubolti Sjáðu ótrúlega flautukörfu Hilmars Smára í framlengingu gegn Tindastól Körfubolti Vinni gegn Jóni Degi að vera með vegabréf frá Íslandi Fótbolti Salah gæti hafa spilað sinn síðasta leik fyrir Liverpool Enski boltinn Leik lokið: Stjarnan 105-103 Tindastóll | Í kjörstöðu eftir flautukörfu í framlengdum leik Körfubolti Jón Dagur þaggaði niður í gagnrýnendnum með mögnuðu marki Fótbolti Áttu vart orð yfir tilþrifum í Garðabæ: „Þetta var rosalegt“ Körfubolti Glódís stóð vaktina gegn Barcelona og allt opið í einvíginu Fótbolti „Við erum bara svo miklir hundar“ Sport Fleiri fréttir Vinni gegn Jóni Degi að vera með vegabréf frá Íslandi Salah gæti hafa spilað sinn síðasta leik fyrir Liverpool Valur 2-1 Grindavík/Njarðvík | Ísabella Sara hetja Valskvenna Þór/KA 1-1 FH | Dramatískt jöfnunarmark og töpuð stig Jón Dagur þaggaði niður í gagnrýnendnum með mögnuðu marki Eze skaut Arsenal aftur á toppinn Manchester City tryggði sér farmiða í úrslitaleikinn Glódís stóð vaktina gegn Barcelona og allt opið í einvíginu Birta skoraði en mátti þola tap í Íslendingaslag HK byrjar á sigri Börsungar að stinga af Þriðji sigur Liverpool í röð Draumabyrjun Þróttara en jafnt fyrir vestan Tottenham vann loksins en er enn í fallsæti Fanney hélt hreinu og Häcken vann fyrri úrslitaleikinn Uppgjörið: Fram - ÍBV 3-4 | Nýliðarnir unnu í sjö marka leik Fulham vann og Liverpool getur komist upp fyrir Villa „Er ekki að sjá þennan orkumikla bolta sem manni var lofað“ Lést í miðjum leik Með Vestra í Evrópu: „Engin þjálfarastaða sambærileg þessari“ Andlát Jota notað sem barefli á leikmenn Liverpool „Ég er náttúrulega á allt öðrum stað“ „Það er ekkert annað en metnaðarleysi“ „Ég ætla að nýta það og sýna hvað í mér býr“ Jasmín Erla: „Mér fannst við bara helvíti góðar“ Ellefu mörk í Mosfellsbænum Bellerín braut hjörtu Madrídinga Uppgjör: Víkingur R. - Stjarnan 2-1 | Draumabyrjun Víkings Allt slökkt á Leikvangi ljóssins Flest mörk í 67 ár Sjá meira
Leik lokið: Stjarnan 105-103 Tindastóll | Í kjörstöðu eftir flautukörfu í framlengdum leik Körfubolti
Leik lokið: Stjarnan 105-103 Tindastóll | Í kjörstöðu eftir flautukörfu í framlengdum leik Körfubolti