Framúrskarandi nemendur hlutu 10 milljónir í styrki Kristín Ólafsdóttir skrifar 26. júní 2017 20:41 Frá athöfninni í Háskóla Íslands í dag. 28 nemendur hlutu styrk fyrir framúrskarandi árangur til stúdentsprófs. Háskóli Íslands
Tuttugu og átta nemendur úr sextán framhaldsskólum víðs vegar af landinu hlutu styrk úr Afreks- og hvatningarsjóði stúdenta Háskóla Íslands í ár. Styrkjum var úthlutað úr sjóðnum í tíunda sinn við hátíðlega athöfn á Háskólatorgi í dag. Í fréttatilkynningu frá Háskóla Íslands segir að styrkþegarnir, 10 karlar og 18 konur, eigi það sameiginlegt að hafa náð framúrskarandi árangri í námi til stúdentsprófs. Þau munu öll hefja grunnnám við skólann í haust og innan hópsins er stefnt á nám á öllum fimm fræðasviðum skólans. Hver nemandi hlaut styrk sem nemur 375 þúsund krónum en samanlögð styrkupphæð er því rúmar 10 milljónir króna. Við mat á styrkþegum er horft til árangurs á stúdentsprófi, virkni í félagsstörfum í framhaldsskóla og árangurs í greinum á borð við listir og íþróttir. Þá er einnig leitast við að styrkja nýnema sem sýnt hafa fram á sérstakar framfarir í námi eða góðan námsárangur þrátt fyrir erfiðar aðstæður. Styrkhafarnir í ár eru: Anna Chukwunonso Eze, Arnar Huginn Ingason, Atli Fannar Franklín, Erla Marý Sigurpálsdóttir, Erla Sigríður Sigurðardóttir, Garðar Sigurðarson, Gísli Björn Helgason, Guðlaug Agnes Kristjánsdóttir, Guðrún Höskuldsdóttir, Guðrún Ólafsdóttir, Hákon Örn Grímsson, Helga Margrét Höskuldsdóttir, Inga Guðrún Eiríksdóttir, Ísak Valsson, Jakob van Oosterhout, Karen Sif Jakobsdóttir, Kinga Sofia Demény, Liina Björg Laas Sigurðardóttir, Magnea Haraldsdóttir, Ragnheiður Silja Kristjánsdóttir, Sigurður Smári Davíðsson, Sindri Magnússon, Snæþór Aðalsteinsson, Sólveig Hrönn Hilmarsdóttir, Sunna Þórarinsdóttir, Tanja Rasmussen, Thelma Dís Ágústsdóttir og Þóranna Hlíf Gilbertsdóttir. Styrkirnir í ár eru veittir með stuðningi Aldarafmælissjóðs Háskóla Íslands og Happdrættis Háskóla Íslands. Stjórn Afreks- og hvatningarsjóðs stúdenta Háskóla Íslands skipa Steinunn Gestsdóttir, aðstoðarrektor kennslu og þróunar sem er formaður, Börkur Hansen, prófessor við Uppeldis- og menntunarfræðideild, og Ólafur Pétur Pálsson, prófessor við Iðnaðarverkfræði-, vélaverkfræði og tölvunarfræðideild. Fyrstu styrkirnir voru veittir úr Afreks- og hvatningarsjóði stúdenta Háskóla Íslands árið 2008 en frá þeim tíma hafa hátt í 230 nemendur tekið við styrkjum úr sjóðnum.
Mest lesið Systir Haraldar er látin Erlent Kourani farinn úr landi Innlent Braut reglur þegar hann minntist Steins Innlent Enn þykknar upp hjá SÁÁ Innlent 25 ár frá 9/11: Ólíkar útgáfur Trumps af deginum Erlent Halda minningarstund fyrir Hönnuh Innlent „Litla daman okkar hefur heldur betur þurft að berjast“ Innlent Rússar gómaðir með leynilega sæstrengjaklippu Erlent Segir Áfram Ísland ekki hafa borgað fyrir auglýsingu Þjóðmála Innlent Kemur ekki til greina að Ísland segi sig frá stríðsglæpadómstól Innlent Fleiri fréttir Sektaður fyrir að skila ekki yfirliti um heimagistingu Enn þykknar upp hjá SÁÁ Ljósagatnamótin eigi að duga næstu tuttugu ár Allir stjórnmálaflokkar, Áfram Ísland og Sjá til skoðunar Kemur ekki til greina að Ísland segi sig frá stríðsglæpadómstól Aðstoðarframkvæmdastjóri SA: „Frekari launahækkanir væru eins og olía á eldinn“ Esjan er hvít en ekki lengi Gera ekkert í að lögregla hafi eytt sönnunargögnum Furðar sig á því að nefndin hafi ekki verið upplýst fyrr Flugvirkjar Icelandair sagðir ætla að kjósa um verkfall Kourani farinn úr landi Kourani vísað úr landi Grjót á stærð við þvottavélar þar sem börn fara á leið í skóla „Litla daman okkar hefur heldur betur þurft að berjast“ Finni nikótínpúða á leikskólalóðinni og stingi upp í sig Segir Áfram Ísland ekki hafa borgað fyrir auglýsingu Þjóðmála Tilkynnt um innbrotsþjóf sem var enn inni Halda minningarstund fyrir Hönnuh Fjárlagafrumvarpið „köld kveðja til launafólks“ „Ég mun stúta þér og einhver skilar sér ekki í skólann“ Hanna Katrín átti fund með sendiherra Kína Viðraði hugmyndir um bandarískt Ísland við Bjarna „Við erum að gera stóra hluti í samgöngum“ Halla hæstánægð með stólaskiptin Próflaus á öfugum vegarhelmingi Uppstokkun í fullri sátt innan Framsóknar Tvíkjálkabraut konuna en sleppur við fangelsi Braut reglur þegar hann minntist Steins Skera rúma fjóra milljarða af vegagerð Hallinn töluverður en mun minni en búist var við Sjá meira