Lífið samstarf

Frá geðrofsröskunum til barnauppeldis og hundagöngu

Landspítalinn kynnir
Styrkár segir starfsandann á endurhæfingargeðdeildinni einstakan og er viss um að það skili sér til sjúklinga.
Styrkár segir starfsandann á endurhæfingargeðdeildinni einstakan og er viss um að það skili sér til sjúklinga.
Mannauðsmínútan: Styrkár Hallsson er ráðgjafi og verkefnastjóri hjá sérhæfðri endurhæfingargeðdeild Landspítala við Elliðavog, en þar er einkum ungt fólk á aldrinum 18-30 ára sem glímir við fíknivanda og geðrofsraskanir.

Styrkár er með BS-gráðu í sálfræði og tengdi ritgerðina starfinu. Annars á átta mánaða dóttirin Salka hug hans allan um þessar mundir. Fjölskyldan á schaefer-hundinn Móu, sem heldur mannskapnum í góðri æfingu.

Styrkár kveður það mikil forréttindi að vinna á endurhæfingargeðdeildinni og koma að því að hjálpa ungu fólki í vanda. Hann segir starfsandann á deildinni einstakan og er viss um að það stuðli að betri meðferð fyrir skjólstæðinga deildarinnar.

Hægt er að skoða fleiri mannauðsmínútur frá Landspítala hér. 

Þessi grein er unnin í samstarfi við Landspítalann.

Mannauðsmínútan (5) // Styrkár Hallsson from Landspítali on Vimeo.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.