Leiðtogi stjórnarandstöðu fær ekki að bjóða sig fram Þórgnýr Einar Albertsson skrifar 24. júní 2017 07:00 Alexei Navalní í lögreglufylgd. vísir/EPA
Alexei Navalní, leiðtoga stjórnarandstöðunnar í Rússlandi, var í gær meinað að bjóða sig fram til forseta en forsetakosningar fara fram þar í landi á næsta ári. Miðstjórn kosninga í Rússlandi kvað upp úrskurð sinn þess efnis í gær og byggist hann á því að Navalny var dæmdur sekur fyrir fjárdrátt. Hann er nú á skilorði. Navalní hefur hins vegar sagt að sá dómur hafi verið pólitískur. Sjálfur hefur fann farið fyrir fjöldamótmælum gegn Vladimír Pútín Rússlandsforseta og sakað hann um spillingu. Í ofanálag var Navalní dæmdur í þrjátíu daga fangelsi fyrr í mánuðinum fyrir að brjóta endurtekið lög gegn slíkum fjöldamótmælum. Hafði Navalní kallað eftir því að fólk mótmælti meintri spillingu ríkisstjórnarinnar og voru hundruð handtekin á þeim mótmælum. Navalní hafnaði úrskurðinum í gær. Sagðist hann ætla með málið fyrir Mannréttindadómstól Evrópu. Jafnframt sagði hann að í stjórnarskrá Rússlands segði að einungis fangar mættu ekki bjóða sig fram til forseta. Mótmæli Navalní hafa undanfarið beinst gegn forsætisráðherranum Dimitrí Medvedev. Sakar Navalní forsætisráðherrann um að sanka að sér fé í laumi í skjóli embættis síns. Medvedev hafnar þeim ásökunum. Sjálfur hefur Pútín ekki staðfest að hann muni gefa kost á sér á ný í forsetakosningunum. Ef hann sigrar í þeim kosningum yrði næsta kjörtímabil hans fjórða.
Birtist í Fréttablaðinu Mest lesið „Ég er bara svolítið sár“ Innlent Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Erlent Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Erlent Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Erlent Landsbyggðin „brjáluð“ vegna málsins Innlent Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins Innlent Sjö þúsund krónur séu ekki nóg Innlent Svakaleg lægð í líkingu við metlægðina í síðustu viku nálgast landið Veður „Við erum virkilega þreyttir“ Innlent Geta notað drónana til fulls á ný Erlent Fleiri fréttir Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Segist hafa tryggt staðbundið vopnahlé „Loka“ Vesturbakkanum eftir árás á hermenn Einn látinn eftir mögulega hryðjuverkaárás Thomas Markle sakaður um vörslu barnaníðsefnis Enn einu skipinu sökkt á Svartahafi Flugsamgöngur í lamasessi vegna öflugs fellibyls Saka Kanadamenn um afskipti af kosningunum „Niðurstaðan er sú að hann setti þetta aftur á“ Ákærður fyrir að nauðga sautján ára stúlku en neitar sök Lögðu andstæðingunum vafasöm orð í munn með gervigreind Vilja afsökunarbeiðni frá Kim vegna jarðsprengju Ætlar að halda þingsætinu þrátt fyrir rannsókn á svikum Létu sprengjum rigna yfir Kænugarð Glaumgosinn sem tók við málaliðaveldi föður síns „Nei, Pútín er harðsvíraður morðingi“ Björguðu særðum hermanni með dróna Fulltrúi Trump lofaði „mannvininn“ Pútín Sænskur glæpaforingi ákærður fyrir þrjú morð Vill losna við blaðamenn og fá sundlaug í staðinn Sjá meira