Youtube-brella endaði með dauða kærastans Kjartan Kjartansson skrifar 29. júní 2017 10:12 Byssan sem parið notaði var 50 kalíbera Desert Eagle. Vísir/Getty
Nítján ára gömul stúlka í Minnesota hefur verið ákærð fyrir manndráp eftir að hún skaut kærasta sinn til bana. Kærastinn hafði fengið hana til að skjóta á bók sem hann hélt fyrir brjóstkassanum fyrir myndband sem þau ætluðu að birta á Youtube. Stúlkan, sem er komin sjö mánuði á leið með annað barn hennar og kærastans, sagði lögreglu að kærastinn hefði viljað gera Youtube-myndband af henni að skjóta bókina. Fékk hann stúlkuna til að skjóta á sig með bókina fyrir brjóstina þar sem hann taldi að kúlan myndi stoppa í bókinni. Hann hafi jafnframt sannfært hana um að það væri öruggt með því að sýna henni aðra bók sem hann hafði áður skotið á. Kúlan hafði ekki farið alla leiðina í gegnum hana. CNN segir að maðurinn hafi sett upp tvær myndavélar fyrir uppátækið og hafi vonast til að myndbandið færi í mikla dreifingu á netinu. Byssukúlan fór hins vegar alla leið í gegn og lést maðurinn af skotsárinu. Lögreglan segir að stúlkan hafi skotið með 50 kalíbera skammbyssu af gerðinni Desert Eagle af um þrjátíu sentímetra færi. Maðurinn var 22 ára gamall. Stúlkan á yfir höfði sér allt að tíu ára fangelsisvist verði hún fundin sek. Henni hefur verið sleppt gegn tryggingu.
Bandaríkin Mest lesið Hóteláform Hreiðars strand vegna vegleysu Innlent Dregur enn frekar úr líkum á samningi með skaðabótakröfu Erlent Ungir Miðflokksmenn vildu ekki taka þátt í Gleðigöngunni Innlent „Einfaldlega ók bifreið frá punkti A á punkt B“ Innlent Fylgdust með rússneskum njósnara gefa útsendara gjöf Erlent ,,Þetta eru kosningaherferðarfundir Kristrúnar Frostadóttur fyrir Já til að sjá'' Innlent Fyrir fólk sem búi á almyrkvaslóðinni sé nóg að „vera úti í garði og upplifa allt“ Innlent Ætlar að hafa lokað þrátt fyrir tífaldan íbúafjölda Innlent Björgunarsveitir sinntu tveimur slösuðum ferðamönnum Innlent Hvað er vitað um manndrápið á Kársnesi? Innlent Fleiri fréttir Dregur enn frekar úr líkum á samningi með skaðabótakröfu Fylgdust með rússneskum njósnara gefa útsendara gjöf Tala látinna komin yfir hundrað Brutu reglur þegar þau tilkynntu óvart andlát konungsins Harður jarðskjálfti skók Kólumbíu og Ekvador Mannfall í drónaárás á olíuhreinsistöð í Tatarstan Frederiksen og Meloni taka höndum saman gegn innflytjendum Heitustu sumarmánuðir í Vestur-Evrópu í sögunni Ætlar að láta frysta egg sín og útilokar ekki forsetaframboð Segir allt að 50 þúsund hermenn frá Norður-Kóreu á leið til Rússlands Handtekinn eftir að kona og barn drukknuðu við Frelsissyttuna Netanjahú hafnar friðaráætlun Trumps Ríflega hundrað og sextíu ungmenni handtekin Forstjórinn ræður hvort upptökur úr búkmyndavélum verði birtar Gefur aftur í skyn að hann vilji embættið á ný Rússar taldir bera ábyrgð á sjálfsprengjudrónanum Heitir því að herða byssulöggjöf í kjölfar árásar Spánverjar taka upp landamæraeftirlit gagnvart Ítalíu Blanche staðfestur sem dómsmálaráðherra Sonur Bidens segir náðunina ekki góða ákvörðun Kampavínið klárt þegar hann beið eftir að morðingjar létu til skarar skríða Gert að greiða tugi milljarða fyrir að passa ekki öryggi barna Sjö látnir eftir skotárás í grunnskóla Biður fjársterka stuðningsmenn um að styðja Vance 2028 Íranir segja viðræður á lokametrunum Vísa máli Fauci til dómstóla Sakar lekamenn um landráð vegna „rangra“ frétta „Fagmenn“ smíðuðu og flugu sjálfsprengidrónanum í Leipzig Áhrifavaldur myrtur í beinni Ebóla að stinga viðbragðsaðila í verkfalli af Sjá meira